Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Síða 78
y A K A 2. árg. . Jan.-marz 1939
Bæknr
Björn á Reyffarfelli, ljóðaflokkur eftir Jón Magnússon, er ein af
athyglisverðustu bókunum, sem út komu á
síðasta ári. Bók þessi er ólík öðrum ljóðabókum. Hún er saga í bundnu
máli, en öðru hvoru er skotið inn köflum í óbundnu máli til skýringar.
Þessi bók eykur að mun hróður Jóns Magnússonar, og má mikið vera,
ef alþýða manna tekur henni ekki tveim höndum. — ísafoldarprent-
smiðja er útgefandi.
Þroskaleiffir. ísafoldarprentsmiðja hefir nú gefið út bók, sem dr.
Símon Jóh. Ágústsson hefir samið upp úr ýmsum
fyrirlestrum sínum um uppeldismál. Bókina nefnir dr. Símon Þroska-
leiðir. Ber þar mest á fyrirlestum, sem höf. flutti á vegum Háskóla
íslands veturinn 1936—37. Vöktu þeir fyrirlestrar allmikla eftirtekt,
og munu margir, er á þá hlýddu, fagna útkomu þessarar bókar.
ingarstarfsemi: rœktun lýðs og
lands. Einnig þeirra bíffa ótelj-
andi verkefni. Félagssamtök ís-
lenzkrar æsku hafa vissulega næg
vifffangsefni. Svo mörg eru þau
Grettistökin, sem þörf er aff lyfta.
Og eigi skortir heldur rýmið til
átaka. Viðfangsefni Vökumanna
og ungmennafélaganna verða
þannig hvort tveggja í senn —
samstæff um margt eins og eðli-
legt er um tvær félagsheildir,
sem báðar eru bornar uppi af
unga fólkinu — en þó jafnframt
að mörgu leyti sérstæff og ólík,
svo sem stefnuskrár og starfs-
hættir benda til. Þessar tvær
æskulýffshreyfingar hljóta líka
að hafa samstarf um margt, þar
sem slíkt kann að gera auðveld-
ara að bera stefnuskrármálin
76
fram til sigurs. Vökumenn hafa
einnig lýst því yfir í stefnuskrá
sinni, aff þeir vilji vinna í nánu
samstarfi og vinsemd við bind-
indis- og ungmennafélagsskap-
inn, að hann mundi þarna mæta
Vökumönnum á miðri leið.
Unga fólkið hefir nú betri að-
stöðu til samstarfs heldur en
nokkru sinni fyrr. Það virðist
líka fúst til að reyna samtaka-
máttinn. Svo mörg æskulýðssam-
tök eru nú starfandi hér í land-
inu. Þau, sem vernda vilja núver-
andi þjóðskipulag, munu ætíð
finna mörg viðfangsefni, sem vel
fer að leysa með sameiginlegum
átökum og þannig að stefna að
því markmiði að skapa samhuga
fylkingu allrar hinnar lýðræðis-
sinnuðu æsku þessa lands.