Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
LÍF&STARF
Nú um stundir eru hvurslags
langhlaup vinsæl um alla veröld
og ekki síst hér á Íslandi. Ótal
útfærslur má finna, ss. Laugavegshlaup,
Dyrfjallahlaup, og fyrir skemmstu var
hlaupið maraþon á Súlur við Akureyri
og einnig á Ólafsfirði. Útfærslur eru
mismunandi, og stundum gefinn kostur
á styttri vegalengdum fyrir þá sem ekki
eru alveg lungna- og liðamótalausir.
Í síðasta vísnaþætti Bændablaðsins
átti Davíð Hjálmar Haraldsson allt
efnið, en þar sem hlaupið var nýlega
langhlaup á Ólafsfirði, og þá einmitt um
Tröllaskaga, þá er viðeigandi að birta
eina af limrum Davíðs, sem einmitt er
sérstaklega tileinkuð hlaupandi fólki:
Um fjallveg og freðjökul rann’ann
og fimmtíu maraþon vann’ann.
Á hraðferð um Fljót
loks hrasaði um grjót
og tófan var fljótust og fann’ann.
Okkur hjónum var nýlega boðið til
kvöldverðar til vinafólks, og meðan beðið
var matarins fór ég að snuðra í bókakosti
heimilisins. Þar rakst ég á lítið ljóðakver
eftir Pál Vatnsdal (1879-1946). Fullu nafni
hét hann reyndar Páll Samúel Gíslason
Vatnsdal. Foreldrar hans báðir ættaðir úr
Fljótshlíð, en fæddur var Páll á Reyðarvatni
á Rangárvöllum. Páll nam rafvirkjun, og
vann sem slíkur alla sína ævi á Akureyri.
Eftir Pál liggur ofurlítið af lausavísum og
einnig tilvitnað ljóðakver, Glettur, gefið út
í 200 eintökum. Eftir Pál verður það sem
lifir þessa þáttar. Um Aðalbjörn Pétursson,
gullsmið og einn af foringjum gamla
kommúnistaflokksins á Siglufirði, orti Páll::
Viðurkenndur kjaftahestur,
kommúnista skítakvörn.
Tilvonandi tugthúsgestur
tyrðilmennið Aðalbjörn.
Mottó Páls:
Óvini mína alla
óspart ég lýsi í bann.
Þó er mér í rauninni ekki
illa við nokkurn mann.
Fegrunarmeðalið:
Mærin keypti meðalið
sem magnar fegurð líkamans.
Hún er að reyna að hressa við
hrákasmíði skaparans.
Í vísnabók stúlku orti Páll:
Varla myndi vonsvikinn
né vænni hlut sér kjósa
- sá, sem fyndi fjörefnin
sem felast í þér Rósa.
Um áfengisbölið:
Burtu kastar flaskan frið,
flæmir ró úr landi.
Hleður lasta veginn við
vörður óteljandi.
Ort til stúlku:
Aldrei var við karlmann kennd,
-en kunni samt að spauga.
Dýrðleg gjöf frá Drottni send
dásemdin hún Lauga.
Skáldið:
Yngri Fúsi á Leirulæk
er leiður gestur.
Urðar-katta æðsti prestur,
andagiftar hrossabrestur.
Um kveðskap sinn orti Páll:
Snilli rúin, göllum gróin,
guðdómsneistinn hvergi sést.
Eldurinn og öskustóin
eflaust geyma hana best.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
303MÆLT AF
MUNNI FRAM
Félagar í Fergusonfélaginu slógu tún á forndráttarvélum.
Íþróttafólk frá Glímusambandi Íslands sýnir glímubrögð.
Myndir / Oddný Kristín Guðmundsdóttir
Fornbílar og glímutök á
Hvanneyrarhátíð
Fjölmenni mætti á Hvanneyrarhátíðina laugardaginn 6. ágúst sl. Dagskrá
hátíðarinnar var að vanda fjölbreytt og afþreyingin ekki af verri endanum.
Fram fór keppni í dráttarvélaakstri og félagar í Fergusonfélaginu slógu tún
á forndráttarvélum. Bjartmar Guðlaugsson og Torfi&Eva léku tónlist og
Glímusamband Íslands stóð fyrir glímusýningu. Auk þess gátu gestir skoðað
Landbúnaðarsafnið og Ullarselið. Handverks- og matarmarkaður var haldinn.
Hátíðinni lauk svo með tónleikum og balli á Hvanneyri pub um kvöldið. /ghp
Guðmundur Bragi Borgarsson, var aðstoðarmaður
í dráttarvélakeppninni.
Fylgst með viðburðum.
Heiðar Örn Jónsson, eldvarnareftirlitsmaður og varaslökkviliðsstjóri Slökkviliðs
Borgarbyggðar, keppti í staurakasti.
Gamlar landbúnaðarvélar voru til sýnis.
Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhorns, keppti í dráttarvélaakstri.