Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 39
Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
LÁGMÚLI 4, REYKJAVÍK
Eignin verður sýnd þriðjud. 24. jan, milli kl. 15:00 – 15:30.
Snyrtilegt, bjart og vel útbúið 650,9 m2, skrifstofuhæð mið-
svæðis við Lágmúla 4 í Reykjavík. Eignin er öll önnur hæðin
í húsinu. Húsnæðið hefur verið nýtt sem heilsugæslustöð
undanfarin ár og er innréttuð sem slík með ca. 26 her-
bergjum ásamt miðrými/móttökurými, snyrtingum o.fl.
Aðkoma að húsinu er mjög góð, sameiginlegur inngangur
í bjart stigahús með lyftu. Stórt sameiginlegt bílaplan er
framan við húsið. Innveggir eru léttir. Stórir gluggar sem
gefa góða birtu inn í rýmin. Húsnæðið býður upp á marg-
þætta notkunarmöguleika.
Verð: kr. 260.000.000,-
Frekari upplýsingar um eignirnar má finna á heimasíðu
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is
MARKAÐSKÖNNUN
TÍMABUNDIÐ HÚSNÆÐI RÁÐUNEYTA - LEIGUHÚSNÆÐI
230216 Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs
óska eftir að taka á leigu tímabundið húsnæði fyrir
starfsemi Stjórnarráðsins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu, tímabundið til
5 ára auk mögulegrar framlengingar til 2 - 3 ára.
Óskað er eftir nútímalegu og sveigjanlegu skrifstofuhúsnæði
sem tekur mið af viðmiðum FSRE um verkefnamiðað vinnuum-
hverfi sem finna má á heimasíðu FSRE: https://www.fsre.is/
media/starfsreglur-og-vidmid/Vidmid-um-vinnuumhverfi-2020
Gefnir eru 3 kostir við að gera tilboð
(hægt er að gera 1 – 3 tilboð):
• Tilboð 1: Ráðuneyti A, húsnæðisþörf 900 – 1.000 m2 brúttó
• Tilboð 2: Ráðuneyti B, húsnæðisþörf 700 – 900 m2 brúttó
• Tilboð 3: Ráðuneyti A og B, húsnæðisþörf 1.400 – 1.900 m2 brúttó
Gerð er krafa um staðsetningu í miðbæ Reykjavíkur í göngu-
færi við stjórnarráðsreit og Alþingi. Gott aðgengi skal vera
fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og æskilegt að í
boði sé hæfilegur fjöldi bílastæða.
Húsnæðin skulu afhendast fullbúin og tilbúið til notkunar
innan 6-12 mánaða frá undirritun leigusamnings. Æskilegt að
húsnæði fáist afhent eins fljótt og kostur er.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leigu-
verðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starf-
semi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að
uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is mánudaginn, 23. janúar 2023.
Fyrirspurnir varðandi verkefnið Tímabundið húsnæði ráðu-
neyta skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 25. janúar 2023 en svarfrestur er
til og með 27. janúar 2023.
Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en
kl. 13:00 fimmtudaginn 9. febrúar 2023.
Merkja skal tilboðin; nr. 230216 – Tímabundið húsnæði ráðu-
neyta - Leiguhúsnæði.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum
um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.
Styrkir
til rannsókna á ritmenningu
íslenskra miðalda - RÍM
Í tilefni af því að árið 2019 voru 75 ár liðin frá stofnun lýð-
veldis á Íslandi, standa forsætisráðuneyti, fjármála- og
efnahagsráðuneyti, menningar- og viðskiptaráðuneyti,
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og
Snorrastofa í Reykholti fyrir átaksverkefni til fimm ára um
þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda.
Fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðuneytis auglýsir
Snorrastofa nú eftir umsóknum um styrki vegna verkefnis-
ins fyrir árið 2023.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði ritmenn-
ingar íslenskra miðalda, m.a. með því að efla rannsóknir
á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og
þá sérstaklega á þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum
þar sem ritmenning blómstraði. Verkefnið skiptist í tvo
verkþætti: Annars vegar að rannsaka menningarminjar og
umhverfi tengt þessum stöðum og hins vegar handrita- og
bókmenningu þeirra. Umsóknir verða metnar með tilliti til
vísindalegs og menningarsögulegs gildis.Vonir standa til
að nákvæmar lýsingar verði unnar á þeim ritmenningar-
stöðum, sem verða fyrir valinu og rök færð fyrir menn-
ingarlegu vægi þeirra handrita og bókmenntaverka sem
stöðunum tengjast. Áætlað árlegt fé til sjóðsins er 35 m.kr.
á tímabilinu 2020 til 2024.
Umsóknum um styrki úr sjóðnum skulu fylgja greinar-
góðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum. Sé fyrirhugað að sækja um styrk
til verkefnis, sem taka mun fleiri en eitt ár að vinna, skal
umsækjandi gera grein fyrir heildarmarkmiðum verkefnis,
áfangaskiptingu og kostnaðaráætlun hvers áfanga. Styrk-
veitingu fylgir ekki skuldbinding til að veita styrki til síðari
áfanga verkefnis.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunar-
reglur, er að finna á heimasíðu Snorrastofu í Reykholti,
www.snorrastofa.is – rannsóknir og fræði.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2023. Umsóknir
sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita
við úthlutun.
Úthlutanir úr sjóðnum eru á hendi menningar- og viðskipta-
ráðuneytis að fenginni umsögn sérstakrar úthlutunar-
nefndar. Snorrastofa hefur eftirlit með að styrkt verkefni
séu unnin í samræmi við þær úthlutunarreglur, sem birtar
eru á heimasíðu Snorrastofu. Heimilt verður að óska eftir
frekari gögnum og upplýsingum frá umsækjendum eftir því
sem þurfa þykir.
19. janúar, 2023
Snorrastofa,
320 Reykholt
Sími: 433 8000 og 893 1492
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
ÚTBOÐ
Hamarshöllin Hveragerði –
Áfangi 1 Alútboð
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í að hanna og
byggja yfirbyggingu fyrir nýtt fjölnota íþróttahús ofan á
og utan um núverandi steyptan grunn eldri Hamarshallar,
ca. 49 x 105m að utanmáli, ásamt nýju anddyri ca. 5,6 x
5,6m að stærð.
Brúttó stærð nýrrar yfirbyggingar að viðbættu nýju and-
dyri er áætluð ca. 5.175m2, og frí lofthæð skal vera að
minnsta kosti 7,0m á langhliðum yfirbyggingarinnar og
9,9m fyrir miðju húsi.
Lok framkvæmdatíma 19. mars 2024 með áfangaskilum
19. desember 2023.
Útboðsgögn verða tilbúin til útsendingar til bjóðenda frá
og með 17. janúar 2023. Þeir sem óska eftir að fá send
útboðsgögn sendi beiðni um það á netfangið
johanness@mannvit.is
Umbeðnum fylgigögnum með tilboði, og verðtilboði
bjóðanda skal skila í aðskildum umslögum á afgreiðslu
tæknideildar Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, eigi
síðar en fimmtudaginn 23. febrúar 2023, kl. 11:00.
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið:
LED lampar fyrir
götu- og stígalýsingu
á Akranesi
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í að útvega
2018 LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu í eldri
og ný hverfi á Akranesi. Lamparnir eru ætlaðir fyrir
húsagötur, opin svæði og stíga. Þeir skulu uppfylla
kröfur um útlit, tæknilega og ljóstæknilega
eiginleika og skulu koma vel út í lífferilskostnaðar-
greiningu, LCC.
Samningur um lampana er til þriggja ára.
Frávikstilboð eru ekki leyfð.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í
gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar, slóð
https://akranes.ajoursystem.net/.
Verkið er auglýst á EES svæðinu.
Tilboðum með umbeðnum gögnum skal skilað á
útboðsvefinn fyrir kl. 10:00 föstudaginn 3. mars
2023. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann
hefur skilað tilboði. Fundargerð opnunarfundar
verður send öllum bjóðendum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála
eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar
án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu.
BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið.
SÉRHÆFÐ
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
MEÐ ÁHERSLU Á 60+
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Erum við
að leita að þér?