Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 58
Uppsetning á sögu­ framvindu er óhefð­ bundin og nauðsyn­ legt að gefa verkinu séns. Erpur Eyvindarson er á leið til Kúrdistan í norðurhluta Írak í apríl. Hann segir um að ræða merkilegasta menningarsvæði veraldar og hvetur fólk til að opna augun og koma með. odduraevar@frettabladid.is „Á meðan við Evrópumenn ljúgum að sjálfum okkur að við höfum fundið upp siðmenninguna er það staðreynd að meðan við átum mannakjöt og mold þá voru þeir í Mesópótamíu og Persíu, þar sem nú er Írak og Íran, að finna upp tölurnar og fyrsta hjólið, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson, gjarnan þekktur sem BlazRoca, sem er á leið til Kúrdistan í norðurhluta Írak í apríl. Erpur fer með ferðaskrifstofunni Crazy Puffin Adventures en um er að ræða tólf manna ferð með kúrd­ ískum leiðsögumanni. „Allir sem hafa verið lengur en átta mínútur á Flórída eða Benidorm vita að það eru staðir til að andast á, meðan Kúrdistan er hrein upplifun,“ segir Erpur sem segir að um sannkallaða menningarferð verði að ræða. „Þetta er vagga siðmenningar­ innar. Sagan allt fram á þennan dag hefur verið rosalega stórbrotin og við ætlum að skoða ýmislegt, meðal annars höll Saddam Hussein og annað sem tengist 20. öldinni en líka elstu hofin sem finna má á svæðinu sem eru þúsunda ára gömul.“ Þegar Erpur er spurður hvort öruggt sé að ferðast til norður­ hluta Íraks, sem í raun er Kúrdistan sem aldrei hefur fengið sjálfstæði, stendur ekki á svörum: „Það er mjög rólegt í íraska Kúrdistan þótt flest stórveldi veraldar hafi skipst á að hamast á Kúrdunum, hvort sem það eru Tyrkir, Bretar eða Saddam. Þetta er þjóð sem á enga vini nema fjöllin en þegar þeir fá að vera í friði þá blómstrar allt.“ Erpur segir Kúrda framúrstefnu­ lega og stórmerkilega þjóð. „Þeir eru til dæmis afslappaðir varðandi trúmál og þarna er miklu meira jafnrétti á milli kynja. Þeirra helsti leiðtogi er Abdullah Öcalan, sem er leiðtogi kúrdíska verkamanna­ flokksins og situr í lífstíðarfangelsi í Tyrklandi en hans hugmyndir eru afar framfarasinnaðar. Þannig að þetta er ekkert búrkuævintýri,“ segir rapparinn. Hann segir svæðið hafa verið frið­ sælt um árabil. „Þeir eru að fá um fjórar milljónir túrista á hverju ári, á meðan við Íslendingar erum að fá tvær, svona til samanburðar,“ segir Erpur. „Þeir fá miklu meira af túristum en við en það eru samt ekki ein­ hverjir Lonely Planet­lúðar eða Benidorm­halarófur. Það eru engir feitir tjallar með Chelsea­tattú í landsliðstreyjum að leita að næsta full english breakfast, skilurðu?“ Erpur segir helstu ástæðu þess að hann hafi ákveðið að drífa sig vera hversu mikill áhugamaður um sögu svæðisins hann sé. „Við verðum með þaulkunnugan Kúrda sem leið­ sögumann í litlum hópi sem getur svarað öllu sem brennur á fólki,“ segir Erpur sem fær ekki nóg af að benda á hve þreytt venjuleg ferðalög séu orðin. „Á maður í alvöru að nenna að skoða sömu dómkirkjurnar í Evr­ ópu eða heilsa upp á illa launaða farandverkamenn í Disneylandi í þúsundasta skiptið, í alvörunni? Þetta er bara „groundhog day“ í ferðalögum og ég held að það sé fullt af fólki sem vilji frekar sjá eitthvað sem það hefur aldrei séð áður.“ Erpur segir aðspurður að það sé fast í hugsun margra að Írak sé átakasvæði. „Sama hvað menn halda þá eru vestrænir fjölmiðlar uppfullir af þeirri vestrænu sýn að siðmenningin er hér og að restin af heiminum sé bara einhver frum­ skógur,“ segir Erpur sem segir um mikinn misskilning að ræða. „Ef þú ferð á svæði þar sem þú ert með lókal tengingar er það allt annað, ég myndi ekkert henda mér í f lipflops og sólarvörn og bruna í bakpokaferðalag í Bagdad,“ segir Erpur hlæjandi. „Mæli ekki með, en maður á aldrei að vera hræddur, af því að hræðslan stafar bara af van­ þekkingu.“ Hann segir mikilvægt að kynna sér hlutina. „Ef þú kemst að því að það er ekki fýsilegt að fara til ein­ hvers lands þá er það bara þannig. En það er fullt af löndum þar sem það er vesen í hluta landsins en þú getur samt farið þangað. Það eru bara nokkrir áratugir síðan það var borgarastyrjöld í Norður­Írlandi en Íslendingar fóru samt og versluðu í Dublin.“ Erpur segir skiljanlegt að margir haldi að það sé alltaf vesen annars staðar en á Vesturlöndum, annað frá Afríku og Miðausturlöndum komist enda ekki í fréttir. Erpur segist ætla að vera duglegur að sýna frá ferð­ inni á Instagram­síðu sinni slaki­ babarinn og snapchattinu babar­ inn, en hvetur alla til að koma með. „Ég mæli bara með því að allir sem vilja opna augun komi með í þetta. Þetta er akkúrat það sem opnar og víkkar sjóndeildarhring­ inn. Þetta er eins og að fara úr því að upplifa raunveruleikann í svart­ hvítri tvívídd og þeysa svo yfir í þrí­ víddarbíósalinn.“ n Erpur býður fólki að sjá í þrívídd í Kúrdistan Við ætlum að skoða ýmislegt, meðal annars höll Saddam Hussein. Blaz Roca Á maður í alvöru að nenna að skoða sömu dómkirkjurnar í Evr­ ópu eða heilsa upp á illa launaða farand­ verkamenn í Disney­ landi í þúsundasta skiptið, í alvörunni? Blaz Roca Erpur segir að Kúrdistan sé einfaldlega vagga vest- rænnar menn- ingar. Hann getur ekki beðið eftir að mæta. Fréttablaðið/ SamSett KviKmyndir Coupez! /Final Cut michel Hazanavicius Frönsk kvikmyndahátíð í Bíó Paradís leikarar: Romain Duris, Bérénice Bejo, Grégory Gadebois Nína Richter Leikstjóri leikstýrir mynd sem fjallar um leikstjóra að leikstýra leikara sem leikur leikstjóra. Skilj­ iði? Frá leikstjóranum sem færði okkur The Artist – sem sópaði að sér fimm Óskarsverðlaunum árið 2012, kemur uppvakninga­grín­ hryllingsmynd með tilheyrandi lítrum af gerviblóði, ælu og öðru efni úr iðrum manna. Coupez! er endurgerð japönsku költmyndarinnar One Cut of the Dead by Shin’ichirô Ueda frá árinu 2017 og þannig órafjarri slípaðri og yfirvegaðri áferð The Artist, þó að hin íðilfagra Bérénice Bejo fari með eitt aðalhlutverka. Oft verða bíómyndir um leik­ stjóra og kvikmyndagerðarfólk óþolandi sjálfsfimmu­seremónía, en Michel Hazanavicius kemst upp með það, enda er nálgunin fersk þrátt fyrir rotið hold. Sömuleiðis hæðist Hazanavicius að leikstjóra­ stéttinni, fantasían um „auteur­ inn“, snillinginn með handbragðið, er tekin og rassskellt hressilega, meðal annars með vísun í Quentin Tarantino sem er hálfpartinn grátbrosleg. Leikstjórinn er óöruggur lúði, búinn að yfirgefa listina fyrir veskið og glata sjálfs­ virðingunni og dýrmætum tengslum í leiðinni. Þetta er vel gert og myndinni tekst að vera angurvær fjölskyldu­ saga á köf lum án þess að vera væmin. Myndin hæðist að tilgerðarlegum töktum u ng r a st jör nu lei k a r a í Cannes, Finn egan Oldfield leikur eiginlega sjálfan sig í þeim senum. Sagan segir ódýra brandara á kostnað samfélagsmiðlastjarna, og hefur afskaplega litla samúð með slíkum týpum. Það er kannski stærsti gallinn, tví­ víðar aukapersónur sem hefði verið gaman að kynn­ ast betur. Það er rétt að gefa ákveð­ inn fyrirvara. Uppsetning á söguframvindu er óhefð­ bundin og nauðsynlegt að gefa verkinu séns og fyrirgefa ýmislegt fyrstu tuttugu mínút­ urnar. Myndin dettur í senur sem eru í fáránleika sínum hys­ terískt fyndnar, sem er hress­ andi að finna í bíó á þessum síðustu og verstu. Hvað er að gerast? stundu bíógestir upp á milli hláturrokanna. Ekki missa af Coupez! í Bíó Paradís, þetta er algjör bíósalar­bíómynd sem stækkar mikið í samfélagi við aðra áhorfendur. n niðurstaða: Fyrir unnendur kvikmynda og upplifunar í kvikmyndahúsi má tvímæla- laust mæla með Coupez! Uppvakninga-stimpillinn er í aftursætinu en aðalsagan er mannleg saga af fólki sem vill gera sitt besta, oftast. Þetta er mynd sem kemur fólki í gott skap og minnir okkur á það sem skiptir máli, og undirstrikar í leiðinni að við eigum stundum að láta smáatriðin eiga sig. Hratt, ódýrt og viðunandi. Fersk nálgun á rotið hold 34 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 21. jAnúAR 2023 lAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.