Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 70
kom platan Circus út, og ári seinna
fylgdi Britney plötunni eftir á kynn-
ingarferðalagi á heimsvísu.
Framleiðni án frelsis
Á þeim þrettán árum sem hafa liðið
frá sjálfræðissviptingu Britney,
hefur hún sent frá sér heilar þrjár
plötur. Þá stóð hún fyrir „residen-
síu“ í Las Vegas, fastri tónleikaröð
þar sem hún tróð upp kvöld eftir
kvöld. Britney tók þátt í sjónvarps-
þættinum „The X-factor“ árið 2012,
sem dómari. Þótti fylgjendum
#FreeBritney margt benda til að hún
væri fullfær um að hugsa um sjálfa
sig og vel það, í ljósi fyrrgreindra
vinnuafkasta.
Fylgjendur #FreeBritney-hreyf-
ingarinnar má finna um allan heim
og samanstendur hópurinn ekki
eingöngu af aðdáendum tónlistar
Britney Spears. Nokkuð stór hluti
hópsins er áhugafólk og jafnvel fag-
fólk á sviði mannréttindamála. Á
meðan á baráttunni stóð fóru með-
limir hópsins yfir opinber gögn sem
sneru að máli Britney, ræddu við
fjölmiðla og héldu opnar málstofur
á netinu.
Ýmsar kenningar f lugu um net-
heima um aðstæður og heilsu Brit-
ney Spears. Oftar en ekki voru þær
afskrifaðar sem samsæriskenningar.
Árið 2019 gerðu grínistarnir Tess
Barker og Barbara Gray hlaðvarps-
þátt þar sem þær krufðu Instagram-
aðgang Britney, aðgang sem þykir í
meira lagi sérstakur. Britney var þar
alltaf inni á heimili sínu og sýndi
dansspor í magabol, með farðann
í misgóðu ástandi og áberandi hár-
lengingar. Myndböndin eru f lest
keimlík að efnistökum og eiga það
sameiginlegt að vekja spurningar
áhorfandans. Efnið gaf kenninga-
smiðum byr undir báða vængi og
margir töldu hér um að ræða leyni-
legt kall á hjálp, og athugasemdir
hrönnuðust inn, spurningar á borð
við: „Britney, er allt í lagi?“ og „Settu
inn rósa-tjákn ef þú þarft hjálp.“
Boltinn fór að rúlla þegar lög-
fræðingur sem vann að máli Britney
árið 2008 setti sig í samband við
þáttarstjórnendur með nafnlausri
ábendingu. Það sem hafði verið
samsæriskenning fram að þessu leit
nú út fyrir að vera eitthvað annað og
stærra.
Ábendingin innihélt meðal ann-
ars upplýsingar um að Britney hefði
verið vistuð á geðdeild gegn vilja
sínum auk upplýsinga um lyfja-
þvinganir.
Sagan af sjálfræðisbaráttunni
Í ágúst 2020 kallaði lögmaður
Britney Spears eftir því að Jamie
Spears, faðir söngkonunnar, yrði
leystur frá stöðu sinni sem lögráða-
maður dóttur sinnar. Jamie svaraði
spurningum fjölmiðla um málið
og sagði #FreeBritney-hreyfinguna
vera brandara.
Í febrúar 2021 gaf framleiðand-
inn Sky út heimildarmyndina
„Framing Britney Spears“ sem olli
miklu fjaðrafoki. Mál Britney var
skyndilega á allra vörum og kast-
ljósinu ekki síður beint að fólkinu
í lífi Britney og helst fjölskyldu
hennar.
Þann 17. júní 2021 var haft eftir
Britney að hún hefði ekki hugmynd
um hvort hún myndi nokkurn tím-
ann snúa aftur á svið.
Þá f lutti hún tilfinningaþrung-
inn vitnisburð fyrir dómstólum
þann 23. júní, þar sem hún sagði
aðstæður sínar niðurlægjandi og
að hún þráði að endurheimta líf
Það sem hefur verið
samsæriskenning fram
að þessu lítur nú út
fyrir að vera eitthvað
annað og stærra.
Britney Spears hefur sent
frá sér nýtt lag í samstarfi
við bresku krókódílarokk-
andi poppgoðsögnina Elton
John. Þetta markar mögulega
nýtt upphaf á ferli prinsessu
poppsins sem hefur verið
þyrnum stráður.
Bandaríska söngkonan
Britney Spears hefur
verið fastagestur í heims-
pressunni síðan hún sló
fyrst í gegn í september
árið 1998 með laginu Hit me Baby
One More Time. Eins og gengur
og gerist með poppstjörnur hefur
klæðaburður hennar verið milli
tannanna á fólki, einnig ástarsam-
bönd, vinasambönd, neyslumynst-
ur, geðheilsa og holdafar.
Í áranna rás hefur æ minna farið
fyrir umfjöllun um tónlist Britney
Spears. Þess í stað hefur stormasamt
einkalíf söngkonunnar verið í fókus.
Stormurinn náði hámarki sínu með
#FreeBritney-hreyfingunni, skipu-
lögðum alþjóðlegum fjöldamót-
mælum sem hófust á samfélags-
miðlum.
Veikindi eða vinnuþrælkun
Mótmælin sneru í upphafi að kenn-
ingu þess efnis að sjálfræðissvipting
Britney frá 2008 væri ólögmæt og í
eðli sínu mannréttindabrot. Að fjöl-
skylda söngkonunnar væri að mis-
nota aðstöðu sína og nota hana sem
eins konar vinnuþræl. Málið endaði
með endurupptöku fyrir dómstólum
og fór svo að Britney endurheimti
sjálfræði sitt á ný í nóvember 2021.
Elstu rætur #FreeBritney-hreyf-
ingarinnar má rekja til ársins 2007.
Þá var Britney heimsfræg popp-
stjarna og jafnframt ung móðir
tveggja sona, sem brotnaði saman
undan áreiti og álagi fyrir augum
heimspressunnar.
Bloggarinn Cara Cunningham
deildi myndbandi þar sem hún bað
fólk að „láta Britney í friði“, á ensku:
„Leave Britney Alone.“ Bónin varð
að frasa og Cara Cunningham var
dregin sundur og saman í háði.
Ljóst er að tíðarandinn var annar
og umræðan um geðheilsu og fjöl-
miðla á ólíkt öðrum stað en í dag.
Þess ber að geta að Cunningham
náði að stíga ölduna ferlinum í hag
og varð gríðarlega vinsæl á sam-
félagsmiðlinum sáluga MySpace og
líka á YouTube.
Skilnaður og sjálfræðissvipting
Britney var í upphafi frekar klass-
ískt bandarískt ungstirni. Ímynd
hennar dansaði á línunni milli jóm-
frúar og dræsu og hið gljáfægða plan
plöturisans gekk eins og í sögu. Max
Martin-smellir og verksmiðjupopp í
hæsta gæðaflokki.
Britney giftist dansaranum
Kevin Federline árið 2004. Ári
seinna eignaðist hún eldri soninn,
Sean Pres ton, og sama ár náði ferill
hennar hámarki með Grammy-
verðlaunum fyrir smellinn Toxic.
Árið 2006 fæddist Jayden James og
tveimur mánuðum eftir fæðingu
barnsins sótti Britney um skilnað
frá barnsföður sínum.
Fjölmiðlar birtu partímyndir
af Britney sem tók virkan þátt í
skemmtanalíf inu og umgekkst
samkvæmisljón á borð við Paris
Hilton. Ljósmyndarar eltu hana á
röndum. Árið 2007 fékk Britney
aðstoð á meðferðarstofnun í tví-
gang. Fjölmiðlar náðu myndum af
henni snoða sig inni á hárgreiðslu-
stofu í Los Angeles. Skömmu seinna
fór hún aftur í meðferð. Um svipað
leyti missti Britney forræði yfir
börnunum sínum tveimur. Hennar
f immta plata kom út skömmu
seinna og hún flutti lagið „Gimme
More“ á MTV Video Music Awards,
við litla hrifningu gagnrýnenda.
Árið 2008 var Britney lögð tvisvar
inn á geðdeild, og svo fór að Jamie
Spears faðir hennar sótti um for-
ræði yfir fullorðinni dóttur sinni.
Hann tók yfir fjárráð dótturinnar
en hvergi var gefið upp af hvaða toga
veikindi hennar væru. Í desember
Nína
Richter
ninarichter
@frettabladid.is
Britney Spears
skaust upp á
stjörnuhimininn
ung að árum.
Hún hefur unnið
í skemmtana
bansanum frá
tíu ára aldri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Mörgu ósvarað
um frelsisbaráttu
Britney Spears
30 Helgin 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ