Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 4
Costco vissi af bil- uðum mengunar- varnabúnaði áður en olían lak út í kerfið. Hildur Rós Guð- bjargardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar Auðvitað viljum við forðast í lengstu lög að keyra verksmiðjuna á gasi. Halldór Hall- dórsson, for- stjóri Íslenska kalkþörunga- félagsins gar@frettabladid.is Úkraína Bandaríkin ætla að beita refsiaðgerðum gegn Wagner-hópn- um svokallaða sem tekur virkan þátt í stríði Rússa í Úkraínu. „Wagner eru alþjóðleg glæpa- samtök sem halda áfram umfangs- mik lum grimmdar verkum og mannréttindabrotum,“ sagði John Kirby, fjölmiðlafulltrúi Joe Biden Bandaríkjaforseta, í gærkvöldi. Sagði Kirby nú vera merki um núning milli stjórnvalda í Rússlandi og Wagner-hópsins sem lýtur stjórn auðmannsins Jevgení Prígozjín, sem kallaður er „kokkur Pútíns“. n Refsiaðgerðir gegn her kokks Pútíns kristinnpall@frettabladid.is Hafnarfjörður Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi ákvörðun byggingarfull- trúa Hafnarfjarðar um samþykki byggingaráforma um knatthús að Ásvöllum. „Þessi niðurstaða kemur mér á óvart en þetta hlýtur að vera eitt- hvað sem hægt er að vinna sig í gegnum,“ segi Magnús Gunnars- son, framkvæmdastjóri Hauka, sem kveður tíðindin óvænt. Í vor verða tvö ár frá skóflustungu að knatthúsinu. Málið hefur velkst um í kerfinu vegna gruns um að framkvæmdin hefði slæm áhrif á umhverfið og þá sérstaklega Ástjörn. n Leyfi fyrir Hauka úrskurðað ógilt Vladímír Pútín Rússlandsforseti. Fréttablaðið/Getty 4 fRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 21. jAnúAR 2023 LAUGARDAGUR Vonast er til að kalkþörunga- verksmiðja, sem mun skapa yfir 30 ný störf í Súðavík, verði gangsett eftir tvö ár. Verksmiðjan mun að öllum líkindum ganga fyrir gasi fyrst um sinn þar sem enn hefur ekki tekist að tryggja verkefninu orku og leggja raf- streng um Súðavíkurhlíð. ggunnars@frettabladid.is orkumál Unnið hefur verið að því að koma verksmiðju Íslenska kalk- þörungafélagsins á laggirnar í Álfta- firði við Súðavík svo árum skiptir. Viljayfirlýsing um verkefnið var fyrst undirrituð fyrir sjö árum en síðan þá hefur verið unnið að því að afla verkefninu nauðsynlegra heim- ilda og ganga frá skipulagi. Þessi vinna hefur tekið mun lengri tíma en gert var ráð fyrir í upphafi. Nú hillir hins vegar undir að verkefnið verði að veruleika. Kalkþörungafélagið hefur tryggt sér nýtingarleyfi upp á 125 þúsund rúmmetra af kalkþörungum á hverju ári. Framkvæmdir eru hafnar við landfyllingu undir starfsemina á Langeyri rétt innan við íbúðabyggð í Súðavíkurþorpinu. Við það skapast yfir 30 ný störf í sveitarfélagi sem telur einungis um 240 íbúa. Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins, segir ánægjulegt að skriður sé loks að komast á verkefnið. Framkvæmdir við landfyllingu gangi vel og svæðið sé farið að taka á sig mynd. „Þetta er mikið hagsmunamál. Ekki bara út af þeim verðmætum sem skapast heldur líka fyrir sam- félagið í Súðavík í heild,“ segir Hall- dór. Að hans sögn á þó eftir að ryðja stærstu hindruninni úr veginum því enn eigi eftir ganga frá samn- ingum við Orkubú Vestfjarða um raforkuna sem þarf til að knýja verksmiðjuna. Halldór segir að þótt orkuþörf verksmiðjunnar sé ekki nema sjö til átta megavött á ári þá sé það margfalt meira en núverandi aðstæður í Súðavík bjóði upp á. „Samskiptin við Orkubúið hafa verið jákvæð en það er ekki búið að skrifa undir neinn samning. Auð- vitað viljum við forðast í lengstu lög að keyra verksmiðjuna á gasi en ef þessi strengur verður ekki kominn í tæka tíð þá einfaldlega neyðumst við til þess.“ Halldór segist vonast til að hægt verði að leysa málið og að strengur- inn verði kominn áður en starf- semin fari af stað. „Við getum alveg klárað þetta, en tíminn er að verða naumur. Ég kann ekki að skýra af hverju þetta hefur tekið svona langan tíma en það eiga örugglega allir sinn þátt í því. Aðalmálið núna er að koma raf- orkumálum í Súðavík í viðunandi horf svo við getum nýtt græna orku frekar en gas,“ segir Halldór. n Ný verksmiðja í Súðavík mun ganga fyrir gasi í byrjun því raforku skortir Vinna er hafin við grjótgarð og landfyllingu á svæðinu þar sem kalkþörungaverksmiðja mun rísa rétt innan við Súðavík. MyND/aðSeND kristinnhaukur@frettabladid.is Hafnarfjörður Hildur Rós Guð- bjargardóttir, fulltrúi Samfylking- arinnar í minnihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, telur meirihlutann ekki taka mengunarslysið í Costco nógu alvarlega. Telur Hildur bæinn hafa brugðist tilkynningarskyldu sinni til íbúa og bæjarfulltrúa. Þá hafi Umhverfis- stofnun ekki strax verið látin vita. „Íbúar voru ekki látnir vita hver upptökin væru. Ekki heldur við í minnihlutanum sem sitjum í nefndum,“ segir Hildur sem lagði fram tillögu um rannsókn á til- drögum og viðbrögðum við slysinu í bæjarstjórn í vikunni. Það var fyrir jól sem íbúar í norð- urbæ og vesturbæ Hafnarfjarðar fundu stæka ólykt sem minnti á olíulykt. Sumir fundu fyrir ógleði og höfuðverk vegna lyktarinnar. „Fólk var við það að hætta við fjöl- skylduboð því þetta gerðist yfir hátíðirnar,“ segir Hildur. Þremur vikum seinna kom í ljós að lyktin kom frá bensínstöð Costco þar sem búnaður brast. Í minnisblaði veitustjóra kemur fram að Costco hafi vitað af bil- uðum viðvörunarbúnaði áður en það gerðist. „Costco vissi af biluðum meng- unarvarnabúnaði áður en olían lak út í kerfið. Af hverju er ekki tilkynn- ingarskylda hjá svona fyrirtæki?“ segir Hildur. „Mín ósk er að það verði farið í rannsókn á þessu slysi og ábyrgð sett á rétta staði.“ Aðspurð um Costco segir Hildur ólíklegt að nokkuð verði aðhafst gegn því fyrirtæki. Engin sektar- ákvæði séu í lögum og fyrirtækið hafi ekki misst starfsleyfi sitt. Einn- ig segist hún sjálf ekki kalla eftir því. Hún vilji hins vegar fá rannsókn á slysinu til þess að hægt verði að bæta verkferla og gera betur í framtíðinni ef svona gerist á nýjan leik. n Bæjarstjórn taki mengunarslys ekki alvarlega Fyrirhugað knatthús. MyND/haukar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.