Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 84

Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 84
Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fyr irv ar a. RómÍtalía 595 1000 www.heimsferdir.is 6. október í 4 nætur 129.850 Flug & hótel frá 4 nætur Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is Laser andlitslyfting styrkir húðina með því að örva nýmyndun kollagens og eykur teygjanleika með því að bæta elastín. Við það lyftist húðin, andlitslínur minnka og húðin verður fallegri. Tryggðu þér tilboðið með því að bóka tíma á www.hudin.is eða síma 519-3223 20% afsláttur af laserlyftingu Verið velkomin! *gildir út september * Stund milli stríða nefnist nýj- asta bók Guðna Th. Jóhannes- sonar. Í bókinni rekur forseti Íslands sögu landhelgis- málsins og þorskastríðanna af sanngirni og hlutlægni. tsh@frettabladid.is Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannes- son, sendi á dögunum frá sér bókina Stund milli stríða: Saga landhelgis- málsins, 1961–1971. Í bókinni fjallar Guðni um sögu landhelgismálsins, útfærslu fiskveiðilögsögunnar og fyrsta þorskastríðið en hún byggir að hluta á doktorsrannsókn for- setans í sagnfræði á Englandi undir lok síðustu aldar. „Ég hófst handa við öflun heim- ilda hér og þar og alls staðar, á skjalasöfnum og ræddi við sjónar- votta og þá sem komu við sögu, og lagði drög að því meðfram öðru að skrá þessa sögu. Ég skrifaði bókina Þorskastríðin þrjú, yfirlit um land- helgismál á síðustu öld, sem kom út árið 2006. Svo var ég kominn á fullt fyrir allnokkrum árum en þá tóku örlögin í taumana og ég fór í forseta- kjör,“ segir Guðni um aðdraganda bókarinnar. Hann bætir því við að á forseta- stóli hafi hann fundið fyrir nauðsyn þess að hafa eitthvað til að sleppa frá amstri dagsins og hafi því haldið skrifunum áfram. „Svo var það auðvitað þannig þegar að heimsfaraldurinn skall á að það snarfækkaði ferðum, við- burðum og fundum. Þótt það væri enn þá nóg að gera þá fann ég stundir til þess að ljúka við þetta rit. Hafði satt að segja mjög gaman af því að setja það saman og vona að það verði viðbót við það sem þegar hefur verið skráð og skrifað um þessa merku sögu. Saga landhelgis- málsins er þjóðarsaga.“ Merkur þáttur samtímasögu Guðni hóf rannsóknir sínar á land- helgismálinu fyrir um aldarfjórð- ungi. Spurður hvaðan áhuginn á þessu tímabili þjóðarsögunnar komi kveðst forsetinn alltaf hafa haft mikinn áhuga á sagnfræði auk þess sem nokkrir í hans frændgarði hafi verið í Landhelgisgæslunni á tímum þorskastríðanna. „Þetta er bara það merkur þáttur í samtímasögunni að þegar ég var að leita mér að efni til þess að takast á við í doktorsnámi þá staldraði ég við þessa sögu. Vildi segja hana eins og ég tel að svona sögu eigi að segja. Með því að leita heimilda sem víð- ast, horfa á söguna frá ólíkum sjón- arhornum, ekki búa til einhverja glansmynd. Okkur Íslendingum hefur stundum hætt til að segja sem svo að við höfum alltaf staðið saman öll sem eitt í gegnum þessi átök öll en sú var alls ekki raunin.“ Ertu með bókinni að reyna að leið- rétta einhverjar mýtur um þennan kaf la Íslandssögunnar? „Ég er að minnsta kosti að segja söguna eins og ég tel að hún verði best sögð. Ég hef notið þess að lesa frásagnir þeirra sem voru á vett- vangi, spjalla við þá og ber ítrustu virðingu fyrir þeim öllum, en ég tel hins vegar að með því að f jarlægjast þessa átakasömu tíma þá öðluðumst við k a nnsk i a nna n skilning á því hvers vegna fór sem fór. Það er alltaf þann- ig að þeir sem voru í eldlínunni hverju sinni sjá viðburði, þróun, al la atbu rða- rás frá sínum sjónarhóli, eða jafnvel stjórn- palli. Svo koma aðrir síðar og fá annað sjónar- horn. Ég held því aldrei fram að ég sé einhver handhafi sannleikans, en ég reyni þarna að segja þessa sögu af sanngirni og hlutlægni og án þess að sagan sé notuð eins og ein- hvers konar vopn í baráttu okkar við erlenda andstæðinga.“ Finnur eigin stund milli stríða Spurður um hvernig það fari saman að vera í senn forseti Íslands og sagnfræðingur viðurkennir Guðni að það geti að vissu leyti verið snúið enda sé nánast skrifað inn í verklýsingu þjóðhöfðingja að vera jákvæður og blása þjóð sinni eld- móði í brjóst. „En ég er sannfærður um það að við högnumst aldrei á því til lengri tíma að búa til einhverja glans- mynd af afrekum þjóðarinnar í bráð og lengd því það kemur okkur bara í koll. Við eigum að horfa raun- sæjum augum á liðna tíð. Við eigum að viðurkenna og horfast í augu við það sem miður fór. Við eigum að sætta okkur við það að hér er stundum hver höndin uppi á móti annarri, jafnvel þegar mikil- vægir þjóðar- hagsmunir eru í húfi. Við eigum að kappkosta að segja söguna í öllum sínum blæbrigðum. Við eigum ekki að hafa auðar síður í þjóðarsögunni og ef ég get lagt mitt lóð á vogarskál- arnar í þeim efnum þá er það kannski jafnvel bara betra að ég sé í þeirri stöðu sem ég er í núna um stundir.“ Saga landhelgis- málsins og þorskastríðanna þriggja er umfangsmikil saga sem teygir sig yfir nokkra áratugi. Guðni heitir því að klára söguna og mun næsta bindi fjalla um átökin á 8. áratugnum þegar fiskveiðilögsagan var færð út í 50 mílur og að lokum út í 200 mílur. „Ég er í launalausu leyfi við Háskóla Íslands og allt tekur enda, líka minn ferill á forsetastóli, en þá held ég bara áfram að skrifa þessa sögu,“ segir hann og bætir því við að stefnan sé að næsta bindi komi út eftir tvö ár. „Svo tek ég upp þráðinn þar sem frá var horfið í þessu bindi og held áfram að finna mína eigin stund milli stríða á forsetastóli.“ n Saga landhelgismálsins er þjóðarsaga Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, fann sér sína eigin stund milli stríða í Covid-faraldrinum til að vinna að rann- sóknum sínum á landhelgismálinu og þorskastríðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Nánar á frettabladid.is Ég held því aldrei fram að ég sé einhver hand- hafi sannleikans, en ég reyni þarna að segja þessa sögu af sanngirni og hlutlægni. Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is 44 Menning 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 10. september 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.