Bændablaðið - 25.08.2022, Síða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
ROXEN
Ett av våra funkishus som kan ses såväl i stadsmiljön
lika väl som på landet.
Huset har öppna ytor och en stor entré till köket
med ryggåstak, varifrån du ser genom huset till uteplats och trädgård.
Fyra sovrum, varav ett masterbedroom passar den stora familjen.
Allrummet kan även väljas som sovrum.
Väl tilltagna klädkammare och ett stort badrum.
1-planshus
Boyta: 164 m2
Sovrum: 4-5
Kök, vardagsrum
Tvättstuga
WC/dusch: 2
1-PLANSHUS
VÄLJ DIN EGEN PLANLÖSNING
Húsið er með gluggum frá gólfi upp í loft auk mikillar lofthæðar í eldhúsi og stofu. Einnig sést vel út
í garð og á pallinn. Fjögur svefnherbergi, þar af eitt stórt hjónaherbergi með stóru fataherbergi og
stóru baðherbergi. Breytingar á herbergjaskipan hússins eru kaupendum að kostnaðslausu.
Hentug hús um land allt - Aðeins til sölu á Íslandi!
1-PLANSHUS
VÄLJ DIN EGEN PLANLÖSNING
ROXEN
Frekari upplýsingar gefur sölustjóri á Íslandi - Hinrik Gunnarsson
Veffang: hinrik@floodstra.com · Sími: 0046 705741099 · Vefsíða: www.floodstra.com/
Floods Trähus
- 8 tonna pressa
- Tekur við allt að 180kg. af rusli
- Tengist við venjulegt 220V rafmagn
- 5 tonna pressa
- Tekur við allt að 100kg. af rusli
- Tengist við venjulegt 220V rafmagn
RUSLAPRESSUR
Hafðu hemil á sorpinu!
V8
V5
995.000 + vsk.
690.000 + vsk.
Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni
skipta öllu máli fyrir virkni og endingu véla. Olís veitir ráðgjöf
um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Smurefni fyrir
vélvæddan landbúnað
þar sem til harðra átaka kom milli
bænda og lögreglu þar sem bændur
kveiktu í heyböggum við opinberar
byggingar. Að sögn lögreglu reyndu
bændur í nokkrum tilfellum að aka
dráttarvélum sínum á lögreglubíla og
lögreglan skaut viðvörunarskotum í
átt að bændum.
Mótmælin breiðast út
Í framhaldi af mótmælunum í
Hollandi breiddust þau út til fleiri
landa og þýskir, spænskir, ítalskir
og pólskir bændur fylgdu í fótspor
Hollendinganna.
Þrátt fyrir að ástæður mótmælanna
séu af svipuðum meiði og snúist
um óánægju bænda með aðgerðir
stjórnvalda er yfirleitt áherslumunur
á þeim milli landa.
Þýskir bændur mótmæltu
meðal annars vegna nýrra laga
um endurnýtanlega orku sem þeir
segja að veiti ekki nægan stuðning
til framleiðslu á lífdísil. Að sögn
framkvæmdastjóra samtaka þýskra
bænda sé óskiljanlegt að í orkukreppu
sé verið að hefta framleiðslu á
sjálfbærum innlendum orkugjafa.
Mótmæli pólskra bænda í Varsjá
voru undir slagorðunum „Nú er nóg
komið“ og „Verkamenn bera ekki
ábyrgð á kreppu sem stjórnmálamenn
hafa skapað“ og snerust aðallega
um hækkun á verði á áburði og
innflutningi ódýrum matvælum.
Á Spáni lokuðu bændur í
suðurhluta Andalúsíu vegum og
mótmæltu háu eldsneytisverði og
hækkun aðfanga og nauðsynjavöru.
Á Ítalíu töfðu bændur borgar-
umferð með hægagangi dráttarvéla
af sömu ástæðum.
Tvíeggja sverð
Stjórnmálamenn vöruðu við
áframhaldandi mótmælum og
mögulegum áhrifum þeirra fyrir
hagkerfið, sér í lagi í ljósi innrásar
Rússa í Úkraínu og óvissunnar í
kjölfar hennar.
Aðrir sögðu að lönd Evrópu-
sambandsins yrðu að gyrða sig í
brók og tryggja fæðuöryggi innan
landa sambandsins. Að öðrum
kosti mundi það koma niður á allri
matvælaframleiðslu í heiminum og
kynda undir aukinni verðbólgu.
Breyttir búskaparhættir
Skilaboð stjórnvalda vegna aðgerða
sem tengjast aðgerðaáætlun Green
Deal eru skýr. Til að ná markmiðum
áætlunarinnar verða margir bændur
að hætta búskap og þeir sem búa
áfram verða að aðlaga búskaparhætti
sína að nýjum aðstæðum og kröfum
umhverfinu til hagsbóta, ekki
síst með því að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Talsmenn bænda segja rétt að grípa
verði til aðgerða í umhverfismálum
en að þeir geti ekki einir borið ábyrgð
á þeim aðgerðum. Samfélagið allt
verði að vinna að markmiðum Green
Deal sameiginlega. Bændur segja
jafnframt að tillögur þeirra hafi fram
til þessa verið hunsaðar og stjórnvöld
ekki verið til viðræðu um að leysa
ágreininginn í samvinnu við þá.
Green Deal hefur ekki
áhrif á Íslandi
Í svari frá matvælaráðuneytinu um
hvort eða hvernig áhrif Green Deal-
samþykkt Evrópusambandsins
hefði áhrif á bændur á Íslandi
segir að heilt yfir hafi stefnumótun
ESB í landbúnaðarmálum ekki
beina þýðingu hér á landi,
enda landbúnaður ekki hluti
EES sáttmálans.
„Innan styrkjakerfis land-
búnaðarins á Íslandi hefur aukin
áhersla verið lögð á loftslagsmál
síðustu ár og áætlað að þau verði
jafnframt í forgrunni við næstu
endurskoðun búvörusamninganna
sem fer fram á næsta ári.
Þá er einnig unnið að mótun
landbúnaðarstefnu fyrir Ísland þar
sem áhersla er lögð á loftslagsmál og
umhverfisvernd. Við þá vinnu er tekið
mið af sérstöðu íslensks landbúnaðar
sem er stundaður við aðstæður sem
eru verulega frábrugðnar því sem
gerist í löndum Evrópusambandsins,
bæði markaðslega og veðurfarslega.
Sérfræðingar matvælaráðu-
neytisins fylgjast grannt með þróun
landbúnaðarmála innan ESB og nýta
þá reynslu við stefnumörkun fyrir
íslenskan landbúnað en ekki liggur
endanlega fyrir hvort eða hvaða áhrif
Green Deal gæti haft hér á landi með
tilliti til skuldbindinga og tæknilegrar
útfærslu í loftslagsmálum.“
Götulokun hollenskra hermanna í Haag til að koma í veg fyrir að bændur
komist leiða sinna til að mótmæla. Mynd /wikipedia.org