Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 76

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 76
V A K A 2. árg. . Jan.-marz 1939 jTón Emil Cruðjónsson: Um Töknmenn og- Ungmeimafélög Samtök Vökumanna hafa nú starfað um nokkurt skeið í landinu, aðallega þó í skólum og út frá þeim. Ungmennafélögin eiga sér lengri starfssögu að baki. Þau hafa lifað sitt blómaskeið og hrörnunar, en virðast nú vera að færast nokkuð í aukana á ný. Starfsemi Vökumanna er aftur á móti eigi fullmótuð. Enn er hún á bernskuskeiði. Með útgáfu tímarits Vökumanna má þó segja, að félagsskapur þeirra hefjist nú þegar allmyndarlega á legg. Hér er um tvær æskulýðshreyf- ingar að ræða. Þær eru skyldar um margt, en hafa þó hvor um sig sín sérstöku áhugamál, og velja sér að verulegu leyti mis- munandi starfssvið, svo sem vikið mun verða að hér á eftir. Pram til þess hafa lítt fallið vingjarn- leg orð á milli þessara tveggja fé- lagsheilda. Það mun jafnvel eigi örgrant um, að sumir aðilar hafi litið svo á, að hér væri um and- stæð félagssamtök að ræða. Að minni hyggju er þetta hinn mesti misskilningur, sem þörf er að leiðrétta. Það virðist fyllilega eðli- 74 legt, að bæði þessi samtök hafi skapazt hér í landinu og að þau leysi framvegis viðfangsefni sin, eigi sem andstæðingar, heldur í meira og minna nánu samstarfi, eftir því sem bezt kann að henta á hverjum stað og tíma. Að þessu má leiða mörg rök, þótt hér verði aðeins vikið að nokkrum þeim, er mestu máli skipta. Þegar ungmennafélögin hófu göngu sína, voru þau í öndverðu mjög sterk þjóðlífshreyfing. Þau voru hressandi andblær, er vakti æsku þessa lands til nýrra með- vitundar um sjálfa sig og gáfu henni ný tækifæri til félagslífs og sameiginlegra átaka. Síðan hefir margt breytzt í íslenzku þjóðlífi. Múr einingarinnar hefir verið rofinn. Landið hefir laugazt í hafróti nýrra áhrifa. Ný viðhorf hafa skapazt og nýjar stefnur gert vart við sig. Það hefir oft verið vandi að velja og hafna, eigi sízt fyrir hina yngri kynslóð. Hún hefir verið næmari fyrir hvoru- tveggja áhrifunum, hinum góðu og slæmu. í stuttu máli: Þjóðfélagsaðstæð-

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.