Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1931, Page 84
82
vörina er stórgrýti. Nú er hún aðeins notuð af mönnum seni
stunda hrognkelsaveiði.
o. MÝRARHÚS I
Lendingin er norðan á Nesinu mitt á milli Mýrarluisa I og
Mýrarhnsa 11. Leiðarmerki eru engin, önnur en þau, að símastaur
sem stendur upp í Pálsbæjartúni, á að bera i staurinn á Valhús-
inu, og er farið eftir þeim merkjum inn i vörina. 1 vörinni er
sandur og klappir, hún er betri um flóð, en annars talin miður
góð. Nú er lending þessi ekkert notuð, og ekkert haldið við.
p. MÝRARHÚS II
Lendingin er austan til við Pálsbæ mitt á milli Pálsbæjar,
og barnaskólans í Mýrarhúsum. Stefna h. u. b. frá norðri til suð-
urs. I vörinni er mest klappir. Ráðum megin vararinnar er
þangivaxið stórgrýti, og hefir grjót hrunið dálítið úr kömpun-
um niður í vörina. Bezt mun vera að lenda um flóð. Lending
þessi var talin góð á meðan hún var notuð og henni haldið við.
var eina lendingin að norðanverðu á Nesinu önnur en Vatnavík
(sbr 1.).
q. ENGEY
Aður fyrr voru fjórar lendingar í Engey, en aðeins einni hefir
verið haldið við; hún er i suður frá bænum, niður undan
geymsluhúsi sem stendur á sjávarbakkanum. Að austanverðu við
vörina er sker rétt við landið, en að vestanverðu eru engir boðar
né grynningar, og því bezt, að koma þeim megin að vörinni
þegar lent er. Lending þessi er talin miður góð.
9. MOSFELLSHREPPUR
a. LEIRVOGSTUNGI
Lendingin er fyrir botni Leirvogs. Þar eru flatar eyrar,
sandur og smámöl. Fjöruborð er svo mikið, að vogurinn er þur
um fjöru, aðeins lendandi uin stórstraumsflóð.
b. VARMÁ
Lendingin er við Hestaþingshól innanvert i botni Leirvog*•
þar er sandur og möl. Fjöruborð svo mikið, að ekki er hægt að
lenda nema um stórstraumsflóð.
c. LÁGAFELL
Lendingin er við Langatanga, er liggur út i Leirvog að sunu-
anverðu, og er hægt að lenda báðum megin við tangann. I *'