Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 25

Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 25
Svava lýsir því hvernig hún hafi líklega skollið á borðið enda var hún með áverka í andliti en þegar hún man eftir sér sat hún í keng, gat sig hvergi hreyft og átti mjög erfitt með andardrátt. „Það voru Íslendingar á veitinga- staðnum sem heyrðu í okkur og komu strax yfir, fengu einhvern fítonskraft og drösluðu þessu tré í burtu.“ Kvalirnar voru sturlaðar Svava man eftir að hafa heyrt í síren- unum nálgast og Írisi vinkonu sína kalla að einhver yrði að hugsa um Sif sem væri orðin grá í framan enda fékk hún líka tréð yfir sig og síðar kom í ljós að hún hafði líka hrygg- brotnað og hlotið áverka á öxl. „Ég man þessar setningar en geri mér enga grein fyrir tímanum sem fyrir mér var heil eilífð. Ég bað Sillu að fara ekki frá mér og lét hana lofa að koma með mér í sjúkrabílinn.“ Lungu Svövu höfðu fallið saman og níu rif bein brotnað vinstra megin auk þess að varanlegur skaði hafði orðið á mænu. „Kvalirnar voru sturlaðar og ég átti mjög erfitt með andardrátt þegar ég var sett á sjúkrabörurnar. Silla sagði mér svo eftir á að ekki hefði átt að leyfa henni að fara með mér vegna Covid-ráðstafana. En eitthvað hef ég tekið tryllingskastið því þeir komu svo og náðu í hana. Ég man ekkert eftir þessu.“ Silla fór með Svövu í sjúkrabílinn og Sif ein í annan sjúkrabíl á meðan Guðbjörg og Íris tóku leigubíl í snar- hasti sem leið lá á sjúkrahúsið. „Svo man ég bara eftir að við vorum þarna allar og þær fengu fyrir náð og miskunn að kveðja okkur áður en til stóð að gera aðgerð á okkur sem var svo ekki gerð fyrr en daginn eftir. Ég gerði mér þó ekki grein fyrir alvarleikanum á þessum tímapunkti. Ég var látin skrifa undir að ég væri með allar tryggingar, öðruvísi færi ég ekki í aðgerð.“ Hálftíma heimsóknartími Stelpurnar létu aðstandendur vita af slysinu en Svava, Sif og Guðbjörg voru símalausar enda hafði símum þeirra verið rænt á slysstað á meðan á öllum ósköpunum stóð. „Bjössi, maðurinn minn, fór strax að leita leiða til að komast út til mín sem var ekki auðvelt á þessum Covid-tímum. Hann komst ekki út fyrr en á þriðjudeginum og heim- sóknartími sjúkrahússins var í 30 mínútur, frá klukkan hálf tólf til tólf. Stelpurnar voru þó búnar að biðja um að þeir fengju undanþágu til að koma beint af f lugvellinum seinnipartinn. Það var dásamlegt að fá hann,“ segir Svava. „Þetta var bara ógeðslega erfitt. Við vissum ekkert hversu lengi okkur yrði haldið úti og á tímabili voru foreldrar mínir að spá í hvort þau ættu að koma líka út. Við áttuðum okkur svo á því að á meðan við værum á gjörgæslu væri aðeins leyfilegt að heimsækja okkur í hálftíma á dag. En ef við yrðum færðar á almenna deild væru engar heimsóknir leyfðar sem hljómar mjög öfugt miðað við allt. Svava segist aldrei fyrr hafa legið á sjúkrahúsi og því ekki endi- lega vitað hvernig slík dvöl ætti að ganga fyrir sig. „Ég vissi því ekki að það væri æskilegt að setja mig í stuðningssokka upp á bjúgsöfnun og hreyfa fætur en ekkert slíkt var gert þessa átta daga sem ég lá á bakinu og fékk aðeins að rísa örlítið upp þegar ég var mötuð og drakk kaffi með röri.“ Tungumálaörðugleikar hafi gert henni erfitt fyrir en túlkur kom aðeins hálftíma á dag, eins hafi ekkert verið við að vera á gjör- gæslunni þar sem hún hafi aðeins getað starað á veggina og hlustað á pípið í tækjunum í átta daga. „Ég fékk þó síma þegar Bjössi kom til að stytta mér stundir og gat verið í sambandi við fólkið mitt, það var ómetanlegt. Sif var færð við hlið mér eftir aðgerðirnar og við móktum bara þarna í einhverju lyfjamóki og langaði að fara heim. Við lifðum fyrir þennan hálftíma á dag sem við fengum með mönn- unum okkar.“ Sjúkraflugið heim til Íslands Slysið varð þann 12. september 2021 og átta dögum síðar, eða þann 20. september, voru vinkonurnar f luttar til Íslands með sjúkraflugi, hvor á sinn spítalann. „Pínulítil vélin kom frá Þýska- landi með tveimur læknum og ég man að ég hugsaði hvernig í veröld- inni þeir myndu koma okkur þarna inn á börum. Flugið var eins gott og það gat orðið og ég fékk verkjastill- andi lyf um leið og vart varð við ókyrrð,“ segir Svava en lýsir skíta- veðri þegar lent var á Íslandi. „Ég skalf eins og hrísla, bæði af kulda og spennufalli yfir að vera komin heim.“ Svava var færð á Landspítala í Fossvogi og enn og aftur settu Covid-reglur strik í reikninginn því við tók fimm daga einangrun. „Fjölskyldan fékk reyndar undan- þágu til að koma daginn eftir að ég kom, en íklædd hlífðarklæðnaði.“ Sambýlismaður Svövu var enn úti á Tenerife og komst ekki heim fyrr en tveimur dögum síðar en foreldrar hennar og synir höfðu þá heimsótt hana. „Það var best í heimi að fá þau en líka ógeðslega erfitt. Það var einn- ig erfitt fyrir þau að sjá mig svona slasaða,“ segir Svava og f lettir upp mynd af sér frá spítalanum þar sem áverkar í andliti eru áberandi. Öryggi að koma á Landspítalann Hún segir mikinn feginleika hafa fylgt því að komast á spítala hér á landi, þar sem hún skildi starfsfólk þó að skýringar lækna á stöðunni hafi stundið vafist fyrir henni, jafn- vel á móðurmálinu. „Mér fannst ég örugg. Það þurfti að vinda ofan af ýmsu og eftir að hafa legið í átta daga án þess að fætur mínir væru hreyfðir var mér tilkynnt að þau ætluðu að láta mig í stuðningssokka, hreyfa fætur og hjálpa mér að setjast upp. Það var mjög skrítin tilfinning og mér leið eins og ég væri í lausu lofti, var völt og svimaði.“ Svava fékk tveggja kílóa lóð sem nota átti í styrktaræfingar og eftir að vera vakin klukkan sex á morgnana fyrir blóðprufur og aðrar mælingar nýtti hún tímann fram að morgunmat klukkan níu alla daga í að lyfta lóðum. Á spítalanum á Tenerife var Svövu sagt að það gæti tekið átta til tólf vikur fyrir taugasjokkið að jafna sig og lítið væri hægt að segja til um framvinduna fyrr. „Ég fékk svipaðar skýringar hér heima. Vitað var að mænan væri illa sködduð og brot í hryggjarlið en í aðgerðinni úti var ég spengd á hrygg. Það var alltaf talað um átta til tólf vikur en ég var þó farin að átta mig á því að þetta væri líklega verra en þeir þyrðu að segja við mig. Þeir voru eflaust að passa að taka ekki frá mér vonina. Ég hugsaði því með mér: Ég ætla að undirbúa mig fyrir hið versta og vona það besta.“ Þú ert ekki fædd í gær Þann 8. október var Svava f lutt í endurhæfingu á Grensás þar sem hún var næstu fjóra mánuði og svo í kjölfarið á dagdeild í aðra fjóra mánuði. „Það var eiginlega ekki fyrr en eftir nokkrar vikur í endurhæfingu á Grensás að Páll E. Ingvarsson læknir sagði við mig: „Þú ert ekki fædd í gær og ert líklega búin að átta þig á stöðunni.“ Hann sagði jafnframt að ef eitthvað gengi til baka væri það plús en við myndum vinna út frá alskaða. Í lok október komu til mín tveir fulltrúar SEM samtakanna, Sam- taka endurhæfðra mænuskaddaðra, þau Arnar Helgi Lárusson, formaður samtakanna, og Aðalbjörg Guð- geirsdóttir. Það var rosalega gott að hitta þau enda svakalega jákvæð og peppandi. Hann Arnar Helgi er auðvitað ótrúlegur og sagði við mig: „Þú skalt bara aldrei gleyma því að þú getur gert allt! Þú getur kannski ekki labbað – en það þarf ekkert að stoppa þig!“ Ég hugsaði með mér: Þetta er bara svolítið rétt hjá honum,“ segir Svava sem viðurkennir að hafa sveiflast upp og niður tilfinningaskalann og í raun farið í gegnum ákveðið sorgarferli. Syrgði að geta ekki gengið á fjöll „Ef ég skoðaði myndir úr fjallgöng- um syrgði ég það að geta til dæmis aldrei skottast upp á fjöll aftur. Ég hef alltaf verið virk og er ekkert alltaf að bíða eftir að einhver nenni að koma með mér. Ég fer þá bara ein. Ég er svolítið með strax-veikina, ef mig langaði að fara út að leika fór ég bara út að leika en nú er ég allt í einu ekki með þau tæki og tól sem þarf til þess. Ég ætla að finna mér eitthvað annað að gera. Ég er til að mynda búin að fara tvisvar með Arnari að hjóla á þar til gerðum hjólum og það var algjörlega geggjað,“ segir Svava og bætir við að mikil frelsistilfinn- ing hafi gagntekið hana. „Ég fór með honum og Örnu Sigríði í fyrra skiptið og ég hugsaði með mér því- líkar fyrirmyndir og frábær félags- skapur þau væru!“ Þess má geta að téð Arna Sigríður og Arnar Helgi eru bæði öflugt handahjólreiðafólk eftir mænuskaða. „Það eru margir í verri stöðu en ég. Það var einhver sem vakti yfir mér og vil ég trúa því að það hafi verið amma mín og alnafna og geri enn. Ég var ekki feig. Ég er með hausinn og hann er alveg enn þá í lagi og ég er með hendurnar mínar. Skaðinn minn er frá mitti og niður úr. Þetta hefði alveg getað verið verra. Ég hefði alveg getað komið heim í duftkeri – þessi lína er svo ofboðslega fín. Fékk annað tækifæri Við verðum að þakka fyrir það sem við höfum. Ég fékk annað tækifæri – ég virkilega horfi á það þannig. Það var ómetanlegt að fá skilaboð frá fjölskyldu, vinum og ótrúlegasta fólki sem ég hafði ekki heyrt frá í mörg ár og það stytti mér sannar- lega stundirnar á spítalanum. Bara það að fólk væri að hugsa til mín, það hjálpaði ótrúlega mikið. Þegar ég svo mátti loks fara að hitta fólk sagði það oft: „Ég veit ekki hvað ég á að segja.“ Og ég svaraði: „Gefðu mér bara knús.““ Svava segir einangrunina vegna Covid ekki hafa reynt minna á. „Ég er mikil félagsvera og finnst gott að vera í kringum fólkið mitt. Ég vil geta knúsað það og hafa einhvern hjá mér.“ Svava lætur vel af langri endur- hæfingunni og dvölinni á Grensás- deild. „Starfsfólk Grensás er englar í mannsmynd og það var svo vel hugsað um mig að mér fannst svo- lítið erfitt að útskrifast endanlega og fara úr þeim þægindaramma sem var þar,“ segir hún og hlær.  Pálmatrés toppurinn sem féll fyrirvaralaust á borð vinkvennanna. Hægri myndin sýnir hversu hátt hann trónaði, heila sex metra. Vinkvenna hópurinn daginn fyrir slysið. Íris Huld, Sif, Svava, Silla og Guðbjörg. MYND/AÐSEND Ég heyrði bara stelp- urnar öskra upp yfir sig: „Guð minn góður, Svava!“ og Silla kom að mér, hélt í höndina á mér þegar ég sagði við hana: „Ég finn ekki fyrir fótunum.“ Við vorum nýbúnar að leggja frá okkur símana eftir að hafa skoðað matseðlana þar, þegar ég skyndi- lega gat ekki andað. Helgin 25LAUGARDAGUR 10. september 2022 FRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.