Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 37
Tengiliður við umboðsmenn
Endurvinnslan hf. óskar eftir að ráða drífandi og sveigjanlegan einstakling til að sinna stöðu tengiliðs við
umboðsmenn. Umboðsmenn sjá um móttöku skilaskyldra drykkjarumbúða og eru 55 talsins, staddir víðs
vegar um landið. Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Farið
verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Samskipti og viðskiptatengsl við umboðsmenn
• Ráðgjöf til umboðsmanna
• Upplýsingamiðlun og kynning á starfsemi
• Utanumhald og skipulagning verkefna í tengslum við
umboðsmenn
• Uppgjör verkefna
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Góð tölvukunnátta, nákvæmni og skipulagshæfni
• Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð íslensku og enskukunnátta
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.
Endurvinnslan hf. var stofnuð árið
1989 og rekur skilakerfi fyrir
drykkjarumbúðir. Ástæða stofnunar
fyrirtækisins var náttúru- og
umhverfisvernd þó vonir stæðu til að
hægt yrði að endurvinna umbúðirnar
sem smám saman varð að veruleika.
Endurvinnslan sér um móttöku,
ásamt umboðsmönnum sínum,
allra einnota drykkjarvöruumbúða
hérlendis, greiðir út skilagjald,
undirbýr til útflutnings og selur til
endurvinnslu u.þ.b. 1200 tonn af áli
á ári og 1.400 tonn af plasti.
Hjá Endurvinnslunni starfa 30
starfsmenn. Nánari upplýsingar má
finna á: www.endurvinnslan.is.
Sölumaður/viðskiptastjóri
Katla matvælaiðja óskar eftir að ráða drífandi sölumann/viðskiptastjóra á fagsviði (B2B).
Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færni viðkomandi til að gegna starfinu. Farið verður með allar
umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
• Samstarf og samskipti við erlenda birgja
• Umsjón með innkaupum
• Þátttaka í vöruþróun
• Tilboðsgerð
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Reynsla af sambærilegum sölumálum
• Starfsreynsla og/eða menntun innan matvælaiðnaðar
er kostur
• Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og
frumkvæði
• Metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
• Góð tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.
Katla er fjölskyldufyrirtæki stofnað
árið 1954. Frá stofnun fyrirtækisins
höfum við lagt áherslu á gæðavörur
fyrir neytendur, en fyrirtækið
sérhæfir sig einnig í framleiðslu og
þróun lausna fyrir bakarí, kjötiðnað
og fiskiðnað.
Starfsfólk okkar er hjarta fyrir-
tækisins sem veitir viðskiptavinum
okkar persónulega og góða þjónustu
með fókus á að byggja upp traust
langtímasambönd.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.katla.is.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 10. september 2022