Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Page 12
10
Á tímum frá innrás Kelta á Mön til brottfarar Rómverja frá Bret-
landi árið 410 er ekkert vitað um sögu Manar og íbúa hennar. Það
var tími dularfullrar einangrunar.
Fyrsta kirkjan
Langur tími leið frá þeim tíma, er kristniboðar fóru fyrst að leggja
leið sína til Manar, þar til kirkja var reist þar, en það var einhvem
tíma á fimmtu öld, og reistu hana munkar, lærisveinar Patreks helga
á eyju, sem þeir kenndu við hinn helga mann, og kölluð St. Patrick’s
Isle, og var kirkjan honum helguð. Það var ekki fyrr en á víkinga-
tímanum svo nefnda sem fyrsta tilraun var gerð til þess að skrá sögu
Manarkonunga, og kirkjulífs. Hana byrjaði ábótinn af Rushen 1188,
og nefndist hún „Chronica Regum Manaiae et Insularium“ (Manar-
konungasögur og eyjanna), og var þvi haldið, áfram til ársins 1316,
er klaustrið var lagt í rústir í árás. Þetta handrit er nú eign British
Museum í Lundúnum. Þar segir að Inis Patrick eða St. Patricks Isle
hafi verið höfuðstöð Manx-kirkjunnar, og St. German fyrsti biskup
á eyjunni.
Koma víkinga
Víkingar réðust fyrst á Mön árið 798, rændu og rupluðu, drápu
fólk og skildu eftir bnmarústir þar sem áður bjó friðsamt fólk, sem
gat lítilli eða engri vöm við komið. Landnám víkinga á Mön átti sér
stað 850-900 og komust yfirráð á eyjunni þá í hendur norrænna kon-
unga í Dyflinni. Haraldur Noregskonungur hertók „Vestureyjamar“
("Westem Isles), Skye, Mull og Islay, og þar næst Mön og stofnaði
konungdæmið „SuSureyjar og Mön“. Biskupstitilinn „The Bishop of
Sodor and Mann“ — enn við lýði, minnir á þetta. Það yrði of langt
mál, að rekja söguna þann tíma, sem Mön var undir yfirráðum norskra
konunga (855-1266), en þá komst hún undir skozk yfirráð, og var
það þar til hún komst undir ensku krúnuna (1765), eða helztu við-
burði aldanna, sem komu í kjölfar víkingatímans, en allt er þetta
mikil saga, — örlagaríkra atburða og átaka milli Skota og Englend-
inga — og baráttusaga litillar eyþjóðar fyrir sínu norræna ætterni
af órofa tryggð við hið bezta í þeirri arfleifð, sem hún eim ber svip-