Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1931, Page 100
98
68. Sauðárkrókshreppur.
69. Viðvíkurhreppur.
70. Hofshreppur.
71. FELLSHREPPUR
a. LÓNSKOTSMÖI.
Stefna lendingarinnar er SA. til S. Engin leiðarmerki. í lend-
ingunni er möl og stórgrýti.
b. ÁRÓSAMÖL
Stefna lendingarinar er suður. Leiðarmerki eru engin. I lend-
ingunni er möl og stórgrýti.
c. MÝRNAVÍK
Stefna lendingarinnar er suður. Engin ieiðarmerki. í lend-
ingunni er stórgerð möl. Á leiðinni eru boðar til beggja handa-
Bezt að lenda með hálfföllnum sjó. Lendingin er talin miðiu’
góð.
72. HAGANESHREPPUR
a. MÓSVÍK
Að vestanverðu við Mósvik nyrzt er svokallað Músanes, en að
sunnanverðu Móskógarklauf, en að vestan er Haganesvík. í lend-
ingunni er möl, en báðum inegin ern sléttar klappir. Stór steiu'1
er í lendingunni, sem varast þarf, sérstaklega þegar vont er, en
þá er ráðlegast að leita til Haganesvikur.
73. HOLTSHREPPUR
a. HRAUNAKRÓKUR
Hraunakrókur er lítil vík fyrir opnu liafi, i Hraunslandi, 1
norðaustur frá Haganesvík. Leiðarmerki eru engin, en að norð-
anverðu gengur fram Iítill tangi, og innan við hann er lendingin-
í lendingunni er möl og grót, þar er talsvert útgrynni, sérstak-
lega um fjöru, og brimasamt í allri hafátt.