Bændablaðið - 25.08.2022, Side 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
SERES 3 Luxury Verð 5.350.000
Einn eftir, næsta sending væntanleg
í september.
VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
www.verkfaeriehf.is S. 544-4210 sale@verkfaeriehf.is Tónahvarfi 3, 203 Kópavogi
EUREKA!
PICOBELLO 151
ECOVAC Sópur
Verð: 139.000 + vsk
Frábær sópur frá Eureka.
Tilvalinn fyrir fóðurgangana,
skemmuna, verkstæðið eða stéttina!
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Handverk og hönnun:
Minjagripir sem
einkenna landsvæði
Viðburður sem ber nafnið
Gersemar Fljótsdals verður
haldinn dagana 2.-3. september
næstkomandi en handverksfólk
hefur verið hvatt til að taka
áskorun um að hanna minjagrip
eða söluvöru sem einkennir sitt
svæði.
Ásdís Helga Bjarnadóttir,
verk efnastjóri Fagrar framtíðar í
Fljótsdal, segir að um sé að ræða
hönnunarsmiðju þar sem markmiðið
sé að draga fram sérstöðu austfirsks
þjóðararfs og þeirra einstöku muna
og minja sem fundist hafa í Fljótsdal.
„Þannig viljum við skapa
vettvang fyrir listamenn,
handverksfólk og hönnuði,
faglærða sem og ófaglærða, til að
þróa hugmyndir að listmunum sem
byggja á þessum gersemum, um leið
og áhersla er lögð á að nýta sem
mest einstakt hráefni úr héraði,“
segir hún.
Hugmyndaflug og hæfileikar
ráða för en útfærslan byggir á
þekkingu á landsvæðinu, náttúru,
sögu og menningu. „Hvert samfélag
er ríkara þegar einstaklingar geta
fengið með sér einstakan hlut sem
minnir á góða dvöl á viðkomandi
stað. Það á ekki síst við ef vel er
til hans vandað og honum fylgir
eitthvað alveg sérstakt. Það er líka
áhugavert að upprunatengja hráefnið
við staðinn þó það geti verið
snúnara,“ segir Ásdís Helga og bætir
við að gæði þurfi alltaf að vera til
staðar og mikill kostur að hluturinn
sé ekki merktur „Made in XXX“
heldur búinn til í heimahéraði.
„Það er kannski í fljótu bragði
vandfundið að finna viðfangsefni,
en oft getur ýmislegt skotið upp
kollinum, munstur í lopapeysu,
skart sem tengist fornleifauppgreftri,
útskorinn nytjahlutur með
einkennum fyrri tíðar, póstkort eða
lyklakippa með fagurri ljósmynd
af þekktu landslagi eða málverk,“
segir hún.
Afrakstur hönnunarsmiðjunnar
verða vel mótaðar hugmyndir sem
raunhæft er að fjöldaframleiða og
eða vinna með einstaka sérvöru
með markvissa tengingu við sögu,
menningu eða náttúru Fljótsdals eða
Austurlands.
Að viðburðinum koma auk
Fagrar framtíðar í Fljótsdal,
Minjasafn Austurlands, Safnabúð
Þjóðminjasafnsins og Handverk
og hönnun með stuðningi frá
Samfélagssjóði Fljótsdals.
/MÞÞ
Ásdís Helga Bjarnadóttir, verk
efnastjóri Fagrar framtíðar í Fljótsdal.
Matvælaframleiðsla:
Sósufjölskylda á
Djúpavogi
William Óðinn og Gréta Mjöll einsetja sér að framleiða og þróa bragðgóða,
heilnæma og bragðsterka matvöru í nafni LeFever Sauce co. Mynd / MHH
Hjónin William Óðinn LeFever og
Gréta Mjöll Samúelsdóttur búa
á Djúpavogi og framleiða þar
sterkar sósur í nafni fyrirtækisins
LeFever Sauce co.
Framleiðsla þeirra hófst árið
2018 á einni sósu með ákveðinni
bragðtegund en í dag eru sósurnar
orðnar fimm sem heita Bera, Dreki,
Alvör, Jaxl og Skass. Þær eru m.a.
seldar í verslunum Krónunnar og
völdum verslunum Hagkaups.
„Það gengur bara ofboðslega
vel hjá okkur og brjálað að gera.
William Óðinn var bara einn í
þessu til að byrja með því ég starfaði
sem atvinnu- og menningarfulltrúi
Djúpavogs en nú er ég búin að segja
upp þeirri vinnu og er komin á fullt
með manninum mínum í sósurnar,“
segir Gréta Mjöll.
Þau eru einnig að framleiða tvær
aðrar vörur í krukkum, Pikklað chili
og Lefever sinnep, sem er gert úr
kryddleginum sem fellur til við
gerð Dreka. „Það er frábært að
vera með fyrirtæki eins og okkar
á Djúpavogi. Hér eru allir í sama
liði og vörurnar okkar eru komnar
víða á veitingastaði á staðnum og á
stöðum í næsta nágrenni. Við eigum
örugglega eftir að setja fleiri vörur á
markað, það er alltaf eitthvað nýtt í
pípunum,“ segir Gréta Mjöll. /MHH