Fréttablaðið - 21.01.2023, Síða 27
Ráðuneytisstjóri
innviðaráðuneytisins
Auglýst er laust til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra í innviðaráðuneytinu.
Verkefni ráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars
samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, húsnæðis- og mannvirkjamál og
skipulagsmál. Undir ráðuneytið heyra Byggðastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun,
Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Skipulagsstofnun, Vegagerðin
og Þjóðskrá Íslands.
Hlutverk ráðuneytisins er að vera leiðandi í stefnumótun og áætlanagerð, hafa eftirlit með
stofnunum og eigum ríkisins, meðferð stjórnsýslukæra og rekstur og starfsmannahald
ráðuneytisins. Einnig er ráðuneytið í alþjóðlegu samstarfi, leggur áherslu á víðtækt samráð
og upplýsingagjöf og vandaða vinnu við gerð laga og reglugerða.
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn innviðaráðherra. Ráðherra setur
ráðuneytisstjóra erindisbréf þar sem kveðið er á um starfssvið og starfsskyldur, sbr. 18. gr.
laga nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands. Starfssvið og starfsskyldur ráðuneytisstjóra eru
víðtækar og ber ráðuneytisstjóri m.a. fjárhagslega og faglega ábyrgð gagnvart ráðherra á
starfsemi ráðuneytis. Þá ber ráðuneytisstjóra að veita ráðherra upplýsingar og ráðgjöf þannig
að ráðherra geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og stefnumótun og sé vel upplýstur varðandi
þau mál sem unnið er að. Ráðuneytisstjóra ber einnig að stuðla að framgangi og árangri
löggjafar á málefnasviðum ráðuneytisins og að afgreiðsla mála á hverjum tíma sé fagleg.
Þá ber ráðuneytisstjóra að samhæfa stefnumótun á öllum málefnasviðum ráðuneytisins,
stuðla að samhentri stjórnsýslu og samræma stefnu og aðgerðir ráðuneytisins við vinnu
annarra ráðuneyta þegar málefni og málefnasvið skarast.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf skilyrði.
• Þekking og reynsla á málefnasviðum innviðaráðuneytisins.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Þekking og reynsla af stefnumótun.
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Innviðaráðuneytið
Innviðaráðherra skipar í embættið frá 1. maí 2023 til fimm ára. Um laun og önnur starfskjör
fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.
Upplýsingar um starfið veitir Ingilín Kristmannsdóttir skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu,
ingilin.kristmannsdottir@irn.is s. 545 8200. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu
umsóknar og þann árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist embættinu.
Hæfnisnefnd skipuð af innviðaráðherra metur hæfni umsækjenda samkvæmt reglum nr.
393/2012.
Umsókn skal skila rafrænt á starfatorg.is eigi síðar en 31. janúar 2023. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.