Fréttablaðið - 13.01.2023, Síða 9
Margt fólk myndi
frekar láta lífið en að
breyta háttum sínum.
Hindrunin er þrjóska.
Lausnin er opinn
hugur.
Á dögunum varð ég vitni að manni
fussa af miklum tilþrifum – líkt og
uppsöfnuð viðurstyggð áratuganna
fengi útrás í munngeiflum –út af
hugmyndinni um að hægt væri að
búa til kjöt í tönkum. Hann hafði
aldrei heyrt annað eins. Hver ætti
að borða slíkan viðbjóð?
Samhengið er þetta: Aðferðir til
að búa til prótein, eða kjöt – eins og
til dæmis kjúklingabringur – með
því að rækta frumur eru nú mjög að
ryðja sér til rúms, þótt enn séu þær
kostnaðarsamar. Hér er um að ræða
leið til að mæta sívaxandi nær-
ingarþörf mannkynsins án þess að
þurfa að drepa dýr eða valda gríðar-
legum umhverfisspjöllum, með
niðurbroti vistkerfa og útblæstri
gróðurhúsalofttegunda. Og það
sem meira er, kjötið þykir bragðast
nákvæmlega eins og það kjöt sem
við þegar þekkjum.
Margur spyr sig: Er þetta ekki
frábært? Ég er nokkuð viss um að
þónokkrir séu jú þeirrar skoðunar
að hér sé hugsanlega mikil og góð
framfarabylting í aðsigi, en hitt
þykist ég líka vita nokkuð vel, að
urmull af fólki má ekki til þess
hugsa í eitt andartak að leggja sér
til munns slíkar afurðir. Ef ég þekki
mína dýrategund rétt, mun and-
staðan verða mikil og megn. Hér er
jú hefðbundinn landbúnaður í húfi.
Verði kjöt búið til í tönkum þarf
ekki að spyrja að leikslokum í þeim
efnum.
En svo er það hitt. Vistkerfi jarðar
er á heljarþröm út af háttum mann-
kynsins. Gríðarlegar breytingar
þurfa að eiga sér stað, ekki síst á
því hvernig mannkynið fram-
leiðir matvæli. Matvælaframleiðsla
veldur um fjórðungi af útblæstri
gróðurhúsalofttegunda á heims-
vísu.
Vandi mannkynsins er þó
ekki bara umhverfislegur,
heldur er hann ekki síður sálfræði-
legur og félagslegur. Staðreyndin
er sú að ákaflega margt fólk myndi
frekar láta lífið en að breyta háttum
sínum. Hindrunin er þrjóska.
Lausnin er opinn hugur.
Ágæt leið til að opna hug sinn er
að hugsa um fáránleika núverandi
aðferða. Skoðum kjötdæmið. Ef
ástæða er til viðurstyggðar út af
kjöti sem er búið til í tönkum með
því að rækta þar frumurnar, er þá
ekki líka tilefni til verulegra munn-
geifla út af núverandi iðnaðarfram-
leiðslu á kjöti? Eru það betri verk-
smiðjur þegar grannt er skoðað?
Kjúklingum er þar troðið í búr og
svínum í hólf og þau fituð með
vísindalegum aðferðum. Hljómar
eins og kerfisbundin framleiðsla á
frumuvefjum, nema bara ógeð-
felldari.
Hægt er að stunda landbúnað
þannig að hann beinlínis bjargi
vistkerfum og hægt er að framleiða
matvæli þannig að umhverfisáhrif
séu hverfandi. Til þess að svo megi
verða er nauðsynlegt að ríghalda
ekki í gamla siði, eins og þeir séu
heilagir.
Margir eru sem betur fer sam-
mála þessu, en hinir eru víða.
Veislustjórar þorrablóta munu seint
hætta að gera grín að grænkerum,
þótt brandararnir verði sífellt and-
lausari. „Vegan borðið er frammi á
gangi,“ munu þeir segja á komandi
blótum og hlæja hrossahlátri.
„Engir sojahrútspungar hér.“
Samt er betra fyrir umhverfið og
okkur öll að fleiri séu vegan. And-
stöðu við umhverfisvænni hætti
er að finna á öllum sviðum. Á dög-
unum heyrði ég skelegga konu ræða
við erlent ferðafólk um rafmagns-
bíla. Ég lagði við hlustir. Hún fann
slíkum bílum allt til foráttu. Þeir
dygðu ekkert í snjónum. Batteríin
ómöguleg. Sem eigandi slíks bíls
fannst mér þetta athyglisvert. Bíll-
inn er sá besti sem ég hef keyrt, líka
í snjó. En hún er lífseig hugmyndin
um að betra sé að keyra bíla með
óskiljanlegum 2.000 parta vélum
sem ganga út á það að fylla tank
af sprengiefni, brenna það undir
járnhlíf og blása svo menguninni út
í andrúmsloftið.
Og hvers vegna ætti að höggva
tré og bera það inn um lúguna til
mín svo að ég geti lesið fréttir? Ég
les fréttir jafn vel í stafrænu formi,
ef ekki betur, og án slíkra umhverf-
isáhrifa. Ég skil raunar ekki fyllilega
af hverju íslenskir fréttamiðlar eru
ekki löngu komnir með frábær öpp,
eins og til dæmis New York Times
og Guardian. Í þessu er Ísland eftir
á.
Hefðirnar eru sterkar. Margar
þeirra eru erfiðar hindranir. Sitt
sýnist hverjum um nýjar umhverf-
isvænari aðferðir í orkuframleiðslu.
Vindmyllur eru nýja lúpínan og
hafa tekið við sem sigurstrang-
legasta leiðin til að hleypa upp
eldhúspartíum og heitum pottum.
En hér reynir á. Þarf kannski hver
og einn að finna í hjarta sínu leið til
þess að sjá fegurðina í því að nauð-
synlegrar orku sé aflað með því að
beisla vind eða fanga sól, í stað þess
að bora mörg þúsund metra ofan
í jörðina til þess að ná í gamla sól í
formi olíu til þess að brenna hana
og eyðileggja lífríkið?
Opinn hugur er krefjandi. Maður
þarf að rækta hann, líkt og frumur
í tanki. n
Opinn hugur 2023
Guðmundur
Steingrímsson
n Í dag
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023 Skoðun 9Fréttablaðið