Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 37

Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 37
Tengiliður við umboðsmenn Endurvinnslan hf. óskar eftir að ráða drífandi og sveigjanlegan einstakling til að sinna stöðu tengiliðs við umboðsmenn. Umboðsmenn sjá um móttöku skilaskyldra drykkjarumbúða og eru 55 talsins, staddir víðs vegar um landið. Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. • Samskipti og viðskiptatengsl við umboðsmenn • Ráðgjöf til umboðsmanna • Upplýsingamiðlun og kynning á starfsemi • Utanumhald og skipulagning verkefna í tengslum við umboðsmenn • Uppgjör verkefna Helstu verkefni og ábyrgð: • Menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Góð tölvukunnátta, nákvæmni og skipulagshæfni • Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Góð íslensku og enskukunnátta Menntunar- og hæfniskröfur: Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225. Endurvinnslan hf. var stofnuð árið 1989 og rekur skilakerfi fyrir drykkjarumbúðir. Ástæða stofnunar fyrirtækisins var náttúru- og umhverfisvernd þó vonir stæðu til að hægt yrði að endurvinna umbúðirnar sem smám saman varð að veruleika. Endurvinnslan sér um móttöku, ásamt umboðsmönnum sínum, allra einnota drykkjarvöruumbúða hérlendis, greiðir út skilagjald, undirbýr til útflutnings og selur til endurvinnslu u.þ.b. 1200 tonn af áli á ári og 1.400 tonn af plasti. Hjá Endurvinnslunni starfa 30 starfsmenn. Nánari upplýsingar má finna á: www.endurvinnslan.is. Sölumaður/viðskiptastjóri Katla matvælaiðja óskar eftir að ráða drífandi sölumann/viðskiptastjóra á fagsviði (B2B). Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færni viðkomandi til að gegna starfinu. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina • Samstarf og samskipti við erlenda birgja • Umsjón með innkaupum • Þátttaka í vöruþróun • Tilboðsgerð Helstu verkefni og ábyrgð: • Reynsla af sambærilegum sölumálum • Starfsreynsla og/eða menntun innan matvælaiðnaðar er kostur • Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og frumkvæði • Metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni • Góð tölvukunnátta • Góð íslensku- og enskukunnátta Menntunar- og hæfniskröfur: Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225. Katla er fjölskyldufyrirtæki stofnað árið 1954. Frá stofnun fyrirtækisins höfum við lagt áherslu á gæðavörur fyrir neytendur, en fyrirtækið sérhæfir sig einnig í framleiðslu og þróun lausna fyrir bakarí, kjötiðnað og fiskiðnað. Starfsfólk okkar er hjarta fyrir- tækisins sem veitir viðskiptavinum okkar persónulega og góða þjónustu með fókus á að byggja upp traust langtímasambönd. Nánari upplýsingar má finna á: www.katla.is. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 10. september 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.