Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 46

Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 46
Yfirvélstjóri og hásetar óskast Óska eftir yfir-vélstjóra á 200 tonna netabát sem gerður er út frá Suðurnesjum. Einnig vantar vana háseta. Þurfa að geta byrjað í september. Uppl. í s. 892-5522 Óskum eftir að ráða bifvélavirkja með reynslu af bílaviðgerðum til starfa á verkstæði Suzuki bíla h/f. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og helst að geta hafið störf sem fyrst. Áhugasamir sendið tölvupóst með ferilskrá á verkstaedi@suzuki.is fyrir 20. september Bifvélavirki Lögfræðingur Umboðsmaður Alþingis mun á næstunni ráða í starf lögfræðings. Starfið felur einkum í sér athugun og grein­ ingu á málum sem eru til meðferðar hjá umboðs manni og samskipti þeim tengd. Í því felst m.a. að greina þarf lögfræðileg álita­ efni og gera tillögur að niðurstöðu auk þess að inna af hendi önnur verkefni á skrifstofu umboðs manns, s.s. ráðgjöf og leiðbeiningar til þeirra sem leita til embættisins. Leitað er að lögfræðingi með embættis­ eða meistarapróf í greininni. Æskilegt er að viðkomandi hafi lagt sig eftir stjórnsýslurétti eða skyldum greinum í námi eða hafi starfsreynslu á því sviði. Gerð er krafa um gott vald á ritun texta á íslensku. Gerð er krafa um góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í einu Norðurlandamáli. Um er að ræða krefjandi starf á sviði lög­ fræði. Lögð er áhersla á að umsækjendur geti unnið sjálfstætt að greiningu og úr­ lausn lögfræðilegra álita efna, séu skipu ­ lagðir og hafi gott vald á aðferðafræði lögfræð innar. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði, ríka þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum. Áhugasamir sem uppfylla ofangreindar hæfnis kröfur eru hvattir til að senda inn umsókn. Um starfskjör fer eftir kjara­ samningi og nánara samkomulagi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfs feril og önnur atriði skal senda á net­ fangið postur@umbodsmadur.is eða á skrif stofu umboðsmanns Alþingis, Þórshamri, Templara­ sundi 5, 101 Reykjavík, merkt: Starfsumsókn. Þess er óskað að í umsókn um starfið verði gerð grein fyrir þekkingu og reynslu umsækjanda í sam ræmi við framangreint og að staðfesting um nám fylgi. Umsóknarfrestur er til og með 26. september nk. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar hjá umboðsmanni Alþingis í síma 510 6700. Viltu slást í hópinn? Menningar- og viðskiptaráðuneytið leitar að tveimur öflugum sérfræðingum. Ráðuneytið heldur utan um málaflokka menningar, ferðaþjónustu, viðskipta og fjölmiðla og er áhersla lögð á að skapa þeim umhverfi sem stuðlar að velsæld og verðmætasköpun fyrir samfélagið. Viltu stilla saman strengi? Við leitum að sérfræðingi á skrifstofu fjármála og gæðamála. Skrifstofan sinnir fjölbreyttum verkefnum á breiðu sviði fjármála, rekstrar og stefnumótunar. Hún annast rekstur, mannauðsmál, stoðþjónustu og fjármálastjórn ráðuneytisins ásamt því að hafa umsjón með fjárlagagerð, framkvæmd fjárlaga og eftirlit með rekstri undirstofnana. Við leitum að sérfræðingi sem mun m.a. vinna að fjármálaáætlun, fjárlögum, fjáraukalögum, fylgiriti, áætlanagerð, eftirfylgd og eftirliti með framkvæmd fjárlaga í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015. Starfið felst m.a. í að halda yfirsýn yfir safnliði, samninga og önnur málefni sem heyra undir málefnasviðið og tengjast fjármálum og rekstri. Kemur þú auga á verðmætin? Við leitum að sérfræðingi á skrifstofu verðmætasköpunar. Skrifstofa verðmætasköpunar vinnur þvert á málaflokka ráðuneytisins með verðmætasköpun, samkeppnishæfni og sjálfbærni að leiðarljósi. Hún heldur utan um greiningu tölfræðigagna og faglegan stuðning varðandi þá mála- flokka er heyra undir ráðuneytið. Skrifstofan kemur þannig að stefnumótun á fjölbreyttum málefnasviðum og tengir saman menningu, viðskipti, fjölmiðla og ferðaþjónustu. Við leitum að sérfræðingi sem getur sinnt gagnaöflun, greiningu og komið að verkefnastjórnun. Starfið felst í fjölbreyttum og krefjandi viðfangsefnum þar sem viðkomandi vinnur ýmist sjálfstætt eða í teymi með öðrum sér- fræðingum. Allar nánari upplýsingar og hæfniskröfur eru á www.starfatorg.is. Umsóknarfrestur til og með 26. september 2022. Stjórnarráð Íslands Menningar - og viðskiptaráðuneytið hagvangur.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.