Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 10
Kannski er ástæða til
að grenndarkynna
þessar framkvæmdir í
næstu umferð.
Guðmundur B. Friðriksson, skrif-
stofustjóri skrifstofu umhverfis-
gæða hjá Reykjavíkurborg
Við viljum styðja við sjálfsprottið
starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka
og framtak einstaklinga
Sem stuðlar að farsælli þróun borgarsamfélagsins,
auknum lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi
Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á eftirtöldum sviðum:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningarmála
Umsóknir eru rafrænar, sótt er um á www.reykjavik.is/styrkir
Umsóknarfrestur er frá 12. september til 12. október kl. 12.00 á hádegi.
Gert er ráð fyrir að úthlutun styrkja verði lokið í ársbyrjun 2023.
Nánari upplýsingar: styrkir@reykjavik.is
Vilt þú sækja um styrk
hjá borginni?
English
The City of Reykjavík is currently accepting grant applications for the 2023
fiscal year. The goal of this grant program is to encourage and strengthen
cooperation with non-profit organizations, individuals, and businesses, in
constructive activities and services. In accordance with the City´s policies
and priorities. Grants will be awarded for projects in the following fields:
• social and welfare
• education and leisure
• sports and youth
• human rights
• culture
To apply go to: www.reykjavik.is/en/grants
The application deadline is at 12:00 pm on October 12th 2022.
Allocation of grants will be completed at the beginning of 2023.
More information: styrkir@reykjavik.is
Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is
Mynd Ragnar Th.
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Á þriggja mánaða
tímabili, milli apríl og júní, ferðuð-
ust starfsmenn á umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkurborgar
fyrir 4,3 milljónir króna.
Dýrust var ferð Ólafar Örvars-
dóttur sviðsstjóra á The Nordic
Planning Network ráðstefnuna í
Kaupmannahöfn en hún kostaði
505 þúsund. Ferð Glóeyjar Helgu-
dóttur Finnsdóttur, skrifstofustjóra
skrifstofu sviðsstjóra, til Malmö
kostaði 311 þúsund.
Athygli vekur að Nikulás Úlfar
Másson byggingar fulltrúi tók
Herjólf til Vestmannaeyja á SATS-
fund fram og til baka og rukkar
fjögur þúsund krónur en Hjalti
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
reksturs og viðhalds, rukkar 89 þús-
und fyrir sömu ráðstefnu.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins
spurði hvort það væri ekki sjálfsagt
að gæta hófs í þessum ferðalögum.
„Notast mætti við fjarfundi og
streymi. Flokkur fólksins minnir
á að margt smátt gerir eitt stórt.
Króna hér og króna þar verða að
lokum margar krónur.“ n
Starfsmenn á skipulagssviði ferðast fyrir milljónir króna
Framkvæmdir vegna hleðslu-
stöðva framan við Ægisíðu
115 og 117 komu íbúum í opna
skjöldu. Skrifstofustjóri hjá
borginni segir um að ræða
hluta áætlunar um hleðslu-
stöðvar á borgarlandi.
gar@frettabladid.is
REYKJAVÍK „Mér líst svo illa á þetta
að ég er að hugsa um að stofna
mótmælagrúppu og fara á fund
okkar yndislega borgarstjóra,“ segir
Páll Þórir Ólafsson sem er ósáttur
við að hafist hefur verið handa
við að koma upp hleðslustöðvum
á bílastæðum framan við heimili
hans á Ægisíðu 115.
Við fjölbýlishúsið Ægisíðu 115
og 117 eru sex bílastæði sem Páll
segir hafa tilheyrt íbúðunum sex í
fjölbýlishúsinu allar götur frá árinu
1941. „Það hefur ekki verið vanda-
mál hingað til. En svo vaknaði
ég upp við að það voru allt í einu
komnar girðingar í kring um öll
bílastæðin og gröfur byrjaðar að
grafa allt draslið upp og í tætlur,“
lýsir Páll atburðarásinni í fyrradag.
Páll segist hafa grennslast fyrir
um hvað væri á seyði og þá fengið
að vita að koma ætti fyrir hleðslu-
stöðvum á vegum borgarinnar.
Hann eigi hins vegar ekki rafmagns-
bíl frekar en aðrir í húsinu og hafi
spurt verktakann hvar hann eigi
framvegis að leggja bílnum sínum.
„Þú getur bara lagt einhvers staðar
á Ægisíðu, var svarið,“ segir hann
og er ósáttur. „Ég var ekki að kaupa
fasteign á 100 milljónir til að missa
bílastæðið og þurfa að leggja hálfan
kílómetra í burtu.“
Guðmundur B. Friðriksson, skrif-
stofustjóri skrifstofu umhverfis-
gæða hjá Reykjavíkurborg, segir
umrædd bílastæði reyndar vera á
borgarlandi. Þar sé verið að koma
fyrir sökklum og lögnum fyrir
hleðslustöðvar. Alls sé um að ræða
tuttugu slíka staði á þessu ári og
tuttugu á ári næstu tvö árin með
tveimur til sex stöðvum á hverjum
stað. Síðan verði útboð vegna upp-
setningar og reksturs stöðvanna.
„Hann hefur nokkuð til síns
máls,“ svarar Guðmundur þeirri
gagnrýni Páls að framkvæmdir
hafi farið í gang án þess að íbúum
væri gert viðvart. Það væri þó
sama vinnulag og við aðrar minni
háttar framkvæmdir á borð við gerð
hraðahindrana og þrenginga.
„Kannski er ástæða til að grennd-
arkynna þessar framkvæmdir í
næstu umferð,“ segir Guðmundur
sem ítrekar að umrædd bílastæði
framan við Ægisíðu 115 og 117 séu
ekki í eigu íbúanna þar heldur séu
þau á borgarlandi. Áætlun borgar-
innar miði að því að skapa aðgang
að hraðhleðslustöðvum fyrir þá
sem ekki hafi eigin stæði á sinni lóð.
„Ég ætla ekkert gefa þetta eftir,
langt í frá,“ segir Páll sem kveður
húsið hafa verið gert upp í upp-
runalegri mynd fyrir meira en 40
milljónir króna. „Í raun hefðum við
átt að vera búin að fá verðlaun fyrir
besta íbúðarhúsið í Vesturbænum.
Og nú er hér allt í steik.“ n
Hleðslustöðvar
valda óánægju
íbúa á Ægisíðu
Ólöf
Örvarsdóttir,
sviðsstjóri
umhverfis- og
skipulagssviðs.
„Ég var ekki að kaupa fasteign á 100 milljónir til missa bílastæðið,“ segir Páll
Þórir Ólafsson á Ægisíðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Efstaland
Birkimelur
Víðimelur
Njálsgata
Framnesvegur
Brávallagata
Seljavegur
Langholtsvegur
Bergstaðastræti
Hallgrímskirkja/Tækniskóli
Einholt
Bogahlíð
Fálkagata/Tómasarhagi
Ferjuvogur/Snekkjuvogur
Fylkisvegur
Kirkjuteigur
Kleppsvegur
Miðtún
Safamýri
Háaleitisbraut
Skálagerði
Ægisíða
Brúnaland
H:\bv709\ArcGISPro\Afgreidsla\Hledslustodvar\Hledslustodvar.aprx JÞ: 11.3.2022
Hleðslustöðvar á áætlun 2022 500 0 500 1.000 1.500250
m
Kort úr LUKR - Notist ekki sem heimild til graftar
Tuttugu hleðslustöðvar eru á áætlun borgarinnar á árinu. MYND/REYKJAVÍKURBORG
10 Fréttir 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ