Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Side 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur Veikur af völdum vinnu Bandarískur dómstóll dæmdi nýlega fyrrum yfirstýrimanni af gámaskipinu Sealand Pride, sem er í eigu Mærsk Line, bætur upp á 590 þúsund dollara vegna heilsuleysis sem hann varð fyrir. Yfir- stýrimaðurinn, William Skye, hafði greinst með hjartveiki sem læknar töldu hafa skapast sökum mikillar vinnu. Fór stýrimaður- inn því í mál og kom fram í málssókn hans að meðalvinnutími hans hafi verið 15 tímar og 45 mínútur á hverjum degi í starfi hans á gámaskipinu. Hann bar því við að skipafélagið hefði brotið allar reglur um vinnu- og hvíldartíma en undir það tók dómurinn ekki. Engu að síður var William dæmt í hag en dómurinn taldi hann eiga 75% hluta af sökinni en hann hafði gert kröfu um 2,4 milljón dollara bætur. William hyggst áfría dómnum. Ákærðir Þrír menn hafa verið ákærðir um manndráp í kjölfar slyss þegar ferjunni Skagit hvolfdi undan Zanzibar í júlí á síðastliðnu ári. Meðal sakborninga er skipstjóri skipsins en talið er að 144 hafi farist í slysinu. Var þetta annað ferjuslysið þar í landi með skömmu millibili en í september 2011 sökk Spice Islander og með því 800 manns. Heppnasti maður í heimi Hann var lánsamur skipverjinn á gámaskipinu Maersk Bintan þegar honum var bjargað níu tímum eftir að hann féll fyrir borð. Tanawoot Pratoom var einn úti á þilfari þegar hann fékk svima með þeim afleiðingum að hann féll fyrir borð um 525 sjómílur suðaustur af Bermúda þann 23. júní s.l. Tveimur tímum síðar gerðu skipsfélagar hans sér grein fyrir að hann hefði að öllum líkindum fallið fyrir borð. Var þegar sent út neyðarkall og skipinu snúið við og haldið til leitar. Bandaríska strandgæslan tók við stjórnun aðgerða og framkvæmdi meðal annars rekútreikninga manns í sjó. Sendu þeir leitarflugvél á svæðið sem og að sex nær- stöddum skipum var beint inn á svæðið til þátttöku í leitinni. Skipverjar á kýpverska stórflutningaskipinu Stalo sáu Tanawoot veifandi í sjónum rúmlega hálf fjögur í eftirmiðdaginn en hann hafði fallið fyrir borð klukkan rúmlega sjö um morguninn. Það liðu síðan 40 mínútur þar til honum var bjargað um borð í léttbát eigin skips. Skipstjóri Maersk Bintan, M. E. Alahi, sagði Tanawoot vera heppnasta mann í heimi. Dómur Breski hæstiréttur dæmdi nýlega skipafélagið BP Shipping til að greiða 260 þúsund dollara í bætur til ekkju yfirvélstjórans Ren- ford Braganza sem féll fyrir borð í Atlantshafinu árið 2009. Út- gerðin hafði neitað að greiða bætur og báru því við að skipverjinn hefði fyrirfarið sér. Þessu hafnaði dómurinn en sagði að sá mögu- leiki væri aðeins einn af mörgum en engin sönnun þess eðlis hefði komið fram. Búist er við að BP Shipping áfrýi dómnum. Nýjar reglur í Bretlandi Bresk stjórnvöld hafa tilkynnt að sett verði ný lög í landinu sem krefjast þess að sjómenn á skipum sem eru í strandsiglingum eða á ám og fljótum þar í landi þurfi atvinnuleyfi til starfa. Kemur þetta í kjölfar mótmæla frá stéttarfélaginu Nautilus International eftir að fyrirtæki sem réði sér sjómenn utan Evrópska efnahags- svæðisins bauð í ferjuflutningsleið milli Skotlands og Northern Isles. Hafa stjórnvöld bent á að sjómenn skipa skráða utan Evr- ópska efnahagssvæðisins geti enn sem komið er sótt um atvinnu- leyfi en þó er búist við að því ákvæði verði breytt. Er þetta ekki eitthvað sem íslensk stjórnvöld þurfa að taka til alvarlegrar skoð- unar þegar erlend skip, sem tilheyra útgerðum utan efnahags- svæðisins, taka að stunda strandsiglingar við Ísland? Skip dauðans Þegar kreppa dynur yfir draga margar útgerðir saman seglin og þar sem ekki eru kaupendur í röðum eftir skipum fer fjöldi skipa í brotajárn á slíkum tímum. Nýlega fór eitt stærsta gripaflutninga- skip heims, Al-Kuwait, í brotajárn. Skipið, sem var komið á 46 árið, var smíðað sem olíuskip en breytt árið 1981 til gripaflutn- inga. Skipið var þekkt undir nafninu „Skip dauðans“ af dýra- verndunarsamtökum í Ástralíu og voru tíð mótmæli við skipið þegar það lestaði í áströlskum höfnum. Það voru indverskir brotajárnskaupmenn sem greiddu 356 dollara fyrir stáltonnið sem þótti mjög lágt verð en stálþungi skipsins var 17.700 tonn. Telja menn ljóst að Indverjarnir hafi gert sér grein fyrir að það yrði frekar sóðalegt að rífa skipið. Hverfur brátt Fyrsta desember á síðasta ári lauk fyrsta kjarnorkuknúna flug- móðurskip heims ferli sínum í flotastöðinni í Norfolk í Virginíu. Flugmóðurskipið Enterprise lauk þar með 51 árs þjónustu fyrir bandaríska flotann. Það mun þó taka nokkuð langan tíma að rífa skipið og hafa menn áætlað að því muni ljúka á átta árum. Rífa þarf 62.000 tonn af stáli og áli auk átta kjarnakljúfa sem í skipinu eru. Fram á mitt þetta ár verður skipið í Norfolk þar sem unnið er að því að fjarlægja allt eldsneyti úr skipinu. Þá verður farið með það til Newport News þar sem haldið verður áfram að fjar- lægja alla glussaolíu sem og innréttingar, varahluti, tæki og tól. Allir tanka verða þrifnir og öll spilliefni tekin úr því. Er búist við að þetta muni taka fjögur ár. Þá mun skrokkurinn verða dreginn til Puget Sound Naval Shipyard í Washington fylki. Verður þá far- Utan úr heimi Hilmar Snorrason skipstjóri Skip dauðans, eins og það var kallað, hefur lokið ferli sínum. Átta ár mun taka að rífa flugmóðurskipið Enterprise.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.