Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Í lok júní héldu 24 nýútskrifaðir
búfræðingar frá Hvanneyri
í útskriftarferð til Evrópu. Í
ferðinni, sem var vikulöng, var
fyrst áð í Amsterdam í Hollandi í
tvær nætur, þá haldið til Münster
í Þýskalandi og gist þar í tvær
nætur og endað með þriggja nátta
stoppi í Brussel í Belgíu.
Ferðin var blanda af fagferð í
landbúnaði og hefðbundinni rútuferð
sem náði til framangreindra þriggja
landa. Alls voru í ferðinni 8 faglegar
landbúnaðartengdar heimsóknir auk
heimsóknar á landbúnaðarsýninguna
Libramont í Belgíu. Í þessari fyrri
grein verður farið yfir það helsta
landbúnaðarfaglega sem bar á góma
framan af ferðinni.
Kúabú á nærri hálfan milljarð
Fyrsta heimsóknin var til
kúabóndans Ron Mulder en hann
er með 100 Holstein kýr og tvo
Fullwood mjaltaþjóna stutt frá
þorpinu Kockengen sem er um 30
km suður af Amsterdam og er um
5 metra undir sjávarmáli. Búið,
sem er alls með 65 hektara af landi
auk aðstöðu fyrir framleiðsluna og
íbúðarhús, keypti hann árið 2015
á nærri 500 milljónir króna en
skýringin á háum kostnaði búsins má
fyrst og fremst rekja til virði landsins
sjálfs. Fram kom í máli hans að
algengt hektaraverð í Hollandi væri
60-80.000 evrur, eða um 8,4-11,2
milljónir íslenskra króna, svo þetta
voru í raun kjarakaup hjá honum
þrátt fyrir að upphæðin virðist há
við fyrstu sýn.
Einn með 100 mjólkandi
Eins og áður segir þá er Ron með
100 Holstein kýr en meðalnyt búsins
er þó ekki nema um 9.600-9.700
lítrar, sem telst ekki sérlega hátt í dag
þegar það kúakyn er annars vegar.
Skýringin felst í því að hann er einn
á búinu og getur ekki hámarkað af-
rakstur kúnna sem sást m.a. á því
að hann var með naut í kvígunum.
Þá leggur hann mjög mikla áherslu
á grasfóðrun kúnna og reynir að
takmarka kjarnfóðurgjöfina eins og
hægt er vegna kostnaðar við aðkeypt
fóður. Fyrir vikið ná kýrnar ekki að
keyra vel upp nytina en að hans sögn
gengur kostnaðardæmið upp.
Aðspurður um vinnuafl búsins þá
er hann mest einn með búið en konan
hans hjálpar til utan vinnutíma hjá
henni, en hún starfar við hárgreiðslu.
Þá vinnur sonur hans á búinu yfir
sumartímann og aðstoðar við
heyskap o.fl. Aðrir koma ekki að
búrekstrinum og sér hann t.d. sjálfur
um heyskapinn, fyrir utan að keyra
heim en hann fær verktaka í það sem
kostar 100 evrur á hektarann, um 14
þúsund íslenskar krónur, og þá er öll
þjónusta við heimkeyrslu og frágang
í flatgryfju innifalin.
Selt eina kvígu vegna vandamála
Það vakti verðskuldaða athygli
gestanna frá Íslandi þegar talið
barst að kúakyninu og því hve
þægar Holstein kýrnar eru. Flestir
í þessum hópi búfræðinga frá
Hvanneyri voru kornabörn þegar
umræðan um innflutning norskra
fósturvísa var í hæstu hæðum á
Íslandi fyrir 2 áratugum síðan og
eðlilega forvitið fólk um kosti þessa
kúakyns sem getur skilað í dag 15-
16.000 lítra meðalnyt sé rétt staðið
að málum. Ron lætur sæða kýr á
fyrsta mjaltaskeiði með kyngreindu
sæði en vegna kostnaðar eru eldri
kýr sæddar með hefðbundnu sæði.
Þá sér þarfanaut um uppbeiðsli eftir
þriðju sæðingu.
Aðspurður um lund kúnna þá
sagði hann sem dæmi að hann hafi
einungis haft eina kvígu á síðustu
5 árum sem hann þurfti að losa sig
við vegna vandamála. Henni var
þó ekki slátrað heldur seld á næsta
bæ. Annars séu engin vandamál
með kýrnar, þær séu þægar og
meðfærilegar.
Þá kom fram að hann setur
ekki nautkálfana á heldur selur til
áframeldis þegar þeir eru 2ja vikna
gamlir. Þá var áhugavert að heyra að
nýfæddir kálfarnir ganga undir fyrstu
tímana eftir fæðingu og eðlilega veit
Ron ekki hve mikinn brodd þeir hafa
sogið á þessum tíma. Því mælir hann
alltaf mótefnið í blóði kálfanna,
þegar hann tekur þá undan kúnum,
og ef í ljós kemur að mótefnastaðan
er bág fær kálfurinn viðbótarskammt
af sérstaklega góðri broddmjólk með
hátt innihald mótefna. Með þessu
móti nær hann að koma á legg
kraftmiklum og góðum kálfum sem
hann telur forsendu góðs búskapar.
Framleiðir einungis gras
Eins og áður segir leggur Ron
áherslu á grasfóðrun kúnna og er
t.d. einungis með grasframleiðslu
á öllum 65 hekturunum sem hann
hefur undir, en á þessu landsvæði er
hægt að slá 5 sinnum yfir sumarið.
Hann þarf þó einnig á
heilskornum maís að halda til
þess að jafna út fóðurgæðin, en
maísinn kaupir hann frá öðrum
bónda og kaupir á hverju hausti
300-350 tonn af nýslegnum maís
sem er settur í flatgryfju á búinu.
Fóðrunin er annars frekar einföld,
kýrnar fá vothey og svo kjarnfóður
í mjaltaþjónunum en þar er hægt að
gefa þrjár mismunandi tegundir eftir
stöðu kúnna á mjaltaskeiði.
Á sumrin er kúnum beitt á
daginn og ef mjög heitt er í veðri
þá fara þær út á nóttunni svo þær
fái ekki hitastreitu. Þá vakti athygli
að frá miðjum ágúst byrjar hann á
því að stunda svokallaða núll beit,
þ.e. slær ferskt gras í kýrnar. Þetta
gerir hann með því að vera með
framsláttuvél á dráttarvélinni og
tekur svo sláttuskárann beint upp í
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Ungbændur í Evrópuferð
– Fyrri hluti
Eftir verksmiðjuskoðunina hjá Trioliet var þessari fínu mynd smellt af hópnum við myndarlegan 52 m³ heilfóðurvagn!
KORNHORN
Landbúnaðarháskóli Íslands,
í umboði matvælaráðu-
neytisins, mun vinna að og
leggja fram aðgerðaráætlun til
eflingar kornræktar á Íslandi.
Einn af verkþáttum
verkefnisins er að greina gæði
þess korns sem ræktað er á
Íslandi. Við óskum því eftir að
bændur sendi sýni af korni úr
ökrum sínum eftir þreskingu í
haust, um það bil þrjár lúkur.
Markmiðið með þessu er að
greina gæði korns sem ræktað
er hér á landi. Greint verður
þúsundkornaþyngd og rúmþyngd,
að þessu sinni verða sýni ekki
efnagreind. Þessa eiginleika er
tiltölulega einfalt að mæla þó
að best sé að gæta samræmis í
mælingum og því er óskað eftir því
að bændur sendi sýni á fræstofu
Jarðræktarmiðstöðvarinnar. Að
auki verða kornsýnin sigtuð og
flokkuð í stærðir yfir 2,5 mm,
minni en 2,5 mm en stærri en 2,2
mm og minna en 2,2 mm.
Með þessum upplýsingum
verður hægt að þróa gæðaflokka
korns, til dæmis í þrjá flokka.
Fyrsta flokks hefði háa
þúsundkornaþyngd og rúmþyngd,
hátt hlutfall korns yfir 2,5 mm
og aðeins brot undir 2,2 mm.
Ef korn í fyrsta flokki sýnir hátt
spírunarhlutfall, um 95%, er hægt
að prófa það frekar fyrir öðrum
viðmiðum og athuga hvort það
gæti flokkast sem maltbygg
með tilheyrandi möguleikum til
verðmætasköpunar í drykkjar-
vöruframleiðslu. Annars ætti
fyrsta flokks korn að vera eftirsótt
svínafóður. Annar flokkur
samanstendur af korni sem er af
háum gæðum en nær ekki í fyrsta
flokk. Slíkt korn getur vel hentað
sem svínafóður eða afburðafóður
fyrir nytháar kýr. Þriðji flokkur er
það korn sem stenst ekki kröfur
efri flokka og nýtist þá fyrst og
fremst sem fóður fyrir kýr og gripi
í uppeldi.
Með þessum upplýsingum
er hægt að aðlaga gæðaflokka
korns hér á landi fyrir mögulegt
kornsamlag, og fá heildarmynd
af gæðum korns sem ræktað er
hér á landi.
Áhugavert væri að bera saman
niðurstöður úr yrkjatilraunum
Jarðræktarmiðstöðvarinnar við
raunir bænda við ræktun byggs.
Niðurstöður yrkjatilrauna
verða að sýna sterka fylgni við
niðurstöður úr ökrum bænda ef
það á að nýta fyrirkomulagið í
yrkjaprófunum og kynbótum.
Í fyrra, árið 2021, tóku
starfsmenn Jarðræktarmið-
stöðvarinnar sýni úr örfáum
kornökrum um landið. Skemmst
er frá því að segja að besta
kornið kom úr Eyjafjarðarsveit
þar sem þúsundkornaþyngd
var 42 g, rúmþyngd 73 g/dl og
spírunarhlutfall allt að 100%.
Til þess að taka þátt í
verkefninu þurfa bændur að taka
sýni úr ökrum eftir þreskingu.
Þar sem kornið er þurrkað má
senda slíkt korn beint, en þar
sem kornið er ekki þurrkað þarf
að þurrka sýnið áður en það
er sent. Þetta er hægt að gera
í örbylgjuofni eða bakarofni.
Ef kornið hefur ekki náð 85%
þurrrefnishlutfalli, þá hitnar fljótt
í því og það tekur að mygla. Slíkt
sýni er ekki til neins að greina.
Tilgreina skal að minnsta kosti
frá hvaða bæ sýnið kemur og
helst hvaða yrki var ræktað
ásamt tölvupóstfangi svo að
hægt sé að koma niðurstöðunum
til skila. Best væri ef fleiri
upplýsingar fylgdu sýnunum;
spildunúmer, jarðvegsgerð,
áburðarskammtar, uppskera,
sáðdagur, uppskerudagur og
úðunarmeðferð.
Niðurstöður greininga verða
sendar bændum til upplýsinga. Að
öðru leyti verður niðurstöðunum
gerð skil án tengingar við bæi.
Með leyfi ræktenda verður besta
kornsýni landsins kynnt og bestu
sýni hvers landshluta.
Frekari upplýsingar og
leiðbeiningar má fá í gengum
tölvupóst, hrannar@lbhi.is, eða
í síma 843-5385.
Helgi Eyleifur Þorvaldsson og
Hrannar Smári Hilmarsson.
Hrannar Smári
Hilmarsson.
Hver eru gæði byggs í ökrum bænda?
Helgi Eyleifur
Þorvaldsson.
Ákall til bænda að senda sýni
úr ökrum í haust til:
Landbúnaðarháskóli Íslands
Jarðræktarmiðstöð
Hvanneyri, 311, Borgarbyggð
Ron er með 100 Holstein kýr á búi sínu sem hann keypti árið 2015.
Mynd /Vilborg Hrund Jónsdóttir