Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 26
LEIKSKÓLAFULLTRÚI ÓSKAST Á FRÆÐSLU- OG MENNINGARSVIÐ GARÐABÆJAR gardabaer.is Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf leikskólafulltrúa. Leitað er að framsæknum leiðtoga með skýra sýn. Viðkomandi þarf að hafa metnað fyrir menntun og uppeldi barna og brenna fyrir velferð þeirra í góðu samstarfi við starfsfólk og foreldra. Í Garðabæ eru starfandi 17 leikskólar, 7 grunnskólar og einn tónlistarskóli. Skólar í Garðabæ mynda samstæða heild sem stuðla að því að jafnræði sé í menntun barna og ungmenna. Leikskólafulltrúi tekur þátt í innleiðingu á Menntastefnu Garðabæjar. Hann er næsti yfirmaður leikskólastjóra og hefur yfirumsjón með starfi leikskóla á vegum sveitarfélagsins. Hann ber ábyrgð á faglegri stjórnun, rekstri og samskiptum við leikskóla sveitarfélagsins. Hann vinnur að þróunar- og nýsköpunarverkefnum með skólum og öðrum aðilum sem koma að uppeldi og menntun barna í bænum. Leikskólafulltrúi veitir skólasamfélaginu ráðgjöf og stuðning. Leikskólafulltrúi vinnur ásamt leikskólanefnd að framtíðarsýn varðandi aðstöðu og aðgengi að leikskólum í sveitarfélaginu í samstarfi við yfirstjórnendur og skólastjóra. Helstu verkefni og ábyrgð: • Þátttaka við mótun og innleiðingu á Menntastefnu Garðabæjar • Umsjón og eftirlit með faglegum og rekstrarlegum þáttum í leikskólum • Eftirlit með faglegu starfi sjálfstætt starfandi leikskóla • Umsjón og eftirlit með starfi dagforeldra • Umsjón með innritun barna í leikskóla • Stuðlar að þróun og nýsköpun á sviði leikskólastarfs • Stuðlar að þverfaglegu samstarfi þeirra aðila sem koma að menntun og uppeldi barna • Tekur þátt í þróun og innleiðingu á samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna • Hefur yfirsýn yfir verkefni og stuðning skólaþjónustu við leikskóla • Hefur eftirlit með að leikskólastarf sé í samræmi við lög, reglugerðir og aðalnámskrá • Veitir upplýsingar um þau málefni sem undir starfssviðið heyra og tekur saman upplýsingar um lykiltölur starfseminnar Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í kennarafræðum ásamt framhaldsmenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af rekstri og áætlanagerð • Þekking og reynsla af starfi leikskóla • Reynsla af stefnumótun • Farsæl reynsla af stjórnun • Sjálfstæði, frumkvæði og framúrskarandi samskiptahæfni • Forystuhæfni og færni til að leiða samvinnu mismunandi hópa • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig skipulega í töluðu og rituðu máli • Góð enskukunnátta • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2023. Nánari upplýsingar um starfið veita Linda Udengård væntanlegur sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs (linda@gardabaer.is) og Inga Þóra Þórisdóttir mannauðsstjóri (ingath@gardabaer.is) Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is 2022 - 2025 Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í meira en 50 ár Erum við að leita að þér? 4 ATVINNUBLAÐIÐ 21. janúar 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.