Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
SMÖLUN&RÉTTIR
Stóðréttir haustið 2022
Stóðréttir verða nú með sama brag
og fyrir kórónuveirufaraldurinn,
sem takmarkaði fjölda gesta
síðustu tvö ár.
Listi yfir fjárréttir eru á blaðsíðum
32-33 og upplýsingar um viðbætur
eða leiðréttingar skal senda á
netfangið smh@bondi.is. /smh
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 1. okt.
Árhólarétt (Unadalsrétt) við Hofsós, Skag. föstudaginn 23. sept.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. laugardaginn 1. okt.
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. Upplýsingar vantar.
Fossárrétt á Skaga, A.-Hún. laugardaginn 17. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. Upplýsingar vantar.
Kjalarlandsrétt, A.-Hún. laugardaginn 17. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 24. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 1. okt.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. laugardaginn 3. sept. kl. 08:00
Selnesrétt á Skaga, Skag. laugardaginn 17. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 17. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudaginn 18. sept. kl. 11
Staðarrétt í Skagafirði laugardaginn 17. sept.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 1. okt.
Unadalsrétt (Árhólarétt) við Hofsós, Skag. Upplýsingar vantar.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. sunnudaginn 25. sept. kl. 09:00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 1. okt. kl. 11:00
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 1. okt.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. Upplýsingar vantar.
Saga vélar:
Teskeiðin hans Elísar Kjarans
– Á Eystra-Miðfelli í Hvalfirði leynist jarðýta sem á sér merkilegan bakgrunn
Jarðýta sem lagði Svalvogaveg er enn þá í notkun í Hvalfirði. Elís Kjaran átti nokkrar ýtur af gerðinni International
Harvester TD-8, en þær hafa gengið undir nöfnunum nashyrningar, teskeiðar og nallar. /ÁL
Núverandi eigandi jarðýtunnar,
sem er átta tonna International
Harvester TD-8 B, er Jón
Valgarðsson, bóndi á Eystra-
Miðfelli.
Hann keypti ýtuna notaða af
Véladeild Sambandsins árið 1982
og frétti ekki fyrr en seinna að hún
hafi áður verið í eigu Elísar Kjarans.
„Þeir höfðu tekið hana upp í nýja
vél af sömu gerð sem hann var að
kaupa,“ segir hann.
Jón hefur notað ýtuna við
ræktunarstörf á sinni jörð, eins og
til að ýta út ruðningum og til að
slétta út tún. Þó hefur notkunin allra
síðustu ár verið nokkuð lítil þar sem
beltagangurinn undir henni öðrum
megin er orðinn slitinn.
„Kramið í henni er allt mjög
gott – mótorinn er góður, drifið og
allt aftur úr. Mig langar til að laga
beltaganginn á henni til þess að hún
verði enn þá betri en hún er og ætla
ég að halda henni í lagi á meðan ég
á hana. Það hafa stundum komið
hingað menn sem hafa viljað fá hana
keypta, en hún verður ekki seld,“
segir Jón.
Í upprunalegu ástandi
Vélin er að sögn Jóns algjörlega
upprunaleg.
„Þegar synir Elísar Kjarans
skoðuðu hana í fyrra voru þeir
fljótir að bera kennsl á hvaða ýta
þetta væri út frá hinum og þessum
einkennum sem þeir þekktu,“ en Elís
átti minnst fjórar ýtur af þessari gerð
í gegnum sinn feril. Samkvæmt Jóni
er mjög lipurt að vinna á ýtuna. „Það
er ágætur kraftur í henni til þess að
gera það sem henni er ætlað. Hún er
samt ekki með neinn nýtískubúnað
eins og loftpúðastól og maður þarf
að vera með heyrnarskjól.“
Svalvogavegurinn lagður á
grunni rollugötu
Ragnar Kjaran Elísson vann með
föður sínum á ýtum í nokkur ár.
Hann segir Elís hafa átt nokkrar
TD-8 jarðýtur, sem oft voru kallaðar
nashyrningar, í gegnum tíðina og
yfirleitt hafi hann átt tvær í einu.
Elís vann við gerð hins margfræga
Svalvogavegar á áttunda áratugnum,
sem tengir Dýrafjörð og Arnarfjörð
strandleiðina, ásamt því sem hann
mokaði snjó á Hrafnseyrarheiði, við
jarðrækt í Ísafjarðardjúpi og við hin
fjölmörgu verk fyrir Vegagerðina.
Ragnar segir föður sinn hafa
tekið lagningu Svalvogavegarins
sem áskorun fyrst, en hann vann við
að hreinsa veginn út í Svalvoga frá
Keldudal Dýrafjarðarmegin á vorin.
Frá Keldudal var gönguleiðin út í
Svalvoga á rollugötu í fjallshlíðinni
sem var ekki alltaf fær.
„Hann langaði til þess að athuga
hvort hornið á ýtunni myndi ekki
geta gert smá rás til þess að það
væri auðveldara að labba þetta. Það
gekk ágætlega þannig að hann hélt
áfram,“ segir Ragnar.
Verkið tók fjögur sumur og tók
Ragnar mikinn þátt í veglagningunni
með föður sínum.
Framrúða brotnaði
vegna fljúgandi verkfæra
Þrátt fyrir að hafa unnið á jarðýtunni
í snarbröttum fjallshlíðum lenti Elís
aldrei í alvarlegum óhöppum. Það
var þó einu sinni við lagningu raflínu
í Arnarfirði að hann missti ýtuna í
það bratta brekku að hann þurfti
að gefa allt í botn til að missa ekki
stjórn á henni.
„Það var það bratt að verkfærin
sem hann geymdi undir sætinu flugu
út um framrúðuna,“ segir Ragnar.
/ÁL
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Elís Kjaran ásamt syni sínum, Ragnari Kjaran, við lagningu Svalvogavegarins.
Mynd úr Morgunblaðinu 28. júlí 1973. Mynd / timarit.is