Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 32
Tobba Marinósdóttir eigandi
Granólabarsins kynntist
Mjólkurþistli frá ICEHERBS
í gegnum viðskiptavin.
Síðan hefur hún boðið upp á
mjólkurþistil samhliða safa-
hreinsun á Granólabarnum.
Viðskiptavinurinn góði hafði
sjálfur notað mjólkurþistil, sam-
hliða safahreinsunum. Hann hafði
heyrt af því að mjólkurþistill ýtti
undir hreinsandi áhrifin og stakk
því upp á því að Tobba byði upp á
mjólkurþistil á Granólabarnum,
sem hún rekur með móður sinni
úti á Granda.
„Þegar fólk vill ná sem mestum
„detox“ áhrifum er það mjög öflugt
að para saman mjólkurþistilshylki
frá ICEHERBS og taka tvö hylki á
dag samhliða safahreinsun. Hylkin
ein og sér virka hreinsandi en ef
þú parar þau saman með safa-
hreinsun, þá færðu enn öflugri
niðurstöðu,“ segir Tobba. Hún
segist í raun vera hissa á því að hún
hafi ekki heyrt af töfrum Mjólkur-
þistils fyrr.
„Mjólkurþistill á sér langa
hefð sem lækningajurt en hann
inniheldur virka efnið Sylimarin
sem örvar starfsemi lifrar og
nýrna. En mjólkurþistilinn
frá ICEHERBS inniheldur líka
fjallagrös sem eru algjörir töfrar.
Það er ástæða fyrir því að mamma
og amma og langamma þræluðu
þeim í sig. Það er af því þau gera
gagn,“ segir hún.
Tobba segir að
hreinsunaráhrifin séu ein jákvæð
hlið mjólkur þistils, en önnur hlið
sem hún hefur uppgötvað er að
mjólkurþistill virkar mjög vel til að
lágmarka eftirköst ef áfengi er haft
um hönd.
„Ég gerði hávísindalega rann-
sókn um daginn þegar ég lét 24
konur taka mjólkurþistil kvölds
og morgna í skemmtiferð, til að
koma í veg fyrir lágskýjun daginn
eftir að skálað var. Þær komu allar
órispaðar úr þeirri ferð,“ segir
Tobba og hlær.
Náttúrulegt bætiefni
Sylimarin, virka efnið í mjólku-
þistli er talið hafa góð áhrif á lifur
og nýru. Efni úr Mjólkurþistli eru
talin hjálpa lifrinni við myndum
nýrra lifrarfruma og vera þannig
náttúruleg hreinsun fyrir lifrina.
Þá hefur plantan andoxunarvirkni
og er þekkt fyrir að hjálpa við að
losa óæskileg efni úr líkamanum
til dæmis eftir áfengisneyslu.
Mjólkurþistillinn frá ICEHERBS
inniheldur líka íslensk fjalla-
grös sem eru þekkt sem ginseng
Íslands og ekki að ástæðulausu.
Þau innihalda betaglúkantrefjar
sem taldar eru geta hjálpað til við
þyngdartap, að bæta meltingu og
styrkja þarmana. Fjallagrös eru
rík af steinefnum, einkum járni
og kalsíum, og bera í sér fléttuefni
sem talið er að hindri óæskilegar
bakteríur. Fjallagrös eru
einnig talin hjálpa til
við að draga úr bjúg.
Bætiefnin frá ICE-
HERBS eru hrein og
náttúruleg. Lögð er
áhersla á að virkni
skili sér í réttum
blöndum og að
eiginleikar innihalds-
efnanna viðhaldi sér
að fullu. Vörurnar eru
framleiddar á Íslandi
og innihalda engin
óþarfa fylliefni. n
ICEHERBS fæst í öllum betri
matvöruverslunum, apótekum,
heilsuvöruverslunum og glæsi-
legri vefverslun iceherbs.is.
Töfrar mjólkurþistils ótrúlegir
Tobba Marinós segist hissa á að hafa ekki heyrt af töfrum mjólkurþistils fyrr. MYND/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
Sendum tónlist út í geim! er
þátttökuverkefni sem hefst
í dag í Hörpu í Reykjavík
og er ætlað börnum. Boðið
verður upp á fjölbreytta og
skemmtilega dagskrá.
starri@frettabladid.is
Verkefnið Sendum tónlist út í
geim! hefst með fjölskyldudagskrá
í Hörpu í Reykjavík í dag,
laugardaginn 10. september,
en um er að ræða nýtt og
skemmtilegt þátttökuverkefni
fyrir börn. Viðburðurinn mun
marka upphaf ferðalags sem
mun standa yfir næsta misserið,
ferðalag um óravíddir tónlistar
og vísinda sem teygir anga sína
út í geim og aftur heim að sögn
Sigríðar Sunnu Reynisdóttur,
listræns stjórnanda ÞYKJÓ.
„Þetta verkefni er innblásið
af Gullplötunni „Sounds of
Earth“ sem var fest á Voyager
geimflaugarnar sem NASA sendi í
könnunarferð um alheiminn árið
1977.
Gullplatan var stútfull af
tónlist, hljóðum, kveðjum og
myndefni til að kynna mannkyn
og líf á jörðinni, ætlað geimverum
sem kynnu að rekast á f laugarnar.
Hugmyndin er að gefa börnum
og fjölskyldum tækifæri til að
glugga í efnið á Gullplötunni með
fjölbreyttum hætti.“
Fjölbreyttir samstarfsaðilar
Verkefnið er styrkt af Barnamenn-
ingarsjóði. ÞYKJÓ hönnunarteymi
leiðir verkefnið og Harpa er aðal-
bækistöðin. „Þar að auki eru sam-
starfsaðilarnir Vísindasmiðjan,
tónlistarkonan Sóley Stefánsdótt-
ir, líffræðingurinn Edda Elísabet
Magnúsdóttir, listgreinakennar-
arnir Halldór Baldursson og
Dagný Arnalds, tónlistarteymið
Ingibjörg & Siggi og síðast en ekki
síst fullt fullt fullt af krökkum um
land allt,“ bætir hún við.
Margt spennandi í boði
Viðburðurinn skiptist í nokkra
hluta og hefst leikurinn kl. 11
með Stjörnu-Sævari sem kynnir
geimævintýrið sem Voyager
leiðangurinn var segir Ingibjörg
Fríða Helgadóttir, verkefnastjóri
barnamenningar í Hörpu.
„Sævar segir okkur frá þessari
stórmerkilegu Gullplötu sem var
send út í geim og sumir hafa kallað
metnaðarfyllsta flöskuskeyti
mannkyns.
Í kjölfarið verða skapandi list-
smiðjur í boði; geimverugrímu-
smiðja með ÞYKJÓ og teiknismiðja
með myndasöguhöfundinum
Halldóri Baldurssyni. Boðið verður
upp á tvo tónlistarviðburði. Ann-
ars vegar mun Sóley Stefánsdóttir
bjóða gestum að loka augunum
og skoða sig um á jörðinni með
eyrunum á meðan hún leikur
með hljóð sem voru valin á Gull-
plötuna. Hins vegar mun tónlistar-
teymið Ingibjörg og Siggi bjóða
upp á tónlistarsmiðju þar sem við
hlustum á lögin sem voru valin
á Gullplötuna og mátum okkur
við þau. Dagný Arnalds býður svo
gestum og gangandi að taka upp
kveðjur til að senda út í geim.“
Lokahátíð í Hörpu í vor
Verkefnið mun í kjölfarið flakka
um skóla víða um land segja Sig-
ríður og Ingibjörg. „Með vorinu
verður svo lokahátíð í Hörpu þar
sem við fáum að sjá og heyra hvað
krakkar á Íslandi myndu setja á
sína eigin Gullplötu fyrir geim-
verur ef þau fengju að velja.“
Viðburðurinn hefst kl. 11 í dag í
Hörpu og aðgangur er ókeypis.
Sjá nánar á gullplatan.is. n
Ferðalag um óravíddir tónlistar og vísinda
Sigríður Sunna
Reynisdóttir
(t.v.), listrænn
stjórnandi
ÞYKJÓ og Ingi-
björg Fríða
Helgadóttir,
verkefnastjóri
barnamenn-
ingar í Hörpu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sendum tónlist út í geim! verður
haldin í Hörpu í dag.
AÐSEND/HALLDÓR BALDURSSON
Ég gerði
hávísindalega
rannsókn um daginn
þegar ég lét 24 konur
taka mjólkurþistil
kvölds og morgna í
skemmtiferð, til að
koma í veg fyrir lág-
skýjun daginn eftir að
skálað var.
Tobba Marinós
Boðið verður upp á fjölbreytta dag-
skrá í Hörpu í dag.
AÐSEND/HALLDÓR BALDURSSON
Hönnunarteymið ÞYKJÓ leiðir verk-
efnið Sendum tónlist út í geim!
AÐSEND/HALLDÓR BALDURSSON
Gullplatan var
stútfull af tónlist,
hljóðum, kveðjum og
myndefni til að kynna
mannkyn og líf á jörð-
inni.
4 kynningarblað A L LT 10. september 2022 LAUGARDAGUR