Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Qupperneq 51
árg. . jan.-marz 1939 VAKA
Um þessa heims gcedi.
Auðœfi jarðarinnar og hagnýting þeirra.
Vort daglega branð
Jón Eyþórsson.
Við vora fyrstu foreldra sagði drottinn: Veriö frjósöm, margfaldizt og
uppfyllið jörðina og gerið ykkur hana undirgefna.
Þetta djarfa og djúpvitra kjörorð hefir gengið sem rauður þráður gegnum
alla baráttu, ringulreið, sigra og ósigra mannkynsins frá því að sögur hófust. Sagan
um hina vitandi og óvitandi viðleitni, til að fylgja því fram, er jafnframt saga
mannkynsins og lýsing jarðarinnar. Moldin ber gróður og ávöxt, en í skauti sínu
geymir jörðin málma, kol olíu og frjóefni, sem er undirstaða starfs og lifs mann-
anna. Og nú er svo komið, að jafnvel hinir fábreyttustu lifnaðarhœttir eru háðir
fjöldamörgum hlutum, smáum og stórum, sem fyrir nokkrum öldum, eða aðeins
árum, hefðu þótt hinar mestu kóngsgersemar.
Við vitum flest til hvers á að nota liina hversdagslegu hluti, en að jafnaði
minna um, hvernig þeir verða til eða hvaðan þeir koma. Og þó má segja um þá,
líkt og Matthías segir um bceina, að hver og einn á sína sögu — sigurljóð og
raunabögu.
Úr þessari sögu hefi ég lofað að skrifa nokkra þœtti fyrir Vöku. Þeir verða
að mestu leyti þýddir eða endursagðir úr bók eftir rússneskan höfund, Juri Sem-
jonow. Hún er rituð á þýzku 1936, en þegar þýdd á mörg tungumál. í sœnskri
þýðingu er hún gefin út af bókaforlagi Sambands sœnskra samvinnufélaga.
Hér verður framsetningin mjög stytt og mörgum atriðum sleppt.
Fyrstu þœttirnir eru um kornmatinn og brauðið. Síðan munu væntanlega
fylgja þættir um skógana, ullina, silkið, hörinn, línið, kolin, olíuna, sykurinn,
kaffið, járnið, stálið o. s. frv.
Sagan af því, hvar og hvernig hinn algengi varningur og lífsnauðsynjar eru
nppsprottnar og hvernig þœr hafa breiðzt milli landa og heimsálfa, er nátengd
landafrœði. Hnattstaða, landslag, landkostir og veðrátta skapa harla misjöfn
skilyrði til framleiðslu og viðskipta. Með tœkni nútímans má þó nokkuð jafna
aðstöðuna. Saga varningsins er oft tengd forgöngu og brautryðjendastarfi ein-
stakra manna eða þjóða.
Þessir þœttir eru því jöfnum höndum brot úr sögu og landafrœði. Þeim er
œtlað að gefa lesendum Vöku víðari sjóndeildarhring og vekja til skilnings á því,
hve víða stendur fótum velferð vors daglega lífs.
JÓN EYÞÓRSSON.
49