Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 82
njall@frettabladid.is
Lucid rafbílaframleiðandinn hefur
tilkynnt um nýja útgáfu Lucid Air
sem verður með þremur rafmót-
orum. Það er greinilegt að bílnum
er ætlað að keppa við Tesla Model
S Plaid enda verður hann hvorki
meira né minna en 1.200 hestöfl.
Það þýðir að um öflugasta fólksbíl
í heiminum er hér að ræða.
Lucid hafði frumsýnt þriggja mót-
ora útfærslu áður árið 2020 en engar
afltölur lágu þá fyrir. Að aftan verða
tveir rafmótorar, einn á hvort hjól,
og eru þeir 500 kW. Mótorarnir eru
sjálfstæðir þannig að á meðan annar
er að skila fullu afli getur hinn verið
að draga úr hraða sem getur haft
áhrif á hvernig bíllinn tekur beygj-
ur. Að framan er sami rafmótor og
í Lucid Air Dream sem skilar 670
hestöflum. Sapphire með sín 1.200
hestöfl mun því geta farið í 100 km
á undir tveimur sekúndum og í 160
km á undir fjórum sekúndum. Búast
má við kvartmílutíma undir 9 sek-
úndum og hámarkshraða vel yfir 320
km á klst. Til að ráða við aflið og þau
2.400 kíló sem bíllinn vegur verður
Sapphire með 16,5 tommu keramik
bremsudiskum og tíu stimpla
bremsudælum að framan. Engar
tölur um drægi hafa verið birtar en
bíllinn verður frumsýndur á næsta
ári. Áætlað er að verð bílsins verði í
kringum 35 milljónir króna í Banda-
ríkjunum. n
Air Sapphire verður
tólf hundruð hestöfl
Lucid Air Sapphire verður öflugast fólksbíllinn á markaði þegar hann fer í
sölu á næsta ári. MYNDIR/ANTUAN GOODWIN
Hvor bremsudæla að framan verður
með tíu stimplum utan um 16,5
tommu keramikdiska.
njall@frettabladid.is
Jeep notaði vikuna til að kynna
þrjá nýja bíla og stefnir líka á að
kynna fjóra nýja raf bíla á komandi
árum. Einn þeirra er Wagoneer S
sem verður f laggskip merkisins í
raf bílum. Mun hann hafa um 650
km drægi og keppa við bíla eins
og BMW iX, Mercedes EQS SUV og
Audi e-tron.
Miðað við myndir sem sýndar
voru af bílnum á hann fátt sam-
eiginlegt með núverandi Jeep
Wagoneer. Að vísu er sjö arma
grillið á sínum stað en nú er hægt
að kveikja á því. Fyrir ofan það er
ljósarönd og þar fyrir ofan Wago-
neer merkingin. Afturendinn er
nokkuð kúptur en það er falið með
stórri vindskeið sem hönnuð er til
að draga úr titringi á loftinu fyrir
aftan bílinn.
Undirvagninn verður nýi STLA
undirvagninn frá Stellantis en
hann ræður við yfir 100 kWst raf-
hlöðu. Hann getur verið með tvo
rafmótora allt að 592 hestöf l og
hröðun upp á aðeins 3,5 sekúndur
í hundraðið.
Bíllinn verður frumsýndur á
næsta ári en framleiðsla fyrir bæði
Ameríku- og Evrópumarkað hefst
ári seinna. n
Jeep Wagoneer S verður rafdrifinn lúxusjeppi
Nissan frumsýndi í vikunni
næstu kynslóð hins sjö sæta
X-Trail. Hann verður í boði
með e-Power tvinntækninni
sem samanstendur af 1,5 lítra
bensínvél með forþjöppu
sem sér um að halda 2,1 kWst
rafhlöðu fullhlaðinni. Vélin
sér aldrei um að drífa hjólin
en þess í stað sér 201 hestafla
mótor um að knýja fram-
hjólin áfram.
njall@frettabladid.is
Hægt verður að fá bílinn með drif
á einum öxli eða báðum en X-Trail
kemur á sama CMF-C undirvagni
og Qashqai. Að sögn Nissan er upp-
takið meira í ætt við raf bíl og er
hann um átta sekúndur í hundraðið
með framdrifinu. Miðað við bland-
aðan akstur eyðir bíllinn aðeins um
4,8 lítrum á hundraðið og CO2 er
um 132 g/km. Með mótor á báðum
öxlum verður hann 210 hestöfl og
fer á sjö sekúndum í hundraðið, en
sú útgáfa kallast e-4ORCE. Að sögn
Nissan er e-4ORCE 10.000 sinnum
sneggra að bregðast við en hefð-
bundið fjórhjóladrif sem þýðir betri
aksturseiginleika.
Einnig verður hægt að fá X-Trail
með sömu 1,5 lítra bensínvélinni
með mildri tvinntækni, en þann-
ig er hún 161 hestafl og með CVT
sjálfskiptingu. Sú útgáfa verður 9,6
sekúndur í hundraðið. Hægt verður
að panta bílinn seinna í þessum
mánuði en fyrstu eintökin verða
afhent í október í Evrópu. n
Nissan sýnir nýjan X-Trail
Engar myndir af innanrými bílsins voru sýndar að þessu sinni en Wagoneer S
gæti jafnvel verið átta manna miðað við stærð botnplötunnar.
Að innan verður
12,3 tommu
skjár í mæla-
borði og einnig
í miðjustokk,
ásamt 10,8
tommu fram-
rúðuskjá.
Nissan X-Trail sækir mikið í útlit nýs Qashqai með grönnum aðalljósum og
V-laga grillinu en hann kemur líka með e-Power tvinntækninni.
njall@frettabladid.is
Model Y fékk hæstu heildareinkunn
af öllum ökutækjum sem voru
prófuð að þessu sinni hjá Euro
NCAP. Model Y náði 98% árangri
í öryggisaðstoð sem metur virkt
öryggi ökutækja, þar á meðal getu til
að forðast slys, draga úr meiðslum og
koma í veg fyrir að ökumenn aki út
af. Prófið var framkvæmt með Model
Y sem búin er Tesla Vision-tækninni.
Model Y náði einnig 97% árangri
í f lokki verndar á fullorðnum
farþegum sem var það hæsta af
öllum prófuðum ökutækjum. n
Fimm stjörnur
hjá Tesla Model Y
42 Bílar 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐBÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 10. september 2022 LAUGARDAGUR