Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 31
Markmiðið með efnaskipta-
aðgerðum er að bæta heilsu
og lífsgæði en til þess að
tryggja varanlegan árangur
eftir aðgerð er nauðsynlegt
að innbyrða mikilvæg bæti-
efni ævilangt.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðism
álastofnuninni (WHO) er offita
eitt stærsta heilsufarsvandamál
heims hjá fullorðnum. Aukin
líkamsþyngd eykur líkur á
ýmsum kvillum sem geta haft
áhrif á líkamsstarfsemi og
heilsufar. Þegar slíkt ógnar heilsu
og aðrar leiðir til þess að missa
aukaþyngd hafa verið fullreyndar,
þá gæti þurft að framkvæma
svokallaða efnaskiptaaðgerð.
Bætt heilsa og lífsgæði
eftir efnaskiptaaðgerðir
Í efnaskiptaaðgerðum eru gerðar
breytingar á meltingarvegi til
þess að stuðla að þyngdartapi
og breytingu á hormónum sem
tengjast meltingu. Magi minnkar,
upptaka næringarefna minnkar
samhliða og tilfinning um svengd
og seddu breytist. Breytingar sem
slíkar sem gerðar eru á meltingar-
vegi geta þó haft þær afleiðingar
að næringarskortur verður til eftir
aðgerð, sérstaklega D-vítamín,
B12-vítamín, kalk og járn. Til þess
að tryggja varanlegan árangur
eftir aðgerð er nauðsynlegt að
breyta lífsstíl, huga að góðu
mataræði og innbyrða nauðsynleg
bætiefni ævilangt. Markmið efna-
skiptaaðgerða er að bæta heilsu
og lífsgæði en eitt er þó víst að
bætiefni er mikilvægur þáttur til
að takast á við daglegt amstur og
uppfylla næringarþörf.
Vítamín eru mikilvæg
til frambúðar
Virkni vítamína á mannslíkam-
ann eru margvísleg og hafa þau
ýmis jákvæð áhrif á ónæmiskerfi,
meltingu, vöxt og viðhald. Eftir
efnaskiptaaðgerðir er nauðsynlegt
að tileinka sér það að innbyrða
nauðsynleg bætiefni dag hvern til
frambúðar en Better You vítamín-
in hafa slegið í gegn víða um heim
og ekki að ástæðulausu þar sem
mikið er lagt upp úr gæðum og að
upptaka vítamína sé tryggð.
Vítamínin koma öll í formi
munnúða sem tryggja góða upp-
töku í gegnum slímhúð í munni
þar sem örsmáar sameindir frá-
sogast hratt í gegnum slímhúð
í munni og eiga þannig leið út í
blóðrás líkamans. Það gerir það
að verkum að vítamínin snið-
ganga meltingarveginn og eiga
því meltingarónot sér ekki stað.
Munnúðar sem slíkir eru einföld
leið til að innbyrða vítamín og
sérstaklega fyrir þá sem eiga erfitt
með að kyngja töflum sem og
þeim einstaklingum sem gangast
undir efnaskiptaaðgerðir.
Better You munnúðar
tryggja vítamín-búskap
D-vítamín er nauðsynlegt til að
nýta kalkið í líkamanum fyrir
tennur og bein og hefur jafnframt
áhrif á ónæmiskerfið. D3000 frá
Better You er frábær kostur eftir
efnaskiptaaðgerðir en ráðlagður
dagskammtur í D3000 sam-
svarar ráðlögðum dagskammti
eftir aðgerð samkvæmt ráðlegg-
ingum Landspítala. B12-vítamín
er að auki mikilvægt eftir slíkar
aðgerðir en það gegnir margvís-
legu hlutverki í líkama okkar.
B12-vítamín er m.a.
nauðsynlegt fyrir efnaskipti
líkamans, viðheldur heilbrigði
taugakerfis og á þátt í myndun
rauðra blóðkorna. B12-vítamínið
frá Better You hentar afar vel
eftir aðgerð, en mikilvægt er að
fylgjast með réttum gildum og
taka vítamínið eftir þörfum.
Jafnframt er járnið frá Better You
einstök blanda sem auðvelt er að
notast við og að auki mikilvægt
eftir aðgerðir en járn er m.a.
nauðsynlegt fyrir súrefnisf lutning
í líkamanum. Annar
skortur eftir aðgerðir
getur ýmist verið
fólínsýra, A-vítamín,
kalk, sink og magnesíum
en Calcium, Magnesium
og Zinc blandan frá Natures
Aid hentar vel eftir
aðgerðir. Kalk og
magnesíum er svo
nauðsynlegt fyrir
eðlilega starfsemi
taugakerfisins
ásamt því að stuðla
að viðhaldi eðlilegra beina og
tanna. Ásamt því er mikilvægt
að taka inn mikilvæg steinefni
dagsdaglega.
Better You munnúðar eftir
magaermi hafa reynst afar vel
Nína Björg hefur gengist undir
efnaskiptaaðgerð og deilir hér
með okkur sinni reynslu á Better
You munnúðum eftir aðgerð. „Í
júlí síðastliðnum fór ég í maga-
ermi, eftir slíka aðgerð er mjög
mikilvægt að taka inn mikilvæg
vítamín og steinefni dagsdaglega.
Þegar ég las mér til um munn-
úðana frá Better You ákvað ég
að prófa og byrjaði að taka inn
D3000 og er einnig byrjuð að taka
inn B12-vítamín og hefur það
gengið mjög vel og finn ég mikinn
mun á mér. Munnúðarnir hafa
hentað mér einstaklega vel eftir
aðgerðina þar sem þeir fara ekki í
gegnum meltingarveginn og valda
ekki óþægindum. Að sama skapi
finnst mér frábært hvað úðarnir
eru einfaldir og þægilegir í notkun
og ekki skemmir fyrir hvað þeir
eru góðir á bragðið. Ég er mjög
spennt að prófa mig áfram í f leiri
tegundum.“
Öll erum við ólík!
Vert er þó að muna að aðgerðir
sem slíkar eru ekki lækning á
of þyngd, en allir sem gangast
undir aðgerð þurfa að tileinka
sér breytta lífshætti. Langtíma
árangur næst einungis ef einstakl-
ingar huga vel að eigin líkama
og heilsu og taka inn mikilvæg
bætiefni til frambúðar sem og fara
í reglulegt eftirlit. Að auki er hver
og einn einstaklingur ólíkur og
er því mismunandi hvað hentar
hverjum og einum en eftir aðgerð
þarf að finna hvað hentar og læra
inn á sinn eigin líkama.
Alltaf er best að fá faglegt mat
hjá næringarfræðingi eftir slíkar
aðgerðir. n
Bætiefni nauðsynleg viðbót við efnaskiptaaðgerðir
Nína Björg Haraldsdóttir viðskiptafræðingur segir Better You munnúðana henta sér vel eftir aðgerðina og að hún
finni mikinn mun á sér eftir að hún byrjaði að taka inn D3000- og B12-vítamín í munnúðaformi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Útsölustaðir:
apótek,
heilsubúðir og
heilsuhillur
stórmarkaðanna
Munnúðarnir hafa
hentað mér
einstaklega vel eftir
aðgerðina þar sem þeir
fara ekki í gegnum
meltingarveginn og
valda ekki óþægindum.
Nína Björg
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 10. september 2022