Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 27
Ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins Auglýst er laust til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra í innviðaráðuneytinu. Verkefni ráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál. Undir ráðuneytið heyra Byggðastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Skipulagsstofnun, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands. Hlutverk ráðuneytisins er að vera leiðandi í stefnumótun og áætlanagerð, hafa eftirlit með stofnunum og eigum ríkisins, meðferð stjórnsýslukæra og rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins. Einnig er ráðuneytið í alþjóðlegu samstarfi, leggur áherslu á víðtækt samráð og upplýsingagjöf og vandaða vinnu við gerð laga og reglugerða. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn innviðaráðherra. Ráðherra setur ráðuneytisstjóra erindisbréf þar sem kveðið er á um starfssvið og starfsskyldur, sbr. 18. gr. laga nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands. Starfssvið og starfsskyldur ráðuneytisstjóra eru víðtækar og ber ráðuneytisstjóri m.a. fjárhagslega og faglega ábyrgð gagnvart ráðherra á starfsemi ráðuneytis. Þá ber ráðuneytisstjóra að veita ráðherra upplýsingar og ráðgjöf þannig að ráðherra geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og stefnumótun og sé vel upplýstur varðandi þau mál sem unnið er að. Ráðuneytisstjóra ber einnig að stuðla að framgangi og árangri löggjafar á málefnasviðum ráðuneytisins og að afgreiðsla mála á hverjum tíma sé fagleg. Þá ber ráðuneytisstjóra að samhæfa stefnumótun á öllum málefnasviðum ráðuneytisins, stuðla að samhentri stjórnsýslu og samræma stefnu og aðgerðir ráðuneytisins við vinnu annarra ráðuneyta þegar málefni og málefnasvið skarast. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf skilyrði. • Þekking og reynsla á málefnasviðum innviðaráðuneytisins. • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu. • Þekking og reynsla af stefnumótun. • Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla. • Færni í mannlegum samskiptum. • Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli. Menntunar- og hæfniskröfur: Innviðaráðuneytið Innviðaráðherra skipar í embættið frá 1. maí 2023 til fimm ára. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma. Upplýsingar um starfið veitir Ingilín Kristmannsdóttir skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu, ingilin.kristmannsdottir@irn.is s. 545 8200. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar og þann árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist embættinu. Hæfnisnefnd skipuð af innviðaráðherra metur hæfni umsækjenda samkvæmt reglum nr. 393/2012. Umsókn skal skila rafrænt á starfatorg.is eigi síðar en 31. janúar 2023. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.