Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 56
Ljósleiðaravæðing
Vestmannaeyjabæjar
EFLA óskar eftir tilboðum í blástur og teng-
ingar ljósleiðarakerfis fyrir hönd Eygló
eignarhaldsfélags ehf. Verklok
eru eigi síðar en 1. apríl 2023.
Verkið er áfangaskipt og er 1. áfangi þess
boðinn út nú. Verkið felur í sér að blása
ljósleiðarastrengi í fyrirliggjandi ljósleiðara-
rör frá dreifistöðvum kerfisins inn á heimili
og fyrirtæki í Vestmannaeyjabæ. Einnig setja
upp tengibox, tengja í inntaksboxi húsa,
tengiskápum, dreifistöðvum og á öðrum
tengistöðum, setja upp skápa í dreifistöðvum
og framkvæma mælingar á ljósleiðurum
eftir blástur og tengingar.
Helstu magntölur eru:
• Blástur ljósleiðarastrengja 82 km
• Fjöldi tenginga 5100 stk
• Fjöldi inntaksboxa 555 stk
• Fjöldi dreifistöðva 2 stk
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi
frá og með mánudeginum 12. september
2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í
verkið skulu hafa samband við Reyni Valdi-
marsson með tölvupósti:
reynir.valdimarsson@efla.is og gefa upp
nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í
kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila til EFLU, Lynghálsi 4,
110 Reykjavík fyrir kl. 11:00 mánudaginn
26. september 2022, en þá verða þau
opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Eygló eignarhaldsfélag ehf.
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Forval: 21778
Endurbætur og breytingar
litla Hraun
Ríkiskaup, fyrir hönd, Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir
(FSRE), óska eftir umsóknum um þátttökurétt verktaka
(verktaki með verkfræðiteymi) í forvali fyrir lokað útboð
á verkfræðihönnun og framkvæmd vegna nýbygginga og
breytinga og endurbóta á núverandi húsnæði fangelsisins
á Litla Hrauni.
Áætlaðar stærðir í verkefninu eru:
• Nýbyggingar fyrir starfsemina eru áætlaðar 1.300 m2
• Endurgerð á núverandi húsnæði 2.000 m2
• Lagfæringar á lóð og umhverfi með uppskiptingu svæða
Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum og er auglýst á
Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um
opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL).
Nánari upplýsingar má finna á www.utbodsvefur.is.
FORVAL
Námsleyfi grunnskólakennara
og skólastjórnenda skólaárið
2023–2024
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum um náms-
leyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið
2023–2024. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við úthlutun
verði sett í forgang nám sem tengist:
• Samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
• Stjórnun og faglegum stuðningi við þróun starfshátta
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á
heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, www.samband.is. Umsóknir á öðru formi verða ekki teknar
gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar
upplýsingar að koma fram í umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2022.
Umsækjandi sem æskir námsleyfis skal að lágmarki full-
nægja eftirfarandi skilyrðum, sbr. reglur um Námsleyfasjóð:
a) Hafa, þegar sótt er um námsleyfi, gegnt starfi í 10 ár
samtals við kennslu, ráðgjöf eða stjórnun í grunnskóla
á Íslandi, í eigi minna en hálfu starfi, og verið samfellt í
starfi sl. fjögur ár, enda hafi verið greitt fyrir umsækjanda
í sjóðinn.
b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags eða aðila sem
stofnað er til með samstarfi sveitarfélaga og taka laun
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar-
félaga og Kennarasambands Íslands vegna grunnskól-
ans.
c) Ljúka á námstímanum 60 ECTS eininga háskólanámi, eða
jafngildu háskólanámi, miðað við 1/1 námsleyfi, og skal
námið miða að því að nýtast viðkomandi í því starfi sem
hann er ráðinn til að sinna.
Með umsókn þarf að berast staðfesting sveitarfélags/
skólastjóra, eða eftir atvikum rekstraraðila skóla, um að
skilyrðum a) og b) liðar hér að ofan sé uppfyllt á þar til gerðu
eyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Reglur um Námsleyfasjóð og viðmiðunarreglur um laun
í námsleyfi er að finna á heimasíðu Sambands íslenskra
sveitarfélaga og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér
þær.
Við mat á umsóknum er haft til hliðsjónar hversu vel hún er
rökstudd, hversu skýr markmið hennar eru, hvernig námið
nýtist umsækjanda í núverandi starfi og stofnuninni sem
hann vinnur hjá eða skólakerfinu í heild.
Stefnt er að því að svarbréf berist umsækjendum eigi síðar
en um miðjan desember 2022.
Nánari upplýsingar veitir Anna Ingadóttir í tölvupósti á
anna.ingadottir@samband.is
Lausar lóðir til úthlutunar
í Rangárþingi eystra
Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir á Hvolsvelli
og Ytri-Skógum, lausar til úthlutunar.
Íbúðarhúsnæði: Hallgerðartún 14, 860 Hvolsvöllur
Vistarvegur 2-4, 861 Hvolsvöllur
Vistarvegur 3, 861 Hvolsvöllur
Fjölbýlishúsnæði: Nýbýlavegur 46, 860 Hvolsvöllur
Iðnaðarhúsnæði: Ormsvöllur 11, 860 Hvolsvöllur
Hesthús: Við Miðkrika, 860 Hvolsvöllur
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um lóðirnar og
skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra,
www.hvolsvollur.is, hjá skipulags- og byggingarembættinu,
að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli eða í gegnum netfangið
bygg@hvolsvollur.is.
Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í
Rangárþingi eystra.
Umsóknarfrestur er til 23.september 2022. Umsóknum skal skila
rafrænt í gegnum heima síðu sveitarfélagsins.
F.h. Rangárþing eystra
Þóra Björg Ragnarsdóttir
Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa Rangárþings eystra
gardabaer.is
ÁLFTANES, MIÐSVÆÐI
SVÆÐI 2 – KRÓKUR
GATNAGERÐ OG LAGNIR
Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Ljósleiðarinn ehf og Míla ehf. óska eftir tilboðum í verkið:
Álftanes, Miðsvæði – Svæði 2 – Krókur, Gatnagerð og lagnir.
Samþykkt deiliskipulag Króks á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á 52 raðhúsalóðum við tvær
nýjar götur, Gásamýri og Svanamýri. Verkið felst í nýbyggingu gatna, stíga og gangstétta, lagningu
fráveitukerfis og mótun og frágangur ofanvatnsrása. Verktaki skal einnig annast alla vinnu við
lagnir veitufyrirtækja á svæðinu.
Útboðsgögn má nálgast á vef Garðabæjar, gardabaer.is frá og með föstudeginum 9. september 2022.