Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 40
Forstöðumaður
reikningshalds
Helstu verkefni og ábyrgð eru:
› daglegur rekstur og starfsmannahald reikningshalds
› fjárhagsleg uppgjör, reikningshald
og kostnaðarbókhald
› gerð árs- og árshlutareikninga auk skattframtala
› upplýsingagjöf til stjórnar móðurfélags
og líftryggingafélags
› samskipti við innri og ytri endurskoðendur
› skipulag og þróun ferla auk þátttöku í
stefnumótandi verkefnum
Umsóknarfrestur er til og með 18. september nk.
Sótt er um starfið á sjova.is/starfsumsoknir.
Sjóvá 440 2000
Við leitum að einstaklingi með:
› háskólapróf á sviði viðskipta og/eða endur-
skoðunar, löggildingarpróf í endurskoðun er kostur
› víðtæka reynslu af uppgjörsvinnu og
samstæðuuppgjöri, stjórnunarreynsla er kostur
› frumkvæði, leiðtogahæfni og sjálfstæði
í vinnubrögðum
› framúrskarandi skipulags- og greiningarhæfni
› færni í framsetningu upplýsinga
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni,
sigridur.vala.halldorsdottir@sjova.is.
Við leitum að metnaðarfullum
stjórnanda í starf forstöðumanns
reikningshalds. Um er að ræða
starf sem felur í sér fjölbreytt og
krefjandi verkefni, sem og
tækifæri til að starfa með öflugu
teymi sérfræðinga og stjórnenda.
Hjá Sjóvá starfar kraftmikill og samhentur hópur starfsfólks
sem leggur sig fram um að veita viðskiptavinum afburða-
þjónustu. Við erum efst tryggingafélaga í Íslensku ánægju-
voginni og kannanir sýna að starfsánægja hjá okkur er með
því mesta sem mælist hérlendis.
Viltu vinna með
okkar yngsta
og besta fólki?
Kópavogsbær rekur 19 leikskóla og auglýsir
eftir öflugu starfsfólki.
Kópavogsbær er barnvænt samfélag þar sem mikill metnaður
er lagður í faglegt og framsækið starf innan leikskólanna.
Áhersla er lögð á öryggi, samvinnu, gæði og gleði starfsins
innan leikskólanna, börnum og starfsfólki til heilla.
Starfsfólk í leikskólum fær hvatningu og aðstoð við að auka
menntun sína til að eflast enn frekar í starfi.
Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því
markvissa þjálfun þannig að því líði vel í starfi og nái góðum
tökum á því. Allt fastráðið starfsfólk Kópavogsbæjar
fær líkamsræktarstyrk.
Fjölbreytt störf eru í boði í leikskólum Kópavogsbæjar.
Nánar um leikskólana og störfin á:
https://leikskolar-kopavogsbaer.alfred.is
kopavogur.is
Kennarar og leiðbeinendur óskast
á leikskóla í Kópavogi.