Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 41
Hlutverk TR er að
framfylgja lögum um
almannatryggingar, lögum
um félagslega aðstoð
og lögum um málefni
langveikra barna auk
þess að sinna öðrum
verkefnum sem stofnuninni
eru falin hverju sinni.
Nánari upplýsingar um
Tryggingastofnun má
nálgast á www.tr.is
Frekari upplýsingar um
störfin veitir Hólmfríður E.
Finnsdóttir, mannauðsstjóri
TR í síma 560 4400 eða á
holmfridur.finnsdottir@tr.is
Umsóknarfrestur er til
og með 26. september nk.
Sjá nánari upplýsingar
um störfin á starfatorg.is
og tr.is
Lögfræðingur
Hefur þú áhuga á að starfa í krefjandi lagaumhverfi þar sem
reynir á góða þekkingu á stjórnsýslurétti og öguð og vönduð
vinnubrögð? Þá gætir þú átt heima í lögfræðiteymi TR.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla stjórnsýsluerinda og álitsgerða.
• Lögfræðileg ráðgjöf á sviði almannatrygginga
og vegna réttinda á milli landa.
• Eftirfylgni með framkvæmd laga.
• Ritun greinargerða til úrskurðarnefndar
velferðarmála vegna kærumála.
Hæfniskröfur
• Fullnaðarpróf í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.
• Góð þekking á sviði stjórnsýsluréttar og Evrópuréttar er kostur.
• Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti.
• Gott vald á ensku í ræðu og riti.
• Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð eru skilyrði.
• Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni eru skilyrði.
Heilbrigðisgagnafræðingur
Ert þú þjónustulundaður heilbrigðisgagnafræðingur með
mikinn metnað til að hafa allt í röð og reglu? Þá gætir þú átt
heima í ritarateymi TR.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skráning, skönnun og meðhöndlun heilbrigðisgagna
sem og annarra gagna.
• Ritun bréfa vegna úrvinnslu mála.
• Þróun gæðaferla og verklagsreglna.
• Ráðgjöf og upplýsingamiðlun til viðskiptavina.
Hæfniskröfur
• Starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur (læknaritari).
• Reynsla af störfum sem heilbrigðisgagnafræðingur er kostur.
• Mjög góð skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
• Góð tölvukunnátta.
• Mjög gott vald á rituðu íslensku máli og góð
enskukunnátta er kostur.
• Mjög góð samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og frumkvæði.
Tryggingastofnun (TR) leitar að öflugu starfsfólki í fjölbreytt og áhugaverð
störf í krefjandi umhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og
sjálfstæði í starfi. Hjá TR er boðið upp á nútímalegt vinnuumhverfi þar sem
ríkir góður starfsandi, sveigjanlegur vinnutími og mikil samvinna.
Persónuverndarfulltrúi/lögfræðingur
Hefur þú þekkingu og áhuga á persónuvernd og getur veitt
ráðgjöf á sviði persónuverndar og innra eftirlits? Þá ætti
staða persónuverndarfulltrúa hjá TR að vera starf sem
þú ert að leita að.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Eftirlit með því að farið sé að persónuverndarlögum innan
stofnunarinnar.
• Upplýsa starfsfólk um skyldur þess samkvæmt persónu-
verndarlögum og veita ráðgjöf á sviði persónuverndar.
• Framkvæma úttektir og viðhalda vinnsluskrám.
• Eftirlit með vinnslu mála og innra eftirlit.
• Greining á öryggi við vinnslu og úrbætur.
• Vera tengiliður við Persónuvernd.
• Ritun verklagsreglna um persónuvernd.
• Önnur lögfræðileg úrlausnarefni í samráði við stjórnendur.
Hæfniskröfur
• Fullnaðarpróf í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.
• Góð þekking á sviði persónuverndar er kostur.
• Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti.
• Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð eru skilyrði.
• Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni eru skilyrði.
Sérfræðingur í erlendum málum
Hefur þú brennandi áhuga á lífeyrismálum, góða þjónustu-
lund, góð tök á erlendum tungumálum og reynslu af starfi og/
eða búsetu erlendis? Þá gætir þú verið rétta manneskjan í
teymi sérfræðinga í afgreiðslu lífeyrisréttinda á milli landa.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skráning, mat og ákvarðanataka um lífeyrisréttindi
fólks búsett erlendis.
• Ráðgjöf og upplýsingamiðlun til viðskiptavina
í síma og framlínu.
• Ritun bréfa vegna úrvinnslu mála.
• Þróun gæðaferla og verklagsreglna.
Hæfniskröfur
• Háskólapróf í tungumálum, alþjóðasamskiptum,
alþjóðafræði eða annað háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Mjög góð enskukunnátta í ræði og riti.
• Annað tungumál sem nýtist í starfi er kostur.
• Hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna.
• Mjög gott vald á rituðu íslensku máli.
• Mjög góð samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og frumkvæði.
• Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
Átt þú heima í öflugum
starfsmannahópi TR?