Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 92
Hún skákar reyndar ekki nöfnu sinni Elísabetu I. sem er mesti þjóðhöfðingi Breta fyrr og síðar en Elísabet II. er örugglega í öðru sæti. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is *Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti og gildir á öllum vörum. Gildir ekki ofan á önnur tilboð eða af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma. AF ÖLLUM VÖRUM* LÝKUR Á MÁNUDAG www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN EKKI MISSA AF ÞESSU REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði toti@frettabladid.is „Það lá fyrir í vikunni að Jón Gunn- arsson dómsmálaráðherra ætli á haustþingi að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um útlend- inga í fimmta sinn,“ segir Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris, hjálpar- samtaka fyrir hælisleitendur og f lóttafólk á Íslandi „Þrátt fyrir ítrekaðar ábend- ingar fjölda samtaka, stofnana og einstaklinga, sem leggja áherslu á mannréttindi og mannúð, um verulegra vankanta á lagafrum- varpinu og skort á samráði, ætlar Jón að gera enn eina tilraunina til þess að festa í lög skert mann- réttindi fólks á f lótta til verndar bákninu,“ heldur Sema Erla áfram og minnir á að í vikunni hafi ýmis samtök rétt fram sáttarhönd en viðbrögðin voru ekki eins og fólk gerði sér vonir um. „Í vikunni réttu fjórtán samtök út sáttahönd og skoruðu á dóms- málaráðherra að eiga við þau sam- ráð um breytingar á lögum um útlendinga svo hægt sé að ná fram breytingum á regluverkinu án þess að gengið sé á mannréttindi f lóttafólks. Var ráðherra hvattur til að setja á laggirnar starfshóp með fulltrúum hagsmunaaðila og sérfræðinga í málaflokknum til að tryggja að réttindi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd séu vernduð og virt í hvívetna. Dómsmálaráðherra var f ljótur að senda samtökunum puttann! Því stendur eftir sú spurning í lok vikunnar hvort ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafni nú samráði við hagsmunaaðila og ætli virkilega bara að láta Jón Gunnars- son um mannréttindi f lóttafólks?“ spyr Sema Erla mátulega vongóð. n Mannréttindasamtök fengu fingurinn frá ráðherra n Fréttir vikunnar Sema Erla Serdar Sema Erla Serdar. Þótt fréttin af andláti Elísa- betar II. Englandsdrottningar hafi ekki komið Kolbrúnu Bergþórsdóttur á óvart segist hún að sjálfsögðu, eins og sönnum „royalista“ sæmir, hafa fellt nokkur tár enda eigi drottningar eins og Elísabet helst að fá að lifa að eilífu. toti@frettabladid.is „Auðvitað varð ég döpur þegar ég frétti af andláti drottningar og felldi vitaskuld nokkur tár, eins og sannur „royalisti“ á að gera við aðstæður eins og þessar,“ segir Kolbrún Berg- þórsdóttir, bókmenntadrottning og einlægur aðdáandi Elísabetar II. sem lést í fyrradag. „Dauði hennar kom alls ekki á óvart en maður vill að sjálfsögðu helst að drottningar eins og hún fái að lifa að eilífu. Það merkilega við Elísabetu var að þó að hún segði aldrei neitt merkilegt og gerði aldrei neitt óvenjulegt þá gerði hún samt allt rétt. Í hæversku sinni og skyldurækni var hún hin fullkomna drottning. Hún skákar reyndar ekki nöfnu sinni Elísabetu I. sem er mesti þjóð- höfðingi Breta fyrr og síðar en Elísa- bet II. er örugglega í öðru sæti,“ segir Kolbrún. Súrt fyrir Díönu-sinna „Mér líst sæmilega á Karl sem kon- ung, en ekki meira en það,“ heldur Kolbrún áfram þegar hún er spurð út í arftakann, Karl konung. „Ég held að hann sé vænn maður og við- kvæmur. Svo hefur hann einlægan áhuga á listum og það er prýði á hverjum kóngi. Gleymum því samt ekki að hann var ógurlega vondur við Díönu – og það er erfitt að fyrirgefa, eiginlega ómögulegt. Sem Díönu-sinni hefði ég svo í sannleika sagt helst viljað losna við að sjá Camillu sem drottn- ingu. En það verður ekki á allt kosið í þessum heimi, það veit ég mætavel. Skuggi móðurinnar Ég held að Karl muni reyna að vanda sig en hann mun alltaf standa í skugga móður sinnar. Svo býr hann yfir einlægri þrá til að ala þjóð sína upp og mun því ítrekað segja hluti sem munu valda fjaðrafoki og kalla á and- svör frá stjórn- málamönnum. Valdatíð hans mun væntanlega ekki verða ýkja löng en gæti orðið nokkuð stormasöm á köflum. Þegar kemur að breska konungsveldinu á ég þá ósk að fá að lifa það að sjá Vil- hjálm og Katrínu í hásætinu, þar verða þau fullkomin ásamt hinum krúttlegu börnum sínum.“ Táknræn skyldurækni Kolbrún segist aðspurð sannfærð um að einhver lönd muni kljúfa sig frá samveldinu í nánustu framtíð. „Ég held að það sé óumflýjanlegt eftir lát drottningar sem var sam- einingartákn. Karl III. mun aldrei verða slíkt sameiningartákn, hann er einfaldlega ekki týpan í það.“ Þá telur Kolbrún ekki að það muni verða Liz Truss, fimmtánda og síðasta forsætisráðherranum sem Elísabet skipaði, pólitískt fóta- kefli að drottningin skyldi deyja svo skömmu eftir fund þeirra. „Nei, ég held að það sé ekki óheppilegt fyrir Truss. Síðasta myndin sem tekin var af drottn- ingunni var af þeim saman og Truss minntist hennar fallega í ræðu. Þessi síðasti fundur drottn- ingar er táknrænn fyrir hina miklu skyldurækni Elísabetar sem var að störfum svo að segja fram á síðasta dag. Það er ekki annað hægt en að bera djúpa virð- ingu fyrir slíkri manneskju.“ n Kolbrún Bergþórsdóttir hefur alla tíð dáðst að Elísabetu drottningu og felldi vitaskuld nokkur tár við sorgartíðindin frá Balmoral-kastala. Tárfelldi að hætti sannra royalista 52 Lífið 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.