Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 33
Þrjú ný og spennandi störf
Hjá Heilsuvernd er vinnuumhverfið sveigjanlegt og í örum vexti og þróun. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni
og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en vilja jafnframt vera hluti af öflugu teymi.
Nánari upplýsingar um störfin veitir
Elín Hjálmsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og
markaðsmála elin@hv.is
Tekið er á móti umsóknum á heimasíðu Heilsuverndar
www.hv.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22. september.
Heilbrigðisgagnafræðingur
Gott tækifæri til að byggja upp nýtt starf þar sem áhersla
er á gott skipulag, samskiptahæfni og lipurð í sveigjanle-
gu starfsumhverfi.
Starfshlutfall er 80-100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Sérhæfð verkefni, gæðaskráning, upplýsingagjöf,
gagnavinnsla og frágangur
• Verkefnaumsýsla
• Afleysing móttökuritara
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
• Íslenskt starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur
• Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
• Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í samskiptum
Verkefnastjóri gæða og umbóta
Gott tækifæri fyrir einstakling með brennandi áhuga á gæðamálum
og umbótamenningu. Viðkomandi mun byggja upp og leiða gæða-
og umbótastarf þvert á starfseiningar Heilsuverndar í samstarfi við
framkvæmdastjórn félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Gæða- og umbótastarf og umsjón með gæðaúttektum
• Þátttaka í stjórnun, stefnumótun og innleiðingu breytinga
• Ábyrgð á fræðslu til starfsmanna varðandi gæðamál og umbætur
• Ferlagreining – endurskoðun, innleiðing og utanumhald verkferla
• Úttektar og umbótaverkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af gæða- og umbótastarfi
• Reynsla af gæðastarfi í heilbrigðisgeiranum er kostur
• Vottun í verkefnastjórnun er kostur
• Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
• Drifkraftur, jákvæðni og lipurð í samskiptum
Klínískur lyfjafræðingur
Gott tækifæri til byggja upp nýtt starf, vinna að nýjum
hugmyndum og framþróun í í vaxandi starfsemi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Þróun á nýju starfi klínísks lyfjafræðings
• Lyfjarýni (medication review) skjólstæðinga
• Lyfjasaga (medication reconsiliation) við flutning milli heil-
brigðisstiga (transitions of care)
• Eftirlit með hááhættusömum lyfjum (high risk medication)
• Styðja við notkun klínískra leiðbeininga
• Svara lyfjatengdum fyrirspurnum lækna og hjúkrunarfræðinga
• Fræðsla fyrir starfsmenn
Menntunar og hæfnikröfur:
• MS-próf í klínískri lyfjafræði
• Starfsleyfi sem lyfjafræðingur á Íslandi
• Starfsreynsla sem klínískur lyfjafræðingur kostur
Um Heilsuvernd:
Hjá Heilsuvernd og dótturfélögum starfar öflugt teymi sérfræðinga sem sinna fjölbreyttum störfum á sviði heilbrigðisþjónustu.
Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.
Heilsuvernd er starfrækt í björtu og nýju húsnæði á besta stað við Elliðaárdalinn.
Starfsandi og aðstaða er til fyrirmyndar og við höfum metnað til að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu við alla sem til okkar leita.
Umsóknarfrestur er til og með 21. september nk.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is.
Samtök fjármálafyrirtækja óska eftir að ráða framkvæmdastjóra
með forystuhæfileika og lipurð í mannlegum samskiptum.
Við viljum öflugan talsmann sem þekkir fjármálaumhverfið vel
og getur unnið markvisst að því að umgjörð fyrir starfsemi
fjármálafyrirtækja á Íslandi sé samkeppnishæf og skilvirk.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Tengsl í atvinnulífinu
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Frábær liðsstjórnandi
• Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti
• Góð tungumálakunnátta,
a.m.k. enska og eitt Norðurlandamál
Framkvæmdastjóri
hagvangur.is
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) eru hagsmunasamtök
25 íslenskra fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga.
SFF er aðili að Samtökum Atvinnulífsins. Tilgangur sam
tak anna er að stuðla að skilvirkri, hagkvæmri, öruggri
og samkeppnishæfri umgjörð fyrir starfsemi aðildar
fyrirtækja sinna og efla virka samkeppni, neytendavernd,
skilning og almenna þekkingu á hlutverki og starfsemi
fjármálafyrirtækja. SFF eru aðilar að Evrópsku
bankasamtökunum (EBF) og Samtökum evrópskra
tryggingafélaga (Insurance Europe) ásamt því að vera
virk í ýmsum nefndum og starfshópum.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára