Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 49
Skrifstofustjóri á skrifstofu ráðuneytisstjóra Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra. Skrifstofan hefur umsjón með samhæfingu á starfsemi ráðuneytisins, undirbýr og fylgir eftir áherslum ráðherra í starfsemi þess og leiðir umbótastarf innan ráðuneytisins með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði stjórnsýslu og stjórnsýsluhátta. Skrifstofan fer með yfirstjórn löggjafarmála innan ráðuneytisins og lögfræðilegra úrlausnarefna, s.s. vegna þingmála, reglugerða, úrskurðamála og dómsmála. Skrifstofan fer með mál er varða dagskrá og þingstörf ráðherra, ber meginábyrgð á samskiptum við Alþingi og umboðsmann Alþingis svo og almenna þróun stjórnsýsluhátta innan ráðuneytisins.. Þá eru mannauðsmál innan ráðuneytisins og gagnvart forstöðumönnum undirstofnanna á skrifstofunni. Skrifstofan sinnir jafnframt sérstökum tímabundnum úrlausnarefnum og áherslumálum er ráðuneytið fæst við í samstarfi við aðrar skrifstofur ráðuneytisins og önnur ráðuneyti eftir atvikum, s.s. vegna opinberra sóttvarnaráðstafana. Helstu verkefni og ábyrgð Skrifstofustjóri hefur yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar, ber ábyrgð á að leiða faglegt starf, stýra daglegri framkvæmd og tryggja rétta stjórnsýsluframkvæmd. Hann leiðir samstarf við aðrar skrifstofur, önnur ráðuneyti, hagaðila og aðra innlenda og erlenda aðila er koma að málefnum skrifstofunnar. Skrifstofustjóri tekur þátt í nefndarstörfum og innlendu og erlendu samstarfi. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára í senn frá 15. nóvember 2022. Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættispróf í lögfræði eða grunn- og framhaldspróf í lögfræði er áskilið. Viðbótarmenntun er áskilin. • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af stjórnskipunarrétti og stjórnsýslurétti er áskilin. • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er áskilin. • Reynsla af gerð lagafrumvarpa og reglugerða er skilyrði. • Farsæl reynsla af skipulagi og stjórnun verkefna. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Þekking eða reynsla af málefnasviðum heilbrigðisráðuneytisins. • Metnað og vilja til að ná árangri. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt og lausnamiðað viðhorf. • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góð kunnátta í ensku og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í embættið. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur auk afrita af prófskírteinum. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2022. Starfshlutfall er 100% Upplýsingar um embættið veitir Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri asta.valdimarsdottir@hrn.is. Stjórnarráð Íslands Heilbrigðisráðuneytið Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í meira en 50 ár hagvangur.is ATVINNUBLAÐIÐ 17LAUGARDAGUR 10. september 2022
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.