Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 42
Vegna aukinna verkefna viljum við ráða 2 starfskrafta í samsetningu á raftjökkum sem við framleiðum.
Handlagni skilyrði. Konur velkomnar.
2 rennismiðir óskast. Erum með 3 Okuma rennibekki, 2 Harrison rennibekki og 2 Milltronics fræsivélar allar CNC.
Kunnátta á CNC vélar skilyrði. Vélarnar eru allar nokkuð stórar.
Umsóknir og ferilskrá sendist á isotech@isotech.is
Frekari upplýsingar í síma 5556200
Rennismiðir og samsetning á Raftjökkum
lsoTækni ehf | Dalshrauni 9 - 220 Hafnarfjörður | Simi: 555 6200 | isotech@isotech.is | www.isotech.is
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi sérfræðingi með þekkingu á hreyfi- og stoðkerfi
til að stuðla að aukinni vinnuvernd á innlendum vinnumarkaði.
Hlutverk Vinnueftirlitsins er að styðja við að allt fólk komi heilt heim úr vinnu og stuðla að öruggu
og heilsusamlegu vinnuumhverfi með áherslu á forvarnir.
Mögulegt er að sinna starfinu frá starfsstöðvum Vinnueftirlitsins í Reykjavík, Reykjanesbæ, á Akranesi eða á Selfossi.
Umsóknarfrestur er til og með 22. september.
Sótt er um starfið á www.alfred.is.
Allar nánari upplýsingar um verkefni, ábyrgð og hæfniskröfur er að finna á vinnueftirlitid.is
Vinnueftirlitið leitar að öflugum
sérfræðingi í hreyfi- og stoðkerfi
Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndar-
starfs í landinu og er hlutverk þess að
tryggja að allir komi heilir heim úr vinnu.
Lykilþættir í starfsemi stofnunarinnar er
að stuðla að öruggu og heilsusamlegu
vinnuumhverfi með áherslu á forvarnir og
eftirlit með vinnuumhverfi vinnustaða og
með vinnuvélum og tækjum.
Einnig annast stofnunin fræðslu um vinnu-
vernd, virka innleiðingu öryggismenningar
á vinnustöðum, gott félagslegt starfsum-
hverfi, heilsueflingu á vinnustöðum og
markvissar aðferðir í vinnuverndarstarfi.
Gildi Vinnueftirlitsins eru frumkvæði,
forvarnir og fagmennska.
Nánari upplýsingar um stofnunina má
finna á heimasíðu hennar
www.vinnueftirlit.is.
Embassy Support Officer
We are currently looking for
an Embassy Support Officer.
Main roles and responsibilities:
Office Administration, estate manage-
ment, security and transport (80%)
IT Support (20%)
Application deadline is Sept. 25th
Fullt starf Embassy Support Officer
Sjá nánar á
Landsvirkjun leitar að verkefnisstjóra á Norðvesturlandi í teymi
nærsamfélags og náttúru. Áhersla er á frumkvæði og sjálfstæði
í vinnubrögðum í starfsumhverfi sem er bæði fjölbreytt og lifandi.
Helstu verkefni:
– Undirbúningur og framkvæmd samfélagsverkefna
– Gerð og eftirfylgni samskiptaáætlana
– Samskipti við hagsmunaaðila í nærsamfélagi aflstöðva
– Umsjón með landbótaverkefnum
– Stuðningur við þróun, innleiðingu og eftirfylgni græns reksturs
Hæfniskröfur:
– Háskólamenntun sem nýtist í starfi
– Framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæði
– Reynsla af samskiptum við fjölbreyttan hóp hagsmunaaðila
– Þekking eða reynsla af umhverfis- og/eða orkumálum er kostur
Starfsstöð verður í Blöndustöð en hægt að vinna hluta starfsins
á skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri.
Umsóknarfrestur er til og með 25. september
Sótt er um starfið á vef Landsvirkjunar
landsvirkjun.is/laus-storf
Starf
Hjálpaðu okkur að
vera góður granni