Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 14
Segja má að Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sé eina
alvöru barnastjarna landsins frá því frægðar
sól Kötlu Margrétar og Rutar Reginalds skein
sem skærast. Jóhanna Guðrún hefur verið
landsþekkt nánast frá tíu ára afmælisdegi
sínum, þegar fyrsta plata hennar kom út og sló í gegn.
Það eru því fáir sem þekkja pressuna sem fylgir
kastljósi fjölmiðla jafn vel og hún. Þrátt fyrir það segir
hún frá því, hér í þessu tölublaði, að þegar fjölmiðlar
tilkynntu að hún ætti von á barni í nýju sambandi
hafi henni fundist farið yfir strikið.
„Þarna var valdið tekið úr höndum mér og fannst
mér farið algjörlega yfir línuna og ráðist inn í mitt
persónulega rými,“ segir Jóhanna í viðtalinu en ekki
var fengin staðfesting á þunguninni hjá henni sjálfri.
Jóhanna, sem er að eigin sögn ýmsu vön þegar kemur
að fjölmiðlaumfjöllun, lýsir þessu sem því versta sem
hún hafi lent í, í þeim efnum. Hún hafði ekki sagt
ungri dóttur sinni að von væri á litlu systkini og þurfti
að gera það í gegnum síma þegar fréttin birtist.
Þó svo að í f lestum tilfellum sé það gleðiefni í lífi
fólks að von sé á barni eru þær fréttir líka viðkvæmar
og kannski eðlilegast að foreldrarnir sjálfir vilji sjá um
slíkar tilkynningar.
Barnastjörnur eða ekki. n
Barnastjarna með barni
bjork@frettabladid.is
Jóhanna,
sem er að
eigin sögn
ýmsu vön
þegar
kemur að
fjölmiðla-
umfjöllun,
lýsir þessu
sem því
versta sem
hún hafi
lent í, í
þeim
efnum.
Frönsku bíói
Franska kvik
myndahátíð
in hófst í gær í
Bíó Paradís og
stendur til 29.
janúar. Um
er að ræða
franska kvik
myndaveislu
þar sem brot
af bestu kvik
myndum ársins er sýnt og þar á
meðal myndin Grand Marin eða
sjókonan. Heiðursgestur hátíðar
innar, Dinaru Drukanova, leikstýrir
bæði myndinni og fer með aðalhlut
verkið.
Ostasnúð og kaffi
Plantan kaffi
hús, á horni
N j á l s g ö t u
og Baróns
stígs, er lík
lega með
eitt besta
morg u nt il
boð bæjarins.
Kaffidrykkur og
ostasnúður á þúsund krónur. Allt
sem í boði er á Plöntunni er vegan
og í kaffidrykkina er notuð hafra
mjólk. Á matseðlinum er, ásamt
ostasnúðunum góðu, fjölbreytt
úrval af samlokum og um helgar er
boðið upp á bröns. n
Um helgina |
Við mælUm með |
eva laufey kjaran
markaðs og upplifunarstjóri Hag
kaupa og þekktur sjónvarpskokkur,
naut bóndadagsins með fjölskyld
unni í gær. Þau elduðu góðan mat og
horfðu saman á Idolið.
„Svo er þorrablót hérna á Akra
nesi á laugardaginn [í dag] og við
ætlum að fara saman þangað vina
hópurinn,“ segir Eva Laufey.
Spurð að því hvort hún sé mikið
fyrir þorramat segir hún svo ekki
vera.
„Bara alls ekki, þetta snýst bara
um stemninguna og það er mikil
stemning þarna og sem betur fer er
boðið upp á annan mat líka,“ segir
hún.
Gauti Þeyr Másson
betur þekktur sem tónlistarmaður
inn Emmsjé Gauti, ætlar að eiga fjöl
breytta og skemmtilega helgi.
„Ég ætla að taka solid blöndu af
fjölskyldutíma og góðu kvöldi með
vinum,“ segir Gauti en hann og eig
inkona hans, Jovana Scully, giftu sig
6. ágúst síðastliðinn og samtals eiga
þau þrjú börn.
„Svo gigga ég í Keflavík á laugar
dag,“ segir Gauti en hann spilar á
klúbbnum LUX í Reykjanesbæ í
kvöld.
Þorgerður katrín Gunnarsdóttir
þingmaður segir helgina ein
kennast af handbolta og þvotti.
„Vonandi verð ég bara í vímu eftir
sigur á Svíum á föstudaginn og bíð
spennt eftir leik á móti Brössum
sem við þurfum líka að vinna. Það
er svona mín draumsýn,“ sagði Þor
gerður í samtali við Fréttablaðið
fyrir leikinn.
Þorgerður fór til Svíþjóðar og
fylgdist með fyrstu þremur leikj
um íslenska landsliðsins en sonur
hennar leikur með liðinu. „Sama
hvernig fer verður maður með
hugann við handbolta, ætli maður
reyni ekki að fara líka í þvottahúsið
sem hefur látið á sjá síðustu vikur.
Ég viðurkenni það að heimilið
hefur verið í betra standi.“ n
Spóann gerði Inga meðal annars úr
hýði af hvítlauk,
Myndlistarkonan Inga
Höskuldsdóttir býr til myndir
af hinum ýmsu dýrum úr
matarleifum. Nú stendur yfir
sýning á verkum hennar í
Hannesarholti, sýninguna
kallar hún Burtfloginn kjúkl
ingur og teiknaðar kartöflur.
birnadrofn@frettabladid.is
Þetta byrjaði eiginlega
allt þannig að ég fór að
leika mér með matinn,“
segir myndlistarkonan
Inga Hösk u ld sdót t ir.
Nú stendur yfir sýning á verkum
hennar í Veitingastofum Hann
esarholts í Reykjavík, sýningin ber
heitið Burtf loginn kjúklingur og
teiknaðar kartöflur.
Á sýningunni sýnir Inga ljós
myndir sem hún hefur gert úr mat
arafskurði. „Ég er fyrst og fremst
myndlistarkona en fyrir hálfgerða
tilviljun fór ég að vinna í eldhúsi og
er alltaf með ruslafötu með afskurði
fyrir framan mig,“ segir hún.
„Ég bý til myndverk úr afskurð
inum sem kemur til þegar ég er að
elda og svo tek ég ljósmyndir af því,“
segir Inga. „Þegar ég er að skræla
kartöflur eða rauðrófur, skera utan
af melónum eða bara hvað sem er
þá nota ég það sem fellur til,“ segir
hún.
Inga segir aukna meðvitund um
sóun í samfélaginu og að fólk sé
farið að huga betur að því að nýta
það sem til er. „Undirtónninn í sýn
ingunni er matarsóun, ofgnótt og
neysluvenjur okkar mannfólksins
en fyrst og fremst er ég að nýta þann
efnivið sem hendi er næst, í mynd
sköpun,“ segir hún. „Það er frábært
að nýta þau efni sem til eru á skap
andi hátt,“ segir hún. Inga hvorki
borðar né eldar kjöt svo verk hennar
eru að langmestu leyti úr grænmeti.
Sýningin var opnuð um síðustu
helgi og aðspurð segir Inga fólk
hafa tekið vel í myndirnar hennar.
„Það eru kannski ekki margir að
gera nákvæmlega þetta svo ég hef
fengið góðar undirtektir,“ segir hún.
„Opnunin var mjög skemmtileg og
það var fullt allan tímann svo ég er
mjög ánægð,“ bætir hún við.
Sýningin er opin á milli 11.30 og
16 alla daga nema sunnudaga og
mánudaga og stendur til og með
1. febrúar. n
Inga leikur sér að matnum
Inga í eldhúsinu þar sem mikið af hennar listsköpun fer fram. fréttablaðið/ernir
Lundi sem Inga bjó til úr afskurði af
ýmsum ávöxtum og grænmeti.
Sitjandi hrafn sem er að mestu leyti
úr rauðkálsafskurði.
14 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 21. jAnúAR 2023
lAUgARDAgUR