Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Veitingastaður af bestu gerð í gamalli vélaskemmu:
Pop-up eldhús á Þingeyri
Sjónvarpskokkurinn, dagskrár-
gerðarmaðurinn og listamaðurinn
Kristinn Guðmundsson, oft
nefndur Kristinn soð, var með pop-
up eldhús í gamalli vélaskemmu á
Þingeyri í sumar.
Kristinn hefur framleitt nokkrar
þáttaraðir þar sem hann eldar í
óreiðueldhúsi. Þáttaröðin Soð í
Dýrafirði var sýnd á RÚV síðastliðið
haust og var þessi veitingasala
óbeint framhald af því.
Kristinn fékk aðstöðu til þess
að undirbúa matinn
í Grunnskólanum á
Þingeyri, en var svo
með matarvagn fyrir
utan vélaskemmuna
til þess að leggja
l o k a h ö n d á
matreiðsluna.
„Aðstaðan í
grunnskólanum var
ágæt, nema útsýnið
var ekkert nema
brött brekka rétt fyrir
utan gluggann – sem
er kannski allt í lagi fyrir svona
sveimhuga mann eins og mig,“ segir
Kristinn.
Einföld framkvæmd
og hráefni af svæðinu
Veitingasalan sjálf var í Skelinni,
sem er gömul vélaskemma við
Fjarðargötu 42 á Þingeyri. Samtals
var opið í átta daga í lok júlí og
voru viðtökurnar framar vonum,
en mest voru 38 matargestir á einu
kvöldi. Matseðillinn var nokkurn
veginn sá sami allan tímann til
þess að framkvæmdin væri sem
einföldust þar sem Kristinn var
einn í eldhúsinu. „Einhvern tímann
var ég með kindakjöt í kássunni
í staðinn fyrir nautakjöt, sem var
æðislega gott. Sósan í kássunni er
frekar sæt og það passar fullkomlega
með svona ærkjöti,“ segir Kristinn,
en það kom til vegna þess að
nautakjötið var uppselt í það skiptið.
Hráefnið reyndi Kristinn að
nálgast úr nærumhverfinu eins og
hægt var. „Við fengum fiskinn úr
fiskbúðinni á Ísafirði, ísinn fengum
við frá Örnu í Bolungarvík og
rabarbarann og súrurnar tíndum
við þarna rétt hjá. Sjoppan Hamona
á Þingeyri reddaði okkur með
mjög margt annað, eins og hvítkál,
kartöflur, krydd.“
Fleiri þáttaraðir á leiðinni
Í haust verður sjónvarpað nýrri
þáttaröð sem nefnist Pabbasoð,
þar sem hann eldar allt í pitsuofni
sem hann byggði með vini sínum í
Frakklandi. „Ég fór að elda miklu
meira í ofni þegar sonurinn fæddist
í fyrra,“ segir Kristinn, en það
gerir hann af praktískum ástæðum.
„Það er svo fyrirgefanlegt að elda í
ofni. Ef strákurinn fór að skæla og
þurfti mat eða athygli þá gat maður
beðið aðeins með að taka matinn
út. Ef þú ert að steikja eitthvað á
pönnu eða sjóða þá er það ekki eins
sveigjanlegt. Það getur verið helvíti
hart ef pastað sýður mínútu of lengi.“
Núna er Kristinn að vinna að
nýrri þáttaröð sem nefnist Soð á
Austurlandi, sem verður áframhald
af því óreiðueldhúsi sem hefur verið
í fyrri þáttaröðum. „Við ætlum
meðal annars í Mjóafjörð, inn að
Hallormsstað, upp að Stóruurð og út
að Þerribjörgum. Við erum að vinna
handritið núna, sem er aðallega að
ákveða hvert við förum,“ en Kristinn
er að hefja tökur um þessar mundir.
Hann reiknar svo með að klára alla
eftirvinnslu á þáttunum í febrúar
og þá munu þeir fara í sýningar
á RÚV fljótlega eftir það. „Ef
fólk er með hugmyndir að góðum
upptökustöðum fyrir austan þá má
það alveg senda mér skilaboð í
gegnum síðuna Soð á Facebook,“
segir Kristinn.
/ÁL
Kristinn soð reiddi fram dýrindismáltíðir á Þingeyri í sumar. Myndir / ÁL
Þorskur úr fiskbúðinni á Ísafirði. Kjötkássa. Yfirleitt með nautakjöti
en stundum með ærkjöti.
Í eftirrétt var boðið upp á ís frá Örnu
í Bolungarvík.
Þessi gamla vélaskemma á Þingeyri
fékk tímabundið hlutverk sem
veitingastaður í júlí. Mest var hægt
að koma fyrir 38 matargestum.
LÍF&STARF
Kært er á milli hins tveggja ára gamla Heiðmars Árna og kálfsins Marra á
Steindyrum í Svarfaðardal. Þessa dásamlegu mynd tók móðir Heiðmars
Árna, Kristrún Birna. „Við vorum í heimsókn í sveitinni og það var
svo dásamlegt að sjá þegar Heiðmar Árni, tveggja ára sonur minn, og
kálfurinn Marri sváfu saman á fóðurganginum. Marri var endurlífgaður
strax eftir burð og var því hálfslappur þegar félagarnir tóku blundinn
sinn saman,“ segir Kristrún Birna. Mynd / Aðsend
Í Kew grasagarðinum í London er
að finna elstu núlifandi pottaplöntu
í heimi sem vitað er um.
Plantan er köngulpálmi sem barst
til Englands frá Suður-Afríku árið
1775 en var flutt í Pálmahúsið 1848
þegar byggingu þess lauk og hefur
verið þar síðan þá.
Skoski grasafræðingurinn Francis
Masson, sem dvaldi í Suður-Afríku
við gróðurrannsóknir frá 1773 til
1775, sendi hátt í 500 sýni af bæði
lifandi og þurrkuðum plöntum til
Englands á sínum tíma og er langlífa
pottaplantan í Kew ein af þeim.
Plantan er upprunnin á austurhluta
Góðrarvonarhöfða og er kögurpálmi
sem kallast Encephalartos altensteinii.
Tegundin er á válista International
Union for Conservation of Nature
yfir plöntur í útrýmingarhættu í
náttúrulegum heimkynnum sínum
vegna eyðingu skóga.
Köngulpálmar eru hægvaxta og
þrátt fyrir að plantan hafi vaxið í Kew
í 247 ár er plantan ekki nema um fjórir
metrar á hæð. Þegar pálmanum var
umpottað síðast árið 2009 var hann
vigtaður án pottsins og reyndist vega
um það bil eitt tonn. /VH
Köngulpálmategundin Encephalartos altensteinii er elsta planta í heimi sem
vitið er um að sé ræktuð í potti. Mynd / RBG Kew
Elsta pottaplanta í heimi