Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 25
Umsókn skal fylgja kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar nk.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir,
framkvæmdastjóri Hagvangs, katrin@hagvangur.is.
Framkvæmdastjóri
Stjórn Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra auglýsir stöðu
framkvæmdastjóra félagsins lausa til umsóknar.
Leitað er eftir framkvæmdastjóra sem leiðir og eflir starfsemi SLF,
Æfingastöðvarinnar og Reykjadals sumar- og helgarstaðar fyrir fötluð
börn. Framkvæmdastjóri vinnur í nánu samstarfi við yfirþjálfara,
forstöðumann Reykjadals og annað starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stjórnun félagsins, stefnumótun og nýsköpun
• Áætlanagerð og daglegur rekstur Æfingastöðvarinnar
• Þróun hæfingar- og endurhæfingarstarfs félagsins
• Þróun á starfsemi Reykjadals
• Umsjón með fjáröflun félagsins
• Samskipti við notendur þjónustu, starfsfólk, stjórn, stjórnvöld
og aðra samstarfsaðila
• Ráðning stjórnenda
Menntunar- og hæfniskröfur
• Áhugi og virðing fyrir málefnum fatlaðra
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Víðtæk þekking og leiðtogahæfni
• Reynsla af stjórnun og teymisvinnu
• Reynsla af stjórn stefnumótunar, nýsköpunar
og breytingastjórnunar
• Framsækni í vinnubrögðum og metnaður til að ná árangri í starfi
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Góð hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli
• Traust orðspor
hagvangur.is
Æfingastöðin er miðstöð þjónustu og þekkingar að
hæfingu og endurhæfingu barna og ungs fólks. Þar starfa
38 starfsmenn, þar af 15 sjúkraþjálfarar og níu iðjuþjálfar
við að meta þörf á og veita iðju- og sjúkraþjálfun fyrir börn
og fjölskyldur, bæði í formi beinnar íhlutunar, aðlögunar og
fræðslu. Æfingastöðin er sjálfstæð heilbrigðisstofnun með
þjónustusamning við ríkið og er ekki rekin í hagnaðar-
skyni. Unnið er eftir gildum fjölskyldumiðaðrar þjónustu
með það að markmiði að efla þátttöku og lífsgæði barna
með ólíkar þarfir. Í Reykjadal í Mosfellsdal er rekin sumar-
og helgardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Þangað
sækja um 250 börn og ungmenni ár hvert og eru 70
starfs menn þar í sumarstörfum en hluti þeirra tekur einnig
vaktir yfir veturinn. Nánari upplýsingar má finna á slf.is.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Þátttakandi í íslensku
atvinnulífi í meira en
50 ár
hagvangur.is