Bændablaðið - 25.08.2022, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
■ Efnagreining ehf, Lækjarflóa 10a, 300 Akranes
■ efnagreining@efnagreining.is ■ sími 661 2629
Nánari upplýsingar á
efnagreining.is
HEYEFNAGREININGAR
haustið 2022
Öll verð eru án vsk.
HEY 1 Hráprótein, meltanleiki NDF og sykur mælt með NIR-tækni + orkuútreikningar (Fóður-
einingar). Verð kr 4.936.-
HEY 2 Hráprótein, meltanleiki og NDF, og sykur mælt með NIR-tækni + orkuútreikningar.
Ca, Mg, K, Na, P, S, Fe, Cu, Mn og Zn. Verð kr: 8.686.-
HEY 3 Sama og HEY 2 nema selen iNDF og sCP bætist við. Verð kr. 9.936.-
HEY 4
Hráprótein, meltanleiki, NDF, iNDF, sykur og sCP mælt með NIR-tækni + orkuútreikningur.
Ca, Mg, K, Na, P, S, Fe, Cu, Mn, Zn, Se, Co og Mo. Aska, klóríð og sykur. Sýrustig ef þörf er
á. Þessi greining hentar vel ef um þurrt rúlluhey (lítið verkað) eða hirðingarsýni er að ræða.
Þessi greining er fyrir þá sem eru í NorFor. Verð kr. 11.559.-
HEY 5 Sama og HEY 4 Ammonium bætist við. Þessi greining er fyrir þá sem eru í NorFor og um
verkað hey/fóður er að ræða. Verð kr. 12.810.-
HEY 6 Eins og HEY 5 nema við bætist Ediksýra og mjólkursýra. NorFor. Verð kr 16.560.-
HEY 7 Þessi greining er með útreikninga fyrir hesthey t.d heygjöf á hest á dag miðað við létta
brúkun. Getur verið Heyefnagreining 1, 2 eða 3.
ATHUGIÐ: Í öllum greiningum nema númer 1 er mælt sýrustig ef um vothey er að ræða.
Hefðbundin jarðvegsefnagreining kr. 9.120.-
HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ
Fimmta helgin í ágúst, dagana 26.-28.
22.-28. ágúst Vegleg Bæjarhátíð Suðurnesjabæjar verður haldin alla
vikuna með ógrynni skemmtilegra uppákoma
26.-28. ágúst Í túninu heima – Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, markaður
í Álafosskvos o.m.fl.
26.-28. ágúst Akureyrarvaka – Menningarhátíð á Akureyri
26.-28. ágúst Bæjarhátíð Seltjarnarness, margvísleg skemmtun
26.-28. ágúst Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli, kjötsúpa og súpurölt,
brenna og brekkusöngur, flugeldasýning o.m.fl.
Fyrsta helgin í september, dagana 2.-4.
1-3. september Októberfest – 3 daga tónlistarhátíð í Reykjavík.
3. september Uppskeruhátíð á Flúðum og nágrenni
31.ág.-4. sept. Ljósanótt – menningar- og fjölskylduhátíð
Reykjanesbæjar, tónleikar, stórkostleg flugeldasýning
2-3. september Blús milli fjalls og fjöru – Blúshátíð á Patreksfirði
Á döfinni í ágúst & sept.
(Svo er nú sjálfsagt eitthvað sem hefur
ekki komist á lista, en hér að ofanverðu er
ýmislegt upptalið sem má skemmta sér við.)
Haustið 2000 hófst ein helsta hátíð
Reykjanesbæjar, Ljósanótt, sem
hefur síðan þá verið haldin árlega.
Hugmyndina fékk hótelstjóri
lúxushótels Keflavíkur, Steinþór
Jónsson, er hann sigldi bát sínum fram
hjá háum klettaveggjum Bergsins nótt
eina og leist svo á að lýsa ætti það
upp. Má segja að Ljósanótt hafi þróast
út frá þeirri hugmynd, en hátíðin er
haldin fyrstu helgi septembermánaðar.
Haldnar eru sýningar og
tónleikar af ýmsu tagi sem
verkefnastjórn Ljósanætur hefur
yfirsýnina yfir. Auglýst hefur verið
eftir fjölbreyttum atriðum, svo
sem hljómsveitum, trúbadorum,
plötusnúðum, dansatriðum og öðrum
skemmtikröftum. Fara atriðin fram á
Götupartísviðinu á mótum Tjarnargötu
og Hafnargötu. Eining hafa verslanir
ýmiss konar tilboð auk þess sem
umsjónarmaður söluplássa benda
einstaklingum og félagasamtökum
á netfangið sala@ljosanott.is eða í
síma 847 -2503 ef áhugi er fyrir sölu
af einhverju tagi.
Dæmi um viðburði
Akstur glæsikerra og bifhjóla verður
laugardaginn 3. september eins og
hefð er fyrir, með bifhjólaklúbbinn
Erni í fararbroddi, niður Hafnargötu
að Grófinni. Skráningu þátttakenda
lýkur á hádegi þann 1. september og
þurfa ökutæki að vera skráð, skoðuð
og uppfylla allar reglur.
Sérstakt Ljósanæturball verður
haldið fyrir ungmenni í 8.-10. bekk
í félagsmiðstöðinni Fjörheimum
miðvikudaginn 31. ágúst. Þar munu
koma fram DJ Rikki G - Inspector
Spacetime og stórstjarnan Aron Can
og næsta víst að fáir vilji missa af
því fjöri.
Heimatónleikar vinsælir
Heimatónleikar svokallaðir verða
í Gamla bænum föstudagskvöldið
2. september. Stígur þá á svið
úrval listamanna sem skemmta
gestum og gangandi – koma fram
á nokkrum heimilum Reykjanesbúa
og spila þá ýmist úti á palli eða
inni í stofu.
Ljósanæturhlaup Lífsstíls fer svo
fram miðvikudaginn 31. ágúst kl.
18.30, en boðið er upp á vegalengdir
fyrir alla fjölskylduna. Hlaupið
verður um götur Reykjanesbæjar
og er þessi árlegi viðburður í
höndum Líkamsræktarstöðvarinnar
Lífsstíls. Renna 500 kr. af hverri
skráningu til Barnaspítala
Hringsins til minningar um
Björgvin Arnar Atlason, lítinn
dreng sem lést sex ára gamall eftir
baráttu við illvíga sjúkdóma frá
fæðingu.
Hápunktur hátíðarinnar er á
laugardagskvöldi helgarinnar, en
þá verða ljósin tendruð á berginu
og glæsileg flugeldasýning mun
lýsa upp himininn. /SP
Efri röð frá vinstri: Sören Hammer, Nestori Widenoja og Magnus Nilson,
opnum flokki, þá Emil Lindqvist, Kasper Reinholdt og Sami Niinilampi í
sveinaflokki. Neðri röð frá vinstri: Mikael Wunderlich, Mathias Wilson og
Beate Stormo en þau voru í þremur efstu sætum í meistaraflokki.
Eldsmíðahátíð var haldin á svæði Byggðasafnsins í Görðum, Akranesi
nú fyrir skömmu og má segja að þar hafi aldeilis verið heitt í kolunum.
Auk íslenskra keppenda tóku þátt og dæmdu eldsmiðir frá Svíþjóð,
Finnlandi, Noregi og Danmörku. Með keppninni er verið að viðhalda
þekkingu og áhuga á hinu forna handverki Norðurlanda og skiptust
þátttakendur í þrjá flokka þar sem smíðuð voruð akkeri. Þurftu þátttakendur
að sýna fram á færni sína og getu við spennuþrungna eftirvæntingu áhorfenda
sem töldu á annað þúsund manns.
Keppnin var haldin hér á landi árið 2013 að Görðum á Akranesi. Reynt
er að hafa keppnina annað hvert ár og er næsta keppni áætluð í Danmörku
eftir tvö ár. /SP
Fornu handverki Norðurlanda
haldið í heiðri
Ljósanótt