Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 48
Fyrsti
Íslendingurinn
Ísland hefur af mörgum verið sagt best í heimi. Einu gildir
hvort það er rétt eða rangt, Íslendingar eru framarlega í mörgu.
Hér er samantekt um nokkra merka Íslendinga sem náð hafa
þeim áfanga að afreka eitthvað fyrst okkar allra.
birnadrofn@frettabladid.is
Óskarsverðlaun
Hildur Guðnadóttir
Þann 10. febrúar árið 2020 hlaut
Hildur Guðnadóttir Óskarsverð-
laun fyrst Íslendinga. Verðlaunin
hlaut Hildur fyrir tónlist sína í
kvikmyndinni Joker. Hildur var
einungis fjórða konan í þá 92 ára
sögu Óskarsins til að hljót verð-
launin fyrir frumsamda tónlist.
Hildur hefur unnið til fjölda
virtra verðlauna fyrir störf sín,
til að mynda Grammy, Emmy og
BAFTA.
Ólympíugull
Sigurrós Karlsdóttir
Sigurrós Karlsdóttir var einungis fimmtán ára gömul
þegar hún vann gull á Ólympíuleikum fatlaðra fyrst
Íslendinga. Á sama tíma sló Sigurrós heimsmet í 50
metra bringusundi.
Sigurrós er fædd á Akranesi og gullið vann hún á
Ólympíuleikunum í Arnheim í Hollandi árið 1980.
Á Sigurrósu vantar báða handleggi fyrir neðan oln-
boga en tími hennar í 50 metra sundinu var 1.06.99
mínútur. Keppendur á Ólympíuleik-
unum árið 1980 voru 2.400 frá
43 þjóðlöndum.
Sigldi til Kína
Árni Magnússon
Árið 1760 kom Árni Magnússon til Kanton í Kína en
þangað sigldi hann fyrstur Íslendinga. Hann fæddist
árið 1729 á Geitastekk í Dölum og var samkvæmt
manntali Íslendinga kominn aftur heim til Íslands árið
1801. Þegar hann kom heim hafði hann meðal annars
barist gegn Tyrkjum á Miðjarðarhafi.
Árni sagði að í Kína væri enginn vetur, heldur eilíft
sumar. Dagurinn væri tólf klukkustundir og nóttin
líka. Mikið væri um ávexti, fólkið gengi um í víðum
buxum úr silki og konurnar væru í afar litlum járn-
skóm, svo litlum að þeir pössuðu átta ára gömlu
barni.
Lauk prófi í listfræði
Selma Jónsdóttir
Selma Jónsdóttir var fyrsti Íslendingurinn til að ljúka
prófi í listfræði. Hún fæddist 22. ágúst árið 1917 og
lést þann 5. júlí 1987. Selma lauk BA-prófi í listfræði
frá Columbia-háskóla í New York árið 1944. Eftir að
ljúka grunnnámi stundaði Selma meistaranám við
sama skóla í eitt ár og síðar við Warburg Institute í
London á árunum 1946–1948.
Hún lauk MA-prófi árið 1949 og vakti ritgerð
hennar mikla athygli bæði hér á landi og erlendis.
Selma varð síðar fyrsta konan sem hlaut doktors-
nafnbót frá Háskóla Íslands.
NBA
Pétur Guðmundsson
Pétur Karl Guðmundsson varð fyrstur
íslenskra körfuboltamanna til að vera valinn
í NBA-lið. Hann er fæddur í Reykjavík 30.
október 1958 og það var árið 1981 sem hann
var valinn í NBA og í kjölfarið samdi hann við
Portland Trail Blazers. Seinna lék hann með
Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs.
Pétur, sem er 2,18 metra hár, var einnig
atvinnumaður í Argentínu í stuttan tíma og
á Englandi. Með Los Angeles Lakers spilaði
Pétur með leikmönnum eins Kareem Abdul
Jabbar og Magic Johnson.
Út í geim
Bjarni Tryggvason
Bjarni Tryggvason fór fyrstur Íslendinga út í
geim. Bjarni fæddist á Íslandi 21. september
árið 1945, þegar hann var sjö ára gamall flutti
hann með foreldrum sínum til Vancouver í
Kanada.
Árið 1997 fór Bjarni út í geim þar sem hann
varði tólf dögum. Hann sinnti að auki rann-
sóknum og kennslu á sviði loftaflsfræði,
straumfræði, stærðfræði og hönnun kerfa fyrir
geimferðir. Þá vann hann einnig við flugvéla-
prófanir og þjálfun.
Bjarni lést 6. apríl í
fyrra, 76 ára að aldri.
Járnkarl
Sigurður Örn Ragnarsson
Sigurður Örn Ragnarsson varð fyrsti Ís-
lendingurinn til að vinna heildarkeppnina
í Járnkarli (e. Ironman) þegar hann kom
fyrstur í mark í keppninni í Barcelona fyrstu
helgina í október á síðasta ári.
Sigurður keppti fyrir hönd Breiðabliks og
kom í mark á 8:42:01 og var sex mínútum á
undan næsta manni.
Í Járnkarli er synt 3,8 kílómetra í opnu
vatni, hjólað 180 kílómetra og hlaupið heilt
maraþon. Sigurður synti á 49:40, hjólaði á
4:30:10 og hljóp maraþonið á 3:14:15.
24 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 21. jAnúAR 2023
lAUgARDAgUR