Fréttablaðið - 21.01.2023, Side 50
Þegar seinna flóðið skall á
voru margir í bænum viti
sínu fjær af hræðslu við að
allt fjallið myndi fara
niður.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Arnar Guðmundsson
Fýlshólum 7, Reykjavík,
lést 16. janúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 27. janúar kl. 11.
Kolbrún Sigurjónsdóttir
Sigurjón Arnarsson Elín Þórunn Eiríksdóttir
Herborg Arnarsdóttir Margeir Vilhjálmsson
Dagur, Selma Sól og Viktor
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jóhannes Víðir Haraldsson
flugstjóri,
Forsölum 1,
lést á Líknardeild Landspítalans
12. janúar. Útförin fer fram frá
Lindakirkju, mánudaginn 30. janúar kl. 13.
Skapti Jóhannesson Hólmfríður Sigurðardóttir
Haraldur Jóhannesson Soffía Guðrún Gísladóttir
Jökull Trausti, Matthías, Kristófer Víðir, Ásdís Elín
Jóhanna Kara og Fróði
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892
Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson
S: 896 8242
Jón G. Bjarnason
S: 793 4455
Jóhanna
Eiríksdóttir
Útfararstofa Íslands
www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi
Útfararstofa Hafnarfjarðar
www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda
samúð og vináttu
við andlát og jarðarför
Bjargar Einarsdóttur
rithöfundar.
Guðmundur Ingi Haraldsson Bjarnfríður Guðmundsdóttir
Einar Hrafnkell Haraldsson Guðrún Sigurjónsdóttir
María Haraldsdóttir
Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
Sigríður Skarphéðinsdóttir
áður til heimilis að Hraunbæ 103,
sem lést laugardaginn 7. janúar,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 27. janúar kl. 13.00.
Streymt verður frá athöfninni í gegnum streymi.syrland.is
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir
góða umönnun, umhyggju og alúð.
Hulda Pétursdóttir Guðmundur Egilsson
Skarphéðinn Pétursson Anna Baldvina Jóhannesd.
Guðrún Pétursdóttir Bjarni Guðmundsson
Pétur Hans Pétursson Laufey Sigríður Jónsdóttir
Kristín Pétursdóttir Þorsteinn B. Sveinsson
Steingrímur Guðni Pétursson Sigríður Lepore
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Minningarathöfn fer fram á Pat-
reksfirði á sunnudag, fjörutíu
árum eftir að fjórir létust í tveimur
krapaflóðum sem féllu á bæinn.
arnartomas@frettabladid.is
Á sunnudaginn verða liðin fjörutíu ár frá
því að tvö krapaflóð féllu á Patreksfjörð.
Fjögur létust í f lóðunum og nítján hús
skemmdust. Í tilefni af tímamótunum
verður efnt til minningarathafnar í Pat-
reksfjarðarkirkju á sunnudaginn.
Egill St. Fjeldsted, sagnfræðingur og
Patreksfirðingur, gerði grein fyrir ham-
förunum í bók sinni Krapaflóðin á Pat-
reksfirði 1983 sem kom út árið 2020.
„Ég missti þannig séð af þessu en var
staddur uppi í íþróttahúsi þegar flóðið
skall á,“ segir Egill sem var þá þrettán ára
gamall. „Heimili mitt rétt slapp en ég sá
það ekki sjálfur.“
Meðal þeirra sem létust í f lóðinu var
sex ára gömul stúlka, systir besta vinar
Egils.
Í aðdraganda f lóðanna hafði verið
mikil snjókoma í desember og janúar á
Vesturlandi og Vestfjörðum.
„Á Patreksfirði voru allar götur lok-
aðar og það var ekkert f logið í rúmar
tvær vikur,“ segir Egill. „Bærinn var alveg
á kafi.“
Daginn fyrir f lóðin kom asahláka
ofan í allan snjóinn og rétt fyrir hádegi
vöruðu almannavarnir við snjóflóða-
hættu í öðrum hluta bæjarins.
„Það hafði aldrei komið f lóð niður
þetta gil, en þekkt var að þar kæmu
niður vatnsspýjur í leysingum,“ segir
Egill og vísar til Gilseyrargils þar sem
fyrra flóðið átti upptök sín.
„Um morguninn voru menn farnir
að reyna að veita vatni frá húsunum
þegar snjórinn í gilinu var orðinn nán-
ast heiðblár vegna vatnsþrýstings og
vatn sprautaðist þar upp úr eins og gos-
brunnur.“
Óttuðust að fjallið myndi fara
Um hálf fjögur brast þetta og þá rann
krapinn, vatn og snjór sem tók með sér
grjót úr gilinu, niður í gegnum bæinn
með ofangreindum afleiðingum. Allir
sem vettlingi gátu valdið fóru í björgun-
araðgerðir en ógæfan var ekki yfirstaðin.
Annað flóð féll á bæinn stuttu síðar,
niður Litladalsá.
„Strax eftir fyrsta f lóðið var bærinn
rýmdur í kringum gilið, alltaf f leira og
f leira fólk, þangað til þetta var komið
upp í fjögur til fimm hundruð manns
sem sett voru í félagsheimilið innan
við ána þar sem seinna flóðið féll,“ segir
Egill. „Þegar að seinna flóðið skall á voru
margir í bænum viti sínu fjær af hræðslu
við að allt fjallið myndi fara niður.“
Svo ótrúlega vildi til að áður en flóðin
skullu á var verið að undirbúa þorrablót
um kvöldið.
„Félagsheimilið var fullt af þorramat,
sem kom sér ótrúlega vel fyrir þá sem
gistu þar, sem og björgunarsveitarmenn
sem komu til hjálpar,“ segir Egill.
Minningarstund verður í Patreks-
fjarðarkirkju klukkan 14, að Kristjáni
Björnssyni vígslubiskupi viðstöddum.
Þar munu listamenn af svæðinu flytja
tónlistaratriði. Að því loknu verður
gengið að minnisvarða þeirra sem létust
í krapaflóðunum, þar verða viðbragðs-
aðilar á svæðinu í broddi fylkingar.
Því næst verður minningarathöfn
í félagsheimilinu þar sem Guðni Th.
Jóhannesson forseti, Þórdís Sif Sigurð-
ardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, og
Úlfar Thoroddsen, fyrrverandi sveitar-
stjóri Patreksfjarðarhrepps, taka til
máls. n
Fjörutíu ár frá flóðunum á Patró
Fjögur létu lífið og tíu slösuðust í flóðunum. Myndir/AðsendAr
Allir sem vettlingi gátu valdið tóku þátt í björgunarstarfinu.
26 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 21. jAnúAR 2023
LaUGaRDaGUR