Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 4
Nú stend ég eftir með
um það bil fjórðung af
upprunalegri upphæð.
Steinar Guðmundsson,
eldri borgari
Yfir 2.500 skjálftar hafa
mælst í hrinunni.
Af 150.000 króna lífeyris-
sparnaði sitja aðeins 50.000
krónur eftir vegna skatta og
skerðinga. 75 prósent af eign
á verðbréfareikningi brunnu
upp, að sögn eldri borgara.
bth@frettabladid.is
LÍFEYRISMÁL Jóhann Páll Jóhanns-
son, þingmaður Samfylkingar-
innar, segir að nýju lögin um til-
greinda séreign sem fjallað hefur
verið um í Fréttablaðinu hafi verið
keyrð áfram af stjórnarflokkunum
gegnum þingið síðasta vor. Lögin
feli í sér að nú sé það einungis við-
bótarlífeyrissparnaður sem ekki
komi til skerðingar á greiðslum frá
Tryggingastofnun.
„Hjá fólki sem þegar hefur safn-
að séreign af iðgjaldi í lífeyrissjóð
kemur séreignin ekki til lækkunar
á greiðslum almannatrygginga ef
einstaklingurinn hefur lífeyristöku
fyrir 1. janúar 2023,“ segir Jóhann
Páll.
„En ef manneskja hefur lífeyris-
töku degi síðar skella skerðing-
arnar á af fullum þunga gagnvart
allri þeirri séreign sem viðkomandi
hafði safnað,“ segir Jóhann Páll sem
situr í efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis.
Tæknifræðingi á sjötugsaldri
brá í brún þegar hann sá að vegna
nýrra lífeyrissjóðslaga, sem sam-
þykkt voru í júní og taka gildi eftir
áramót, myndu skerðingar éta upp
greiðslur sem hann hafði áætlað frá
Tryggingastofnun. Skerðingin næmi
tugum milljóna. Lýsti maðurinn
því í Fréttablaðinu að annað hvort
þyrfti hann að hætta störfum mun
fyrr en áætlað væri, tapa 15-20 millj-
ónum vegna séreignarsjóðs sem
hann hafði lengi greitt í eða selja og
greiða mikinn hátekjuskatt.
„Ég velti því upp í umræðum um
málið í þingsal hvort í þessu gæti
hugsanlega falist ólögmæt og aftur-
virk skerðing á lífeyrisréttindum
og benti á að ástæða væri til að
láta kanna þetta sérstaklega,“ segir
Jóhann Páll.
Stjórnarmeirihlutinn hunsaði
ýmsar athugasemdir sem bárust
að sögn Jóhanns Páls. Frumvarpið
hafi verið keyrt í gegn þótt fjöldi
umsagnaraðila, meðal annars BSRB,
Kennarasambandið og Reykja-
víkurborg, hefðu gagnrýnt ýmis
ákvæði þess harðlega.
Þingmaðurinn segir ljóst að
stokka verði upp í skerðingarkerfi
almannatrygginga.
„Ég hef langmestar áhyggjur af
tekjulægstu hópunum. Almenna
frítekjumarkið hjá fólki á ellilífeyri
er enn þá aðeins 25 þúsund krónur
og allar lífeyrissjóðstekjur umfram
þá fjárhæð koma til skerðingar á
greiðslum Tryggingastofnunar.“
Miðgildi lífeyrissjóðstekna hjá
eldri konum er um 150 þúsund
krónur á mánuði. Af slíkum lífeyr-
issparnaði situr aðeins þriðjungur
eftir sem auknar ráðstöfunartekjur.
100 þúsund krónur renna til ríkisins
vegna skatta og skerðinga að sögn
Jóhanns Páls.
„Jaðarskattbyrðin er 67 prósent.
Ég er sannfærður um að þetta stríði
gegn réttlætisvitund fólksins í land-
inu. Við verðum að breyta almanna-
tryggingakerfinu í grundvallar-
atriðum til að verja afkomuöryggi
og mannlega reisn okkar allra.“
Steinar Guðmundsson, 79 ára
eldri borgari, segist hafa átt smá-
aura inni á verðbréfareikningi sem
hann hafi geymt til elliáranna.
„Ég ákvað svo að leysa þetta út á
síðasta ári. Við úttekt tók skatturinn
sín 43 prósent, eftirstöðvar voru
lagðar á bankareikning. Á vormán-
uðum endurreiknaði Trygginga-
stofnun lífeyrisgreiðslur mínar eftir
að þessi gjörð kom fram á skatta-
skýrslu. Tryggingastofnun tók þetta
sem fjármagnstekjur og nú er verið
að krefja mig um endurgreiðslu á
ofgreiðslu á lífeyri síðasta árs,“ segir
Steinar.
„Nú stend ég eftir með um það bil
fjórðung af upprunalegri upphæð.
Fleiri eru hlunnfarnir og hafa verið.
Það er gott að fjármagnseigendur
sjái nú líka óréttlæti hins opinbera,“
segir Steinar. n
Jafnvel aðeins fjórðungur tekna eftir
Löggjafinn sá fyrir hvaða hæpnu afleiðingar gætu orðið af nýju lagafrum-
varpi, segir þingmaður stjórnarandstöðunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jóhann Páll
Jóhannsson,
þingmaður
Samfylkingar
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
Alvöru jeppi – alvöru fjórhjóladrif - Eini
jeppinn í sínum stærðarflokki með lágt drif
Einungis nýir Jeep frá ÍSBAND eru með 5 ára ábyrgð!
JEEP.IS
JEEP RENEGADE TRAILHAWK
4XE PLUG-IN HYBRID
PLUG-IN HYBRID
ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á
DRIFRAFHLÖÐU PLUG-IN HYBRID
EIGUM LOKSINS TIL AFHENDINGAR
benediktboas@frettabladid.is
NÁTTÚRA Skjálfti 4,1 að stærð varð í
gær klukkan 13.19 um 16 kílómetra
austur af Grímsey.
Tilkynningar bárust Veður-
stofunni um að skjálftinn hefði
fundist á Akureyri og á Siglufirði.
Þó nokkrir eftirskjálftar yfir þrír að
stærð fylgdu í kjölfarið.
Samkvæmt Veðurstofunni eru
þessir skjálftar hluti af hrinu sem
hófst þann 8. september. Alls hafa
rúmlega 2.500 skjálftar mælst
frá því að hrinan hófst en stærsti
skjálftinn mældist eina mínútu yfir
fjögur í fyrradag og var hann 4,9 að
stærð.
Hrinur á þessum slóðum eru
algengar þar sem flekaskil liggja á
þessu svæði, það eru engin merki
um gosóróa á svæðinu. n
Skjálfti yfir fjóra
austur af Grímsey
Í Grímsey. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
sigurjon@frettabladid.is
BRETLAND Karl III. Bretakonungur
ávarpaði bresku þjóðina í gær og var
það í fyrsta skiptið sem hann kom
fram opinberlega frá andláti móður
sinnar, Elísabetar II. Bretadrottn-
ingar. Sagði Karl meðal annars að
gildi bresku þjóðarinnar yrðu að
vera stöðug, þrátt fyrir breytingar og
áskoranir sem hún hefur orðið fyrir.
„Það er nú líklegast að valdaskipt-
in hafi engar stjórnskipulegar afleið-
ingar, embætti þjóðhöfðingjans er
algjörlega valdalaust,“ segir Ólafur
Þ. Harðarson prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands.
Í kjölfar andláts Elísabetar hafa
margir velt því fyrir sér hvort lík-
legt sé að konungsveldið riði til falls.
„Það er náttúrulega engin leið að
segja en mér finnst það afar ólík-
legt,“ segir Ólafur. Elísabet hafi verið
táknrænt sameiningartákn og mjög
elskuð af þegnum sínum. „Það er
nú ólíklegt að Karl nái þeirri stöðu,
hann er líklegur til að vera umdeild-
ari,“ segir hann.
Lýðveldissinnar hafa aldrei verið
sterkir í Bretlandi, að sögn Ólafs. „Í
rauninni hafa engar tilraunir komið
upp í gegnum tíðina til að afnema
konungdæmið, ekki síðan 1649,“
segir hann.
„Það er ólíklegt að það verði ein-
hverjar alvöru raddir sem vilja
breyta Bretlandi úr konungsveldi
í lýðveldi en við getum sagt að á
meðan það var kannski útilokað á
meðan Elísabet var við völd, þá sé
það bara afar ólíklegt á meðan Karl
er við völd,“ segir Ólafur. n
Prófessor segir endalok breska konungsveldisins afar ólíkleg
Ólafur Þ. Harðar-
son, prófessor í
stjórnmálafræði
við HÍ
Karl III. Breta-
konungur
minntist móður
sinnar, Elísabet-
ar II., í ávarpi til
bresku þjóðar-
innar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
4 Fréttir 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ