Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 24
www.fsre.is
AÐSTAÐA
Í ALLRA ÞÁGU
FRAMKVÆMDASÝSLAN
- RÍKISEIGNIR
FSRE.IS
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskipta eða fjármála
• Meistaragráða í fjármálum fyrirtækja eða endurskoðun er kostur
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla ásamt reynslu af því að leiða breytingar
• Þekking og reynsla af fjármálastjórn og stefnumörkun á sviði fjármála
• Reynsla af áætlanagerð, fjárhagslegum greiningum og rekstrar- og verkbókhaldi
• Reynsla af fjármögnun framkvæmda eða eignastýringu er kostur
• Þekking á opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er kostur
• Þekking eða reynsla af stafrænni þróun er kostur
Nánari upplýsingar um starfið og hæfniskröfur má finna á www.intellecta.is
Helstu menntunar- og hæfniskröfur
FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLA
OG STAFRÆNNA INNVIÐA
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að ráða öfluga og framsýna
manneskju í stöðu framkvæmdastjóra fjármála og stafrænna innviða. Við
leitum að drífandi leiðtoga sem hefur færni til að leiða metnaðarfullan
hóp fagfólks til árangurs. Við bjóðum upp á frábæran vinnustað í stöðugri
framþróun og tækifæri til að taka þátt í að auka velsæld og verðmætasköpun
í íslensku samfélagi.
Undir svið fjármála og stafrænna innviða falla fjárhagsleg stjórnun og reiknings-
hald, launavinnsla og verkbókhald, rekstur skrifstofu, rekstur og þróun
stafrænna innviða og gæða- og ferlamál. Sviðið gegnir stoðhlutverki þvert
á FSRE og sinnir jafnframt formlegri skýrslugerð til ytri aðila. Framkvæmda-
stjóri sviðsins situr í framkvæmdastjórn FSRE og er jafnframt staðgengill
forstjóra.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 30. JAN
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Nánari upplýsingar í síma 511 1225:
Thelma Kristín Kvaran, thelma@intellecta.is
Við hjá FSRE mótum og rekum
aðstöðu sem nýtist öllum íbúum
landsins með einum eða öðrum
hætti. Við önnumst fasteignir og
jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og
stýrum framkvæmdum við breyt-
ingar, endurbætur og nýbyggingar.
FSRE heldur utan um stærsta
fasteignasafn landsins sem
samanstendur af 530 þúsund m²
húsnæðis í 380 eignum auk um
300 jarða og landsvæða. Við
vinnum jafnframt að fjölbreyttum
fasteignaþróunarverkefnum sem
snerta flest svið mannlífsins s.s.
heilbrigðis- og velferðarmál,
menningu, menntun, dómskerfi,
löggæslu, náttúru og friðlýst svæði.
Hjá FSRE starfa 74 sérfræðingar
með breiða þekkingu á sviði
fasteignaþróunar, framkvæmda
og rekstrar. Við erum spennandi
vinnustaður á fleygiferð inn í
framtíðina, bjóðum upp á verk-
efnamiðað vinnuumhverfi og
sveigjanlegan vinnutíma. Við
leggjum áherslu á að styðja
starfsfólk okkar í þekkingaröflun,
m.a. í gegnum alþjóðlegt
tengslanet. Við bjóðum upp á
markvissa stjórnendaþjálfun,
brennum fyrir jafnrétti, frábærri
vinnustaðamenningu og
fjölskylduvænum vinnustað.
Móberg: Urban arkitektar - LOOP Architects
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari