Borgfirðingabók - 01.12.2004, Síða 90
88
Borgfirdingabók 2004
í þessu verkefni. Voru þessar samkomur í félagsheimilinu Brú-
arási, hinar ágætustu samverustundir. Þetta verkefni vakti fólk
til umhugsunar um hvernig mætti breyta lífsháttum til vist-
vænni vegar.
Vorið 2003 fór sveitarstjórn af stað með „umhverfisátak“.
Það gengur svo til að hvert heimili getur sótt um styrk til ým-
issa framkvæmda sem miða að því að fegra ásýnd staðarins.
Margir fóru út í framkvæmdir sl. sumar, svo sem að mála hús,
setja upp hlið, lagfæra tröppur og stéttar og fleira. Atakið
stendur enn yfir.
A síðastliðnu ári var hafin vinna við gerð aðalskipulags fýrir
sveitarfélagið og er sú vinna komin nokkuð á veg. Hildigunn-
ur Haraldsdóttir arkitekt var fengin til að vinna þetta verk.
Kvenfélag Hvítársíðu stóð fýrir gönguferðum á laugardög-
um sl. vetur. Var gengið með Hvítá, byrjað neðst í Síðumúla-
veggjalandi og gengið upp með ánni alveg fram fýrir Kalmans-
tungu. Gengið var um 1-1,5 klst í hvert sinn, svo þetta voru þó
nokkuð margir göngutúrar. Þó íbúar væru hér á heimaslóðum
voru margir að koma á óþekktar slóðir á köflum. Abúendur
jarða kynntu sitt land og sögðu frá örnefnum og fleiru
skemmtilegu. Landslag með Hvítá er ákaflega fjölbreytilegt,
þar sem hún liðast niður sveitina. Þáttaka í þessum göngutúr-
um var yfirleitt góð, allt upp í 20 manns.
Kynslóðir koma og fara. Síðastliðið vor varð bráðkvaddur
Sigurður Guðmundsson bóndi á Kirkjubóli. Hann hafði um
langt skeið gegnt mikilvægu hlutverki í tónlistarmálum hér í
uppsveitunum. Var orgelleikari í nokkrum kirkjum og stjórn-
aði lengi Karlakórnum Söngbræðrum. Seint í september
kvaddi svo elsti íbúi sveitarinnar til margar ára, Anna Brynjólfs-
dóttir fyrrum húsfreyja á Gilsbakka, tæplega 97 ára gömul.
Hvítsíðingar hafa búið við óvenju mikið barnalán undan-
farna tvo áratugi, og eru íbúar 18 ára og yngri 30 talsins en íbú-
ar alls 83. A þessu vori fermast þórir unglingar og mun vera
nokkuð langt síðan fermingarbörn voru svo mörg. Nýjar kyn-
slóðir eru ein meginforsenda þess að byggðirnir blómgist og
vonandi verða áfram forsendur fyrir góðu mannlífi hér í Hvít-
ársíðu þó tímarnir breytist.
Árni Bragason hreppsnefndarmadur.