Fréttablaðið - 21.01.2023, Page 22

Fréttablaðið - 21.01.2023, Page 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Margrét tekur þrjú hylki af Active JOINTS frá Eylíf á morgnana eins og mælt er með og fann fljótt fyrir auknum liðleika. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINk Ragnhildur Sigurðardóttir golfkona segist ekki hafa gætt að vítamín búskap sínum á ketófæði og hárið hafi orðið stamt og hárlos töluvert. Hún þakkar Smoother Skin & Hair að hárið er orðið miklu þéttara og betra. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Margrét segist vera búin að stunda þríþraut í ellefu ár en því fylgir mikið álag á líkamann. „Á þessum aldri og eftir miklar líkamlegar æfingar í gegnum árin þurfti ég að finna eitthvað sem héldi liða mótunum góðum. Ég var búin að prófa ýmislegt þegar ég rambaði á Active JOINTS frá Eylíf fyrir næstum þremur árum. Síðan hef ég ekki fundið fyrir neinu í liðunum. Active JOINTS virkar svona vel fyrir mig. Þess vegna finnst mér í góðu lagi að mæla með því fyrir aðra. Ég vil að fólk viti af þessu fæðubótarefni,“ segir Margrét. „Ég var farin að finna fyrir eymslum í liðunum eftir strangar æfingar, sérstaklega á morgnana þegar ég fór fram úr. Ég finn ekki fyrir því lengur. Að keppa og æfa mikið fylgir meiðslahætta. Ef það gerist þarf að slaka aðeins á, ég fer til sjúkraþjálfara og passa upp á mig,“ heldur Margrét áfram. „Fyrir tveimur árum náði ég mér í bein mar í hné og þarf stundum að nota spelku frá Össuri ef ég finn mikið fyrir því. Liðirnir eru fínir og það þakka ég Active JOINTS.“ Byrjaði yfir fimmtugt „Ég var komin yfir fimmtugt þegar vinnufélagi minn þáverandi kynnti mig fyrir þríþraut og ég kolféll fyrir íþróttinni. Mér fannst þetta ofboðslega skemmtilegt, góður félagsskapur og æfingarnar meiriháttar fyrir líkamann. Ég æfði mikið, 8–10 tíma á viku. Ég féll vel inn í þennan hóp og fannst einstak lega gaman að keppa. Mér finnst alltaf gott að reyna á mig líkam lega,“ segir Margrét. „Þrí- þrautin samanstendur af sundi, hlaupi og hjólreiðum. Vegalengd- irnar eru mislangar, allt frá sprett- þraut sem ég klára á 45 mínútum upp í heilan járnkarl sem er 16 tíma vinna. Ég æfi og keppi með Þríþrautardeild Breiðabliks,“ segir Margrét sem hefur keppt mikið í sumar. „Þrí þrautin á hug minn allan og mig langar ekkert að hætta,“ bætir hún við. „Ætla að halda áfram svo lengi sem ég get og finnst gaman.“ Tók þátt í járnkarli Í fyrrasumar fór Margrét til Danmerkur og tók þátt í hálfum járnkarli. „Það var ótrúlega gaman. Keppnin felst í 1.900 metra sundi sem fram fór í höfninni á Helsingjaeyri. Síðan hjóluðum við í 90 kílómetra um Norður-Sjáland og hlupum síðan hálft maraþon í miðbæ Helsingja eyrar. Þetta fannst mér óskaplega skemmti- legt. Við eigum að gera það sem við höfum ánægju af, sérstaklega þegar aldurinn færist yfir og ekki fyrir neinum að sjá nema okkur sjálfum.“ Margrét segist reyna að hvíla einu sinni til tvisvar í viku. „Stundum eru æfingar tvisvar á dag,“ segir hún. Margrét keppir í sínum aldursflokki en hún viður- kennir að hópurinn sé ekki stór. Það er merkilegt að Margrét var aldrei í íþróttum þegar hún var yngri. „Áhuginn vaknaði þegar ég var dregin inn í þetta komin yfir miðjan aldur,“ segir hún og hlær. „Ég fann strax hvað þetta var gaman og hentaði mér vel. Ég æfi þessar þrjár greinar sem þríþrautin er, en með fram því þarf ég að gera styrktaræfingar og teygjur. Það er afar mikilvægt,“ segir hún. CrossFit í pásunni Hún tók þátt í sprettþraut í fyrra- sumarsem fram fór í Reykjanesbæ. Sprett þrautin er stysta vegalengd- in, þá er synt 400 metra í sundlaug, hjólað 10 kílómetra og hlaupið 2,5 kílómetra. „Eftir þá keppni ætlaði ég að taka smá pásu og gera eitt- hvað allt annað til að hvíla hugann á þríþrautinni. Núna er það CrossFit. Það hef ég gert einu sinni áður og finnst skemmtilegt. Ætli ég taki ekki einn og hálfan mánuð í því áður en þríþrautin hefst aftur,“ segir þessi ofurkona. „Í sumar fer ég svo í hálfan járn- karl í Svíþjóð með félögum mínum í Breiðabliki,“ segir Margrét sem hefur eignast marga vini í kringum sportið. „Þetta er svolítið „ext- Ragnhildur Sigurðardóttir golfkennari segist hafa kynnst Smoother Skin & Hair frá Eylíf í gegnum vinkonu sína, en hún hafði þjáðst af hárlosi og líf­ lausu hári. Hún segist finna mikinn mun á sér. Ragnhildur er þessa dagana að undirbúa vetrarnámskeið sem hefj ast í janúar. „Ég kenni í golf- hermum GKG í vetur og skráningar eru í fullum gangi. Á þessum árs- tíma er oft rólegra í golfkennslunni en eftir að kylfingarnir fóru að átta sig á því hvað golfhermarnir hafa upp á að bjóða hefur ásóknin í þá aukist til mikilla muna. Vetrar- námskeið sem byrja oft í kringum áramót eru hins vegar mjög vinsæl og margir mæta árlega í þau til þess að vera klárir með fínu hreyfing- arnar sínar fyrir vorið,“ segir hún. Ragnhildur segist hafa kynnst Smoother Skin & Hair frá Eylíf í gegnum vinkonu sína, Mjöll Daní- elsdóttur hárgreiðslukonu. „Hún ber ábyrgð á hárinu á mér. Henni leist ekki á blikuna þegar hún sá hvernig hárið á mér var orðið en ég var þá búin að vera á lágkolvetna/ ketó mataræði í töluverðan tíma. Á ketó mataræði er manni ráðlagt að halda sig frá ávöxtum vegna ávaxtasykursins og ég gætti ekki að því að passa upp á vítamín- búskap líkamans,“ upplýsir Ragn- hildur og bætir við: „Hárið á mér var orðið stamt, erfitt að greiða það og það var mikið hárlos. Fljótlega eftir að ég byrjaði að nota Smoother Skin & Hair frá Eylíf fór ég að finna mun og mér finnst hárið á mér verða heilbrigðara og heilbrigðara með hverjum deginum sem líður. Nú er ég búin að vera að taka það inn í um það bil fjóra mánuði. Ég mun halda áfram að fylgja ketó/lágkolvetna mataræðinu því ég fann mikinn mun á líðan og heilsu eftir að ég byrjaði á því, fyrir utan ástandið á hárinu á mér. Ég er ekki frá því að ég finni mun á húðinni, en munur á liðum og meltingu var svo mikill eftir að ég byrjaði á ketó að ég get ekki alveg sagt með vissu um áhrif Smoother Skin & Hair frá Eylíf á þá þætti,“ segir hún. „Íslensk bætiefni eru ofarlega á vinsældalistanum mínum enda er uppruni innihaldsefna yfirleitt fyrsta flokks. Í leiðinni er ekki ónýtt að geta stutt við og styrkt íslenskt hugvit og framtakssemi okkar hæfasta fólks. Heilsan okkar er mikilvæg og án hennar erum við fátækari sama hversu rík við erum á veraldlegum mælikvarða. Vilji maður ná árangri í íþróttum, leik og starfi er mikilvægt að huga að því sem okkur er nauð- synlegt til þess að líkaminn virki. Hraðinn á okkur er oft svo mikill að við gefum okkur ekki tíma til þess að gæta þess að líkaminn fái öll þau næringarefni og bætiefni sem hann þarf og þá er stórkost- legt að geta leitað til snill inganna sem sjá um að safna þeim saman fyrir okkur í litlar meðfæri legar krukkur,“ segir Ragnhildur. Smoother Skin & Hair frá Eylíf inniheldur: Hárið heilbrigðara og hárlos minnkaði Fæðubótarefni koma ekki í stað inn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. n Kollagen n Smáþörunga (Astax anthin) n GeoSilica n Vítamín A, B2, B6, C, D3 n Bíótín n Níasín n Kopar n Zink n Joð n Selen Heilsan er dýrmætust Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar frábærar heilsuvörur sem reynst hafa fólki vel. Þær eru Active JOINTS, Stronger BONES, Smoo t- her SKIN & HAIR, Happier GUTS, og Stronger LIVER er nýjasta varan. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hráefnum og engum aukefnum er bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi Eylíf. „Hugmyndin að vörulínunni kom til vegna þess að mig langaði að setja saman þau frábæru hrá- efni sem framleidd eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr íslenskum, náttúrulegum auðlindum og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum,“ upplýsir Ólöf. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta varan okkar er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk nær- ingarefni og sýna margra ára rann- sóknir fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka, sækjum í sjálf bærar auðlindir úr sjó og af landi, og notum hreina, íslenska náttúruafurð og hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“ Hráefni sem notuð eru í bætiefnin frá Eylíf eru ekki erfðabreytt. „Þau stuðla að heilbrigði og sveigjan- legri líkama því þá erum við færari um að takast á við verkefnin í dagsins önn. Við vitum öll að heilsan er okkur dýrmætust og því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsu- farsvandamál. Heilbrigð melting er grunnur að góðri heilsu og þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á hágæðavöru fyrir melting- una,“ segir Ólöf Rún. n Eylíf vörurnar fást í öllum apótek­ um, Fjarðarkaupum Hagkaupum, Nettó, Heilsuhús inu, Krónunni og Melabúðinni. Ókeypis heim­ sending ef keypt er á eylif.is. reme“ sport og hentar ekki öllum. Hins vegar ættu allir að reyna að finna eitthvað við sitt hæfi, hreyfing á þessum aldri er mjög mikilvæg þótt hún þurfi ekki að vera keppnis. Ég er mjög orkumikil og finnst gaman að vera til. Þrí- þrautin gefur lífinu lit,“ segir hún. Margrét tekur þrjú hylki af Active JOINTS frá Eylíf á morgnana eins og mælt er með. „Ég fann mjög fljótlega eftir að ég byrjaði að taka Active JOINTS að liðleikinn var allt annar. Ég er því ákveðin í að halda áfram að taka Active JOINTS. Mér finnst mikill plús að Active JOINTS er íslenskt fæðu bótarefni með hreinum efnum úr okkar nátt- úruauðlindum.“ n 2 kynningarblað A L LT 21. janúar 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.