Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 34
Helstu verkefni og ábyrgð
• Yfirumsjón og stjórnun mannauðsmála.
• Ráðningar, móttaka nýliða og nýliðaþjálfun í samstarfi við stjórnendur.
• Stefnumótun, ábyrgð á þróun og eftirfylgni mannauðsstefnu.
• Hagnýting mannauðsmælikvarða sem styðja við ákvarðanatöku.
• Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a. vegna helgunar starfsfólks.
• Ábyrgð á þróun, innleiðingu og nýsköpun á sviði mannauðsmála.
• Yfirumsjón með fræðslumálum.
• Ábyrgð á jafnlaunastaðli og eftirfylgni.
Domino’s á Íslandi leitar að öflugum mannauðsstjóra til þess að leiða einstakan
hóp starfsmanna hjá einu stærsta veitingafyrirtæki landsins. Um er að ræða
krefjandi starf í líflegu umhverfi þar sem ávallt er nóg um að vera. Um Domino’s
Fyrsta verslun Domino’s Pizza á Íslandi var
opnuð þann 16. ágúst 1993 að Grensásvegi 11
í Reykjavík og fyrirtækið hefur vaxið ört síðan
þá. Í dag rekur Domino’s Pizza 23 verslanir hér
á landi. Ellefu þeirra eru í Reykjavík, ein í
Garðabæ, Mosfellsbæ og tvær í Kópavogi,
Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. Auk þess er einn
staður á Akureyri, Akranesi og á Selfossi.
Domino’s er leiðandi fyrirtæki á veitinga-
markaði og starfa hjá félaginu um 500 starfs-
menn. Lögð er áhersla á að vera úrvals
vinnustaður, ekki síst fyrir ungt fólk og mikil
áhersla á fræðslu ásamt því að gefa starfsfólki
tækifæri á að þróast áfram í starfi. Margir af
lykilstjórnendum félagins í dag hófu störf sem
almennir starfsmenn.
Hæfniskröfur
• Háskólanám sem nýtist í starfi.
• Haldgóð reynsla af mannauðsmálum.
• Framúrskarandi samskiptafærni og jákvætt viðhorf.
• Frumkvæði og fagleg vinnubrögð.
• Drifkraftur og metnaður til að ná árangri.
Umsóknarfrestur er til og með 12. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is
Umsjón með starfinu hafa: Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is)
og Hildur J. Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
ERT ÞÚ MEGA
MANNAUÐSSTJÓRI?
Skipulagsstofnun sinnir stefnumótun,
stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag og
framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu auðlinda
og vandaða byggð að leiðarljósi. Stofnunin
vinnur í víðtæku samráði við sveitarfélög,
önnur stjórnvöld og hagsmunaaðila.
Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipu
lags laga, laga um skipulag haf og strand
svæða, laga um mat á umhverfis áhrifum og
laga um umhverfismat áætlana og heyrir
undir umhverfis og auðlinda ráðuneytið.
Hjá stofnuninni ríkir góður starfsandi og í
boði er góð starfsaðstaða. Nánari upplýsingar
má finna á www.skipulag.is.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg
starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með störfunum hafa Auður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Hildur
J. Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Sérfræðingur í skipulagsgerð
og staðarmótun
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við fjölbreytt verkefni í skipulagsmálum
með áherslu á aðal- og svæðisskipulag.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt viðfangsefni og getu til að
leysa verkefni bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
Helstu verkefni:
• Ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsgerð sveitarfélaga, sérstaklega varðandi gerð
og afgreiðslu aðal- og svæðisskipulags.
• Ýmis verkefni við stefnumótun, miðlun, leiðbeiningar og kynningarmál um skipulagsmál,
sérstaklega tengt gerð aðal- og svæðisskipulags.
• Þátttaka í vinnu við þróun leiðbeininga, laga og reglugerða á sviði skipulagsmála.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem á sviði borgarhönnunar, arkitektúrs eða skipulagsfræði.
• Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi er æskileg.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu á sviði skipulagsmála.
• Færni í notkun landfræðilegra upplýsingakerfa.
• Hæfni til að hagnýta þekkingu og reynslu í ólíkum verkefnum.
• Frumkvæði, skapandi hugsun og metnaður til að ná árangri.
• Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
• Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.