Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 46
Yfirvélstjóri og hásetar óskast
Óska eftir yfir-vélstjóra á 200 tonna netabát sem gerður
er út frá Suðurnesjum. Einnig vantar vana háseta.
Þurfa að geta byrjað í september. Uppl. í s. 892-5522
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja með reynslu af
bílaviðgerðum til starfa á verkstæði Suzuki bíla h/f.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt
og helst að geta hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir sendið tölvupóst með ferilskrá
á verkstaedi@suzuki.is fyrir 20. september
Bifvélavirki
Lögfræðingur
Umboðsmaður Alþingis mun á næstunni
ráða í starf lögfræðings.
Starfið felur einkum í sér athugun og grein
ingu á málum sem eru til meðferðar hjá
umboðs manni og samskipti þeim tengd. Í því
felst m.a. að greina þarf lögfræðileg álita
efni og gera tillögur að niðurstöðu auk þess
að inna af hendi önnur verkefni á skrifstofu
umboðs manns, s.s. ráðgjöf og leiðbeiningar
til þeirra sem leita til embættisins.
Leitað er að lögfræðingi með embættis
eða meistarapróf í greininni.
Æskilegt er að viðkomandi hafi lagt sig
eftir stjórnsýslurétti eða skyldum greinum
í námi eða hafi starfsreynslu á því sviði.
Gerð er krafa um gott vald á ritun texta á
íslensku.
Gerð er krafa um góða kunnáttu í ensku
og kunnáttu í einu Norðurlandamáli.
Um er að ræða krefjandi starf á sviði lög
fræði. Lögð er áhersla á að umsækjendur
geti unnið sjálfstætt að greiningu og úr
lausn lögfræðilegra álita efna, séu skipu
lagðir og hafi gott vald á aðferðafræði
lögfræð innar.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur til
að bera frumkvæði, ríka þjónustulund og
lipurð í mannlegum samskiptum.
Áhugasamir sem uppfylla ofangreindar
hæfnis kröfur eru hvattir til að senda inn
umsókn. Um starfskjör fer eftir kjara
samningi og nánara samkomulagi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun,
starfs feril og önnur atriði skal senda á net
fangið postur@umbodsmadur.is eða á skrif stofu
umboðsmanns Alþingis, Þórshamri, Templara
sundi 5, 101 Reykjavík, merkt: Starfsumsókn.
Þess er óskað að í umsókn um starfið verði gerð
grein fyrir þekkingu og reynslu umsækjanda í
sam ræmi við framangreint og að staðfesting um
nám fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með
26. september nk.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar
hjá umboðsmanni Alþingis í síma 510 6700.
Viltu slást í hópinn?
Menningar- og viðskiptaráðuneytið leitar að tveimur öflugum sérfræðingum.
Ráðuneytið heldur utan um málaflokka menningar, ferðaþjónustu, viðskipta
og fjölmiðla og er áhersla lögð á að skapa þeim umhverfi sem stuðlar að
velsæld og verðmætasköpun fyrir samfélagið.
Viltu stilla saman strengi?
Við leitum að sérfræðingi á skrifstofu fjármála og gæðamála.
Skrifstofan sinnir fjölbreyttum verkefnum á breiðu sviði fjármála, rekstrar
og stefnumótunar. Hún annast rekstur, mannauðsmál, stoðþjónustu og
fjármálastjórn ráðuneytisins ásamt því að hafa umsjón með fjárlagagerð,
framkvæmd fjárlaga og eftirlit með rekstri undirstofnana.
Við leitum að sérfræðingi sem mun m.a. vinna að fjármálaáætlun, fjárlögum,
fjáraukalögum, fylgiriti, áætlanagerð, eftirfylgd og eftirliti með framkvæmd
fjárlaga í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015. Starfið felst m.a.
í að halda yfirsýn yfir safnliði, samninga og önnur málefni sem heyra undir
málefnasviðið og tengjast fjármálum og rekstri.
Kemur þú auga á verðmætin?
Við leitum að sérfræðingi á skrifstofu verðmætasköpunar.
Skrifstofa verðmætasköpunar vinnur þvert á málaflokka ráðuneytisins með
verðmætasköpun, samkeppnishæfni og sjálfbærni að leiðarljósi. Hún heldur
utan um greiningu tölfræðigagna og faglegan stuðning varðandi þá mála-
flokka er heyra undir ráðuneytið. Skrifstofan kemur þannig að stefnumótun á
fjölbreyttum málefnasviðum og tengir saman menningu, viðskipti, fjölmiðla
og ferðaþjónustu.
Við leitum að sérfræðingi sem getur sinnt gagnaöflun, greiningu og komið
að verkefnastjórnun. Starfið felst í fjölbreyttum og krefjandi viðfangsefnum
þar sem viðkomandi vinnur ýmist sjálfstætt eða í teymi með öðrum sér-
fræðingum.
Allar nánari upplýsingar og hæfniskröfur eru á www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur til og með 26. september 2022.
Stjórnarráð Íslands
Menningar - og
viðskiptaráðuneytið
hagvangur.is