Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 6
Langflestar stelpurnar
hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi og
orðið óléttar út af því.
Anna Þóra Baldursdóttir,
hjá Haven Rescue Home
Fólk flykkist hingað í
tugþúsundatali til að
upplifa nóttina og þá
sérstaklega það sem
skín á nóttunni, sem
eru norðurljósin.
Sævar Helgi
Bragason,
stjörnufræði-
kennari
helgisteinar@frettabladid.is
umhverfismál Sævar Helgi Braga
son stjörnufræðikennari gagnrýnir
ljósmengun sem hafi færst í aukana
undanfarin ár.
Ljósmengunina segir Sævar ekki
aðeins hafa það í för með sér að ekki
sjáist til himins á nóttunni, heldur
hafi lýsingin heilsuspillandi áhrif á
bæði fólk og umhverfið.
„Það sem við höfum lært er að
þessi mikla raf lýsing hefur rask
andi áhrif á líkamsstarfsemi okkar
og veldur því meðal annars að við
sofum verr. Það eru líka rannsóknir
sem benda til þess að fækkun skor
dýra og fugla í heiminum megi að
mörgu leyti rekja til of mikillar raf
lýsingar á nóttunni.“
Sævar segir ljósmengun vera stórt
vandamál um allan heim en fáir vilja
grípa til aðgerða þar sem fólki finnst
oft óþægilegt að vera í miklu myrkri.
Hann segist ekki tala fyrir því að
slökkva á öllum ljósum, heldur ætti
að haga lýsingunni skynsamlega og
minnka birtuna þar sem á við.
„Við megum heldur ekki gleyma
að myrkrið er ekki bara heilsusam
legt, heldur er það auðlind. Fólk
flykkist hingað í tugþúsundatali til
að upplifa nóttina og þá sérstaklega
það sem skín á nóttunni, sem eru
norðurljósin,“ segir Sævar. n
Segir myrkrið heilsusamlega auðlind
benediktboas@frettabladid.is
selfoss Guðrún Arndís Tryggva
dóttir gaf Árborg málverkið Kafar
ann sem verður sett upp á gangi
sundlaugarbyggingarinnar á Sel
fossi. Skilmálar Guðrúnar eru að
ef verkið verði fært af einhverri
ástæðu geti hún eða afkomendur
hennar fengið verkið til baka. Enda
sé ástæða gjafarinnar sú að sund
laugargestir fái notið þess við heim
sókn í laugina.
Gjöfin var tekin fyrir á fundi
bæjarráðs í vikunni sem þakk
aði kærlega fyrir höfðinglega gjöf.
„Sveitarfélagið getur ekki ábyrgst
verkið í almenningsrými í sund
lauginni, það er tryggt það sérstak
lega fyrir skemmdum,“ segir þó í
bókun bæjarráðs. n
Ábyrgjast ekki kafarann í lauginnni
Guðrún Arndís
Tryggvadóttir,
listakona
DAGSKRÁ
í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn 23. janúar 2023 kl. 13:00 - 17:00
Verið velkomin í stóra sal HR V101 - aðgangur ókeypis - beint streymi á www.mbl.is
Opnun:
dr. Ragnhildur
Helga dóttir,
rektor
Fundarstjóri
fer yfir
markmið
ráðstefunnar
Söguleg atriði
Pétur H.
Ármansson,
arkitekt
Hús og heilsa
dr. Alma D.
Möller,
landlæknir
Byggeskader
Trond
Bøhlerengen,
Sintef, Noregi
„Fúsk!“
dr. Ríkharður
Kristjánsson,
verkfræðingur
RK Design
2/3 fúsk er
ekki alslæmt
Einar K.
Haraldsson,
tækni
fræðingur
Ingólfur Bjarni
Sigfússon
fréttamaður
stýrir
pallborðs
umræðum
Fundarstjórn:
dr. Ólafur H.
Wallevik
Prófessor
við HR
dr. Ríkharður
Kristjánsson,
RK Design
Árni Björn
Björnsson,
VFÍ
Indriði
Níelsson,
VERKÍS
Þorvaldur
Gissurarson,
ÞG Verk
Sylgja Dögg
Sigurjónsdóttir,
EFLA
Kolbeinn
Kolbeinsson,
KK Consulting
Þorsteinn
Þorsteinsson,
VÍS
Kl. 15:00 Pallborðsumræður
RÁÐSTEFNA UM RAKA
SKEMMDIR OG MYGLU
Fagráðið Betri byggingar í samvinnu við IceIAQ og HR heldur ráðstefnu
með áherslu á bygginga galla og „fúsk“ í nýlegum byggingum.
Haldið til heiðurs dr. Ríkharði Kristjánssyni.
kristinnpall@frettabladid.is
reykjavíkurborg Kolbrún Bald
ursdóttir úr Flokki fólksins gagnrýn
ir að American Bar fái undanþágu til
að sýna frá úrslitaleiknum um Ofur
skálina í amerískum ruðningi.
„Í ljósi umræðunnar um hávað
ann í miðbæ og vinnu við að koma
böndum á hann koma upp í hugann
margar spurningar sem tengjast leyfi
af þessu tagi,“ segir í bókun Kolbrún
ar. Þetta er í annað sinn sem Kolbrún
setur sig upp á móti tímabundnu
áfengisleyfi American Bar vegna
Super Bowl en hún lýsti óánægju
sinni með leyfið árið 2019. n
Á móti undanþágu
vegna Ofurskálar
Kolbrún
Baldursdóttir,
borgarfulltrúi
Flokks fólksins
Heimilið HRH í Kenía er eitt
af fáum úrræðum fyrir bæði
unga móður og barn. Anna
Þóra Baldursdóttir sem rekur
heimilið keypti nýlega land
undir kjúklingaræktun.
kristinnhaukur@frettabladid.is
hjálparstarf Anna Þóra Baldurs
dóttir og félagar hennar sem reka
heimilið Haven Rescue Home
fyrir ungar mæður nálægt Naír
óbí í Kenía hafa keypt land undir
kjúklingaræktun. Það er hluti af
því að gera heimilið sjálf bært en í
dag treystir starfið nær algjörlega á
framlög einstaklinga.
„Eiginlega er þetta fjármagnað í
gegnum Snapchat,“ segir Anna Þóra
sem hefur búið í Kenía í tæp átta ár.
Heimilið hefur verið starfandi í tæp
sex. Þar starfa auk Önnu Þóru átta
starfsmenn, svo sem félagsráðgjafi,
kennari og sálfræðingur. Á Snapchat
leyfir Anna Þóra fylgjendum að sjá
hvernig lífið á heimilinu er, bæði
hvað gengur vel og hvað illa. Mæð
urnar eru allar á barnsaldri, frá 12
til 18 ára.
„Langf lestar stelpurnar hafa
orðið fyrir kynferðisof beldi og
orðið óléttar út af því,“ segir Anna
Þóra. Allar eru þær sendar af barna
verndarfulltrúa en sumar hafa verið
komnar á götuna, að betla. Sumar
þurfa aðeins að dvelja á heimilinu í
stuttan tíma, vegna erfiðra heimil
isaðstæðna eða fátæktar. Flestar
dvelja í tvö eða þrjú ár en þær sem
hafa ekkert öruggt bakland lengur.
Elsta stúlkan sem dvelur á heimil
inu núna er 18 ára með fimm ára
dóttur sinni.
Anna Þóra kom upprunalega til
Kenía sem sjálf boðaliði til þess að
hugsa um ungbörn sem höfðu verið
yfirgefin. En eftir samtöl við heima
fólk áttaði hún sig á því að mesta
þörfin var á heimili þar sem bæði
móðir og barn gátu dvalið, menntað
sig og komið fótunum undir sig í líf
inu. Haven Rescue Home er einn
fárra staða í Kenía sem bjóða upp
á þetta.
„Minn draumur var sá að þær
myndu allar fara mjög langt í námi.
En reynslan sýnir að maður þarf að
sætta sig við að þær muni hafa það
þokkalegt í lífinu,“ segir Anna Þóra.
„Flestar fara ekki í háskóla en þær
klára eitthvert nám og læra oft iðn
eins og hárgreiðslu, saum eða veit
ingaþjónustu. Þetta er vissulega
árangur þó að hann sé ekki jafn
háleitur og ég hafði upphaflega.“
Þegar stúlkurnar koma á heimilið
eru miklar líkur á að þær myndu
yfirgefa barnið sitt og margar eru
ekki sáttar við að vera sendar þang
að. Þegar þær fara frá heimilinu er
sá möguleiki hverfandi í f lestum
tilvikum.
Anna Þóra, sem á í dag fjögurra
ára gamla stelpu, segist hafa svo
litla heimþrá en hún sé alls ekki til
búin til að flytja heim strax. Hún sér
fram á að gera þetta í langan tíma.
„Draumurinn er að koma þessu
í góðan farveg til að ég geti verið
hluta ársins hér og hluta á Íslandi,“
segir hún.
Kjúklingaræktunin er hluti af því
að gera heimilið sjálf bært. Kjötið
verður selt og eggin nýtt á heimil
inu. Anna Þóra segir að þetta skapi
um 100 til 150 þúsund krónur á
mánuði. „Okkur munar helling um
það,“ segir hún.
Hægt er að nálgast upplýsingar
um hvernig megi styrkja starfsem
ina á Facebook og Instagramsíð
unum Styrktarfélag HRH. n
Stefnt að sjálfbæru
heimili ungmæðra
Anna Þóra Baldursdóttir og íbúar á Haven Rescue Home. Mynd/Aðsend
6 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 21. jAnúAR 2023
LAUGArDAGUr