Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 41

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 41
2. árg. . Jan.-marz 1929 VAKA Gunnar Þórðarson: • Byg'gðahveríl Svo segir Land- námabók, „at landit yrði albyggt á sex tygum vetra, svá at eigi hefir síðan orðið fjöl- byggðara“. Og allt fram á þennan dag mun mega segja, að þessi ummæli standi óhögguð, hvað snertir byggingu sveitanna. Oft hefir að vísu verið reynt að færa byggð- ina út, en árangurinn hefir jafn- an orðið lítill. Þeir, sem jarðirnar áttu, hafa ógjarna viljað skerða afnotarétt sinn til þeirra með því að skipta þeim, og auk þess bera ýmis lagaákvæði fyrri tíma með sér, að býlafjölgun hefir ekki verið talin æskileg. Þeir, sem vildu reisa að nýju býli í sveitum lands- ins, urðu því að leita fram til fjalla. Þar lögðust óblíð öræfa- veðrátta og margháttaðir örðug- leikar afdalabyggðar á eitt um að gera landnemanum erfitt fyrir. Saga þessara útvarða ís- lenvkra byggða endaði því mjög á tvo vegu. Þeir önduðust, oftast fyrir aldar fram, eftir að hafa háð látlausa og harðvítuga baráttu án þess að hljóta þau erfiðislaun, er þeir væntu, eða þeir hopuðu af hólmi, gáfust upp fyrir örðugleikun- um, sem virtust ósigrandi. Það mun einróma álit allra vit- urra manna, að blómlegur land- búnaður, sem stendur traustum fótum, sé frumskilyrði fyrir vel- ferð hverrar þjóðar. Jónas Hall- grímsson taldi traustan horn- stein höfuðskilyrði fyrir varanleik hárra sala og kjörvið einn hæfan í skipskili. Bónda telur hann bú- stólpa, bú landstólpa og landbún- aðinn því meginöryggi andlegs og efnalegs gengis hverrar þjóðar. Það er yfirleitt talið, að hér á landi geti mun fleiri menn byggt lífsafkomu sína á landbúnaði en nú er. Og það hefir nokkuð verið gert til þess að fylgja fram þess- ari skoðun. Gerðar hafa verið ákveðnar tilraunir til að greiða fyrir býlafjölgun í landinu. — 39 Bú es betra an biðja sé, halur es heima hver, blóðugt es hjarta þeims biðja skal sér í mal hvert matar.

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.